Síða 1 af 2
Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:29
af glanni
Ég bý í úthverfi Reykjavíkur, þið sem eruð á milli Skeifunnar og 101 hvernig er færðin í bænum núna?
Er ekki rugl að vera á ferðinni?
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:30
af Arnarr
ekkert að veðrinu, eina sem var að stoppa umferðina var fólk sem kann ekki að keyra !
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:38
af glanni
Arnarr skrifaði:ekkert að veðrinu, eina sem var að stoppa umferðina var fólk sem kann ekki að keyra !
Ég held mig þá bara heima. Er á sumardekkjum sem kemur reyndar ekki að sök því bíllinn er með aldrifi. Og ég er MASTER ökumaður!
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:39
af Sphinx
veðrið er snar i mosó allavegana, eg myndi seigja 20-25m/sek... enda er maður bara spila cs
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:47
af vesley
2,5 klst að komast frá Grafarvogi uppí FB.
Ekki vegna þess hvernig ég var að keyra heldur útaf umferðinni.
Ætti að vera í lagi núna ef þú ert á 4wd bíl, traffíkin líka ekki næstum því jafn mikil núna.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 13:59
af glanni
Nahh, held ég chilli heima bara. Fyrst þetta er svona slæmt.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 14:14
af ManiO
Ég lenti ekki í neinum vandamálum að fara frá nesinu að HR á afturhjóladrifnum bíl á heilsársdekkjum, þ.a. færðin ætti að vera flestum fær. Bara muna að hafa hugann að akstrinum.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 14:23
af FriðrikH
Lítið að færðinni ef maður er á hjóli, verst hvað allir þessir bílar eru að þvælast fyrir manni.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:10
af blitz
Yaris á heilsársdekkjum sigldi auðveldlega frá austurbæ -> grafarholt -> borgartún í morgun um 07:00
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:11
af GuðjónR
FriðrikH skrifaði:Lítið að færðinni ef maður er á hjóli, verst hvað allir þessir bílar eru að þvælast fyrir manni.
Á hjóli!!!!
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:29
af kfc
blitz skrifaði:Yaris á heilsársdekkjum sigldi auðveldlega frá austurbæ -> grafarholt -> borgartún í morgun um 07:00
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:43
af SolidFeather
glanni skrifaði:Arnarr skrifaði:ekkert að veðrinu, eina sem var að stoppa umferðina var fólk sem kann ekki að keyra !
Ég held mig þá bara heima. Er á sumardekkjum sem kemur reyndar ekki að sök því bíllinn er með aldrifi. Og ég er MASTER ökumaður!
Þangað til að þú þarft að bremsa.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:43
af worghal
GuðjónR skrifaði:FriðrikH skrifaði:Lítið að færðinni ef maður er á hjóli, verst hvað allir þessir bílar eru að þvælast fyrir manni.
Á hjóli!!!!
mágur minn hjólar allt þessa dagana og lætur ekki einhvern snjó stoppa sig.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:45
af ZiRiuS
Var uþb 20min að komast úr 103 í 101 í morgun, ekkert svo slæmt, var reyndar heavý umferð á leiðinni til baka um 9 leitið
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:49
af Klaufi
glanni skrifaði:Ég held mig þá bara heima. Er á sumardekkjum sem kemur reyndar ekki að sök því bíllinn er með aldrifi. Og ég er
MASTER ökumaður!
Btw, tengdó hjóla bæði í vinnuna alla morgna þó svo að þau eigi bíl, segja að það sé ekkert að því þegar þau eru á nelgdu..
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:52
af FriðrikH
worghal skrifaði:GuðjónR skrifaði:FriðrikH skrifaði:Lítið að færðinni ef maður er á hjóli, verst hvað allir þessir bílar eru að þvælast fyrir manni.
Á hjóli!!!!
mágur minn hjólar allt þessa dagana og lætur ekki einhvern snjó stoppa sig.
Snjórinn er bara skemmtileg tilbreyting og ágætis æfing. Munurinn er að maður festist aldrei á hjóli, maður skellir því bara á bakið ef skaflarnir eru of djúpir.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 15:57
af kfc
glanni skrifaði:Arnarr skrifaði:ekkert að veðrinu, eina sem var að stoppa umferðina var fólk sem kann ekki að keyra !
Ég held mig þá bara heima. Er á sumardekkjum sem kemur reyndar ekki að sök því bíllinn er með aldrifi. Og ég er MASTER ökumaður!
Ef það er keyrt á þig og þú á sumardekkjum í þessari færð ertu dæmdur í órétti, bara svo þú vitir það.
Aldrif gerir lítið fyrir þig þegar þú þart að snar stoppa og þá skiftir ekki máli hvernig ökumaður þú ert í þessari færð á sumardekkjum.
Þetta er ekki ílla meit, bara ábending
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 17:47
af schaferman
er rétt að koma heim núna,,, hehe ætli það sé ekki erfiðara yfirfærða hér heldur hjá ykkur,, þurfum að keyra hættulegust hlíð landsins ( súðavíkurhlíð)daglega til vinnu, svell með snjó og sköflum á og engin vegrið á leiðinni og ekki eitt götuljós,, og hvergi á landinu falla jafn mörg snjóflóð og úr þeirri hlíð,, komst í gegn um tvo pinku flóð í morgun , en var svo blint að ég sá ekki stikurnar og það er slæmt því að víkja 1m til hliðar og þá er bara þverhnýpi framaf og í sjóinn,, væri gaman að sýna ykkur eina mynd sem ég tók út um framrúðuna á bílnum þegar skygnið var sem BEST,, væri gaman að láta höfuðborgarbúa keyra þessa leið á fólksbíl fram og til baka í vinnu daglega.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 17:58
af Klaufi
Snjómokstri lokið undir Súðavíkurhlíð 7. apríl 2010. Ljósmynd: Þórður Sigurðsson.
A.k.a. Schaferman ef mér skjátlast ekki..
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 18:04
af schaferman
þetta er prinsessan mín hún Kristel, jú einhvertíman tók ég þessa mynd, hægri skaflinn á myndinni er bara beint fram af út í sjó,,
get sent ykkur líka mynd þegar ég var að keyra hlíðina en lendi í einu af þessum grjóthrunum sem eru alltaf þarna,,,,,,,,,tja,bílli,,,,,,,,handónýtur eftir það,
meira segja mælaborðið í rúst, einn steinn inn um gluggann bílstjóramegin og út um hinn gluggann,,
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 18:25
af schaferman
en bíllin lenti í grjóthruni sem er nú vikulegur viðburður undir hlíðinni sumar-vor-haust. svo á veturnar eru endalaus snjóflóð,, en það fóru ca 3-5 hnullungar gegn um bílinn,, einn straukst við höfuðið mitt og klessi soldið nefið áður enn hann fór út hinum megin,, stærði á honum ca eins og melóna
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 18:27
af ORION
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 18:34
af Moquai
Mikið af fjúkandi túristum hjá tækniskólanum.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 18:37
af urban
glanni skrifaði:Arnarr skrifaði:ekkert að veðrinu, eina sem var að stoppa umferðina var fólk sem kann ekki að keyra !
Ég held mig þá bara heima. Er á sumardekkjum sem kemur reyndar ekki að sök því bíllinn er með aldrifi. Og ég er MASTER ökumaður!
fáðu þér almennileg dekk.
mér er alveg slétt sama um það hvort að þú komist upp á jökul á sumardekkjunum eða ekki.
það er fólk þarna á höfuðborgarsvæðinu sem að mér þykir vænt um og ég vill ekki að þú komir allt í einu á ferðinni og getir ekki stoppað vegna sumardekkjanna þinna.
dekkin eiga að hjálpa þér að stoppa fyrst og fremst, ekki endilega að komast áfram.
Re: Brjálað veður, hvernig er færðin í 101?
Sent: Þri 10. Jan 2012 19:49
af schaferman
ég var heppinn að fá ekki grjót í hauskúluna þarna,, eins og þið sjáið á myndunum þá var þetta slatti regn, reyndar fór einn risastór framan á bílinn líka,,