Síða 1 af 2

Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 19:45
af braudrist
Jæja, þá var maður að fá reikning frá Sjóvá fyrir bílatryggingar upp á ca. 122.000 kr.
Er þetta ekki svolítið mikið? Hvað eru þið að borga fyrir bílinn ykkar? Ég er með 2.0l bíl, 150 hestöfl og bara basic kaskótryggingu og ég hef ekki lent í neinu tjóni á árinu.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 19:53
af blitz
99' árgerð Yaris 1L = 67k á ári

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 19:58
af playman
Prufaðu að tala við TMI
http://www.tmi.is/forsida
þeir hafa alltaf reddað mér fínum tryggingum.
þeir senda mann til þín sem að fer yfir málin með þér, svo fer hann og hefur samband við önnur tryggingarfélög og fær
tilboð frá þeim sem að hann afhendir þér og þú svo ræður hvað þú gerir.
þetta er þér að kostnaðar lausu og það hvílir einginn skuldbynding.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:21
af vesi
birja á því að tala við þá um að þér finnist þetta frekar hátt,,, sjá hvort þeir geti ekki gert eithvað fyrir þig,,

ef ekki tala við hin félaugin, jafnel segja upp hjá sjóva og bíða eftir símtalinu, öll félaugin hringja alltaf aftur því þau vilja ekki missa kúnna..

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:25
af Kristján
talaðu við allar fáanlegar tryggignar á landinu og segðu það þú viljir tilboð og sjáðu hvað hver er með

svo er þú ert með fleiri tryggingar hjá þeim því meiri afsláttur og svona

svo eru það líka perks fyrir að vera hjá ymsum trygginafyrirtækjum en maður notar þá sjaldann

og enn eitt þá er yfirleitt meiri afsláttur fyrir að vera í sama banka og tryggingarfyrirtækið.

ef þú hefur bara beðið um kasko og ekkert annað hjá þeim þá værðu bara venjulega trygginu og gjaldið með því.

svo er þetta allt á árssamningi þannig skoðaðu vel og borga svo.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:26
af Tbot
braudrist skrifaði:Jæja, þá var maður að fá reikning frá Sjóvá fyrir bílatryggingar upp á ca. 122.000 kr.
Er þetta ekki svolítið mikið? Hvað eru þið að borga fyrir bílinn ykkar? Ég er með 2.0l bíl, 150 hestöfl og bara basic kaskótryggingu og ég hef ekki lent í neinu tjóni á árinu.



A reikningnum er sundurliðun hvað er venjuleg bílatrygging og hvað er kaskó. Kaskó kostar þig auka.
ekkert tjón á árinu, hvað með fyrri ár? tjón þá? Þá ertu ekki með neinn bónus.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:36
af TraustiSig
playman skrifaði:Prufaðu að tala við TMI
http://www.tmi.is/forsida
þeir hafa alltaf reddað mér fínum tryggingum.
þeir senda mann til þín sem að fer yfir málin með þér, svo fer hann og hefur samband við önnur tryggingarfélög og fær
tilboð frá þeim sem að hann afhendir þér og þú svo ræður hvað þú gerir.
þetta er þér að kostnaðar lausu og það hvílir einginn skuldbynding.


Mæli með þeim. Redduðu mér fínni bílatryggingu.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:54
af audiophile
Ég endaði hjá TM. Mjög fínir og sanngjarnir á bílatryggingar sérstaklega ef þú ert með meira tryggt hjá þeim.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:58
af GuðjónR
Er þetta ekki sama allstaðar? Ég er með hús og tvo bíla og hef farið marga hringi í að fá tilboð og stundum haft það á tilfinningunni að tilboðin kæmu frá Reiknistofu Tryggingafélaganna :nono

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 22:10
af appel
Ég þoldi ekki að fá svona risareikninga með gjalddaga eftir 1 viku frá tryggingafélögunum. Come on!!

Fór bara til elísabet og setti á visa kortið, nenni ekki að pæla í þessu meir.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 22:35
af Tesy
2005 Toyota RAV4 (4x4, 2L vél) = 110-110k á ári hjá TM með kaskó ofc.

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 22:49
af Kristján
appel skrifaði:Ég þoldi ekki að fá svona risareikninga með gjalddaga eftir 1 viku frá tryggingafélögunum. Come on!!

Fór bara til elísabet og setti á visa kortið, nenni ekki að pæla í þessu meir.


lætur þá bara setja þetta í mánaðarlegar borgannir

Re: Bílatryggingar

Sent: Sun 08. Jan 2012 22:58
af littli-Jake
TraustiSig skrifaði:
playman skrifaði:Prufaðu að tala við TMI
http://www.tmi.is/forsida
þeir hafa alltaf reddað mér fínum tryggingum.
þeir senda mann til þín sem að fer yfir málin með þér, svo fer hann og hefur samband við önnur tryggingarfélög og fær
tilboð frá þeim sem að hann afhendir þér og þú svo ræður hvað þú gerir.
þetta er þér að kostnaðar lausu og það hvílir einginn skuldbynding.


Mæli með þeim. Redduðu mér fínni bílatryggingu.


Mæli líka með þeim. Er að vinna hjá þeim. 122K fyrir bíl er einfaldlega of mikið. Mátt endielga henda á mig PM ef þú vilt að ég hjálpi þér með þetta

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 16:35
af pattzi
Þegar ég átti bílinn minn borgaði ég 39 þúsund Hjá Vís Corolla SI 1.6 93 árgerð reyndar var það alveg fyrst 88 þúsund :)

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 17:04
af jericho
Átti að borga 114þús fyrir Subaru Legacy árg. 2006, en með afsláttum vegna annarra trygginga o.þ.h. endaði ég með að borga 69þús kr fyrir árið 2011.

Þetta var hjá VÍS.

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 20:10
af Blackened
Borga ef ég man rétt 80þúsund fyrir 99módel Galant V6 2.5l og 69þúsund fyrir Suzuki GSX 750F 89módel.. alltof mikið samt!

Er hjá VÍS

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 20:19
af methylman
Passa sig á því að Kaskótryggja alls ekki bíl sem er eldri en 4-5 ára. Tryggingin er það dýr og endurgreiðslan lítil, miðað við sjálfsábyrgð að það borgar sig alls ekki.

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 20:21
af halli7
methylman skrifaði:Passa sig á því að Kaskótryggja alls ekki bíl sem er eldri en 4-5 ára. Tryggingin er það dýr og endurgreiðslan lítil, miðað við sjálfsábyrgð að það borgar sig alls ekki.

Það fer nú alveg eftir því hvernig bíll það er.

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 21:23
af Blackened
halli7 skrifaði:
methylman skrifaði:Passa sig á því að Kaskótryggja alls ekki bíl sem er eldri en 4-5 ára. Tryggingin er það dýr og endurgreiðslan lítil, miðað við sjálfsábyrgð að það borgar sig alls ekki.

Það fer nú alveg eftir því hvernig bíll það er.


haha já.. félagi minn er með 97módel bíl sem að hann fær greidda 1.7milljónir ef að hann eyðileggst.. og hefur nú ekkert alveg sérstaklega há iðgjöld ;)

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 21:50
af methylman
Blackened skrifaði:
halli7 skrifaði:
methylman skrifaði:Passa sig á því að Kaskótryggja alls ekki bíl sem er eldri en 4-5 ára. Tryggingin er það dýr og endurgreiðslan lítil, miðað við sjálfsábyrgð að það borgar sig alls ekki.

Það fer nú alveg eftir því hvernig bíll það er.


haha já.. félagi minn er með 97módel bíl sem að hann fær greidda 1.7milljónir ef að hann eyðileggst.. og hefur nú ekkert alveg sérstaklega há iðgjöld ;)


Bjartsýnismenn tryggingafélögin fara bara í matsskrá og draga svo 30% af

Re: Bílatryggingar

Sent: Þri 10. Jan 2012 23:12
af Blackened
methylman skrifaði:
Bjartsýnismenn tryggingafélögin fara bara í matsskrá og draga svo 30% af


þetta er amk það sem að stendur í tryggingaskilmálum.. bíllinn er sannarlega svona dýr þrátt fyrir aldur :)

Re: Bílatryggingar

Sent: Mið 11. Jan 2012 07:10
af pattzi
methylman skrifaði:Passa sig á því að Kaskótryggja alls ekki bíl sem er eldri en 4-5 ára. Tryggingin er það dýr og endurgreiðslan lítil, miðað við sjálfsábyrgð að það borgar sig alls ekki.


Verður að vera í kaskó ef það er t.d lán á bílnum.

Re: Bílatryggingar

Sent: Mið 11. Jan 2012 09:50
af svensven
Er ég Audi A4 sem er reyndar með Kaskó, ekki alveg viss til hvers en við erum allavega að borga rett um 100kall á ári hjá Verði

Re: Bílatryggingar

Sent: Fim 16. Feb 2012 14:58
af chaplin
Mér sýnist Sjóvá vera í fljótandi vitleysu.

Bílinn sem verið er að ræða er VW Fox 1.2L 2006 árg. Ódýr smábíll. Þegar ég keypti hann skráði ég hann til Sjóvá þar sem ég hafi verið þar í 3 ár.

Fékk sendan reikning fyrir 26.000kr á nýja bílnum og fannst það eðlilegt mv. að ég átti inni hjá þeim 40.000kr, ss. 66.000kr ársgj. án Kaskó.

En nei, svo var ekki raunin, 26.000kr fyrir 2 mánuði eða um 145.000kr fyrir árið mv. Kaskó (sem ég bað ekki um) annars væri það um 100.000kr án Kaskó.

Ég hringi og bið um að fá tilboð og eru þeir fastir á því að ekki sé hægt að gera neitt og að þetta sé algjört lámarksverð, þrátt fyrir að ég sé búinn að vera hjá þeim sl. 3 ár með gamla bílinn minn og ekkert skráð tjón. Flott mál, alveg súper!

Ég hringi svo í Vörð og þar hef ég ekki verið með skráðar tryggingar.

72.000kr án Kaskó - 98.000kr með Kaskó.

Gaman að sjá hvernig Sjóvá kemur fram við viðskiptavini og hvernig Vörður tekur á móti nýjum.

Bless Sjóvá.

Re: Bílatryggingar

Sent: Fim 16. Feb 2012 15:20
af ScareCrow
90þús af '92 árg af 1600 esi hondu skráð s.s. 125hö @ 980kg hjá verði...