Síða 1 af 1
hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:20
af Halldór
Ég er með Bandarískann Dodge Grand Caravan sem þarf að komast í viðgerð. Hvar er hagstæðast að fara með hann í viðgerð?
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:26
af sakaxxx
það fer eftir því hvað þarf að gera
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:28
af lukkuláki
Bara KvikkFix þeir laga flest
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:31
af appel
Úff hvað mig langar að láta lagfæra ryðblettur á bílnum mínum. En maður er svo ósjálfbjarga í þessu að maður gerir ekki neitt. Hvað á mar að gera?
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:32
af Klemmi
appel skrifaði:Úff hvað mig langar að láta lagfæra ryðblettur á bílnum mínum. En maður er svo ósjálfbjarga í þessu að maður gerir ekki neitt. Hvað á mar að gera?
TechHead gerði hér einhverntíman voða flottan þráð um hvernig átti að gera við ryðbletti á bílum.. getur reynt að grafa það upp
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Mið 11. Jan 2012 19:35
af Halldór
það er brotinn spegill og eithvað með bremsurnar sem þarf að laga.
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Fim 12. Jan 2012 23:35
af Halldór
einhverjar aðrar uppástungur?
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Fös 13. Jan 2012 00:07
af Blamus1
Fór með dodge minn til bifreiðastillingin smiðjuvegi 40d á sínum tíma eftir ráðleggingar margra og sé ekki eftir því. 557-6400
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Fös 13. Jan 2012 00:22
af Gunnar
http://www.snurfus.is/síðan í vinnslu en það er símanúmer þarna.
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Fös 13. Jan 2012 02:01
af Pandemic
"síða er í vinnslu " - We meet again
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Fös 13. Jan 2012 02:07
af rapport
Dodge og Chrysler > Bíljöfur (er með varahlutaþjónustu við þessa bíla, eru heldur ekkert veskistæmandi dýrir m.v. hvernig Ræsir var)
Annars mæli ég með "Bilaði bíllinn" í Skógarhlíð (gamla Scania verstæðið milli KPMG og Krabbameinsfélagsins) þeir eru pottþéttir, opið frá 10-22 og eru absurd hagstæðir og snöggir.
Re: hvar er best að fara með bílinn í viðgerð?
Sent: Þri 17. Jan 2012 15:04
af kizi86
Blamus1 skrifaði:Fór með dodge minn til bifreiðastillingin smiðjuvegi 40d á sínum tíma eftir ráðleggingar margra og sé ekki eftir því. 557-6400
bíllinn minn er akkúrat hjá þeim núna í viðgerð, frekar hagstætt verð sem þeir buðu mér fyrir þessa viðgerð miðað við umfang.. lenti í því að tímareimin hjá mér slitnaði og allt fór í fokk, t.d allir ventlar beyglaðir og fleira gúmmelaði.. og borga 130.000kr fyrir allt... og svo fæ ég 10% afslátt þar sem er í FÍB