Síða 1 af 1

Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:10
af Hargo
Hvaða almennu bílaverkstæði fá ykkar meðmæli þar sem lágt verð og góð þjónusta tvinnast saman? Þá er ég ekki að tala um umboðin. Má líka vera einstaklingur sem tekur að sér helstu almennu bílaviðgerðir í frítímanum.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:13
af astro
Fer allveg eftir því hvernig bíl þarf að gera við.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:15
af pattzi
Hef verslað við bílar og dekk það er reyndar á akranesi :)

aldrei borgað mikið miðað við önnur verkstæði

t.d bað ég um að láta skipta um bremsur hringinn skálar klossa diska og allan pakkan og laga ljós og öryggi og græjur

þeir sögðu við mig 55 þúsund en annað verkstæði hér sagði við mig 95 þúsund þannig það er ódýrara en annað sem er hérna á skaganum.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:19
af Hargo
Er að leita að verkstæði sem taka að sér Suzuki og Toyota bíla, sem eru líklega flest öll almennu verkstæðin enda algengir varahlutir í þessa bíla.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:22
af cartman
Bíla Og Dekkjaþjónustan Ehf í Kópavogi. Ég hef farið þangað í nokkur ár og ekkert nema topp þjónusta og verð.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:48
af axyne
þegar ég átti bíl leitaði ég yfirlett til Almenna bílaverkstæðið

veit sosem ekki hvernig verðin hjá þeim eru í samanburði við önnur verkstæði en ég var allavega sáttur við þá.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 18:58
af vesi
Hvað er að bílnum??
hvernig bíll og árg,

svo gætiru fengið flott svör hérna http://www.live2cruize.com/spjall/

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 19:37
af FriðrikH
Ég flakkaði á milli bílastæða þangað til ég fór á Bílvog, hef ekki farið annað síðan. Tímar sem þeir gefa mann standast alltaf og það er alltaf hringt í mann þegar búið er að bilanagreina upp á framhaldið. Mér hefur fundist þeir vera mjög heiðarlegir með allar viðgerðir og tilbúnir til að hjálpa manni við að finna ódýrar lausnir. Þeir redduðu mér m.a. í sumar með rándýra stýrisvél sem fór í Skoda sem ég átti, hann hringdi í partasölur út um allan bæ og fann notaða hluti til að redda þessu.
Svo hef ég heyrt frá mörgum mönnum sem eru mun fróðari um bíla en ég að bifvélavirkjarnir hjá þeim séu líka mjög færir.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 20:01
af lukkuláki

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 21:34
af sakaxxx
http://www.pitstop.is

hef farið til þeirra eitt skipti til að skipta um öxulhosu þeir gerðu það fyrir 50% minna en næst ódyrasta verkstæði sem ég hringdi í :happy

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 22:49
af methylman
Mæli með þessu verksæði snöggir, hægt að komast að innan nokkurra daga og verðið bara ágætt http://ja.is/hradleit/?q=toppur%20ehf%2 ... %A6%C3%B0i

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 22:53
af lukkuláki
methylman skrifaði:Mæli með þessu verksæði snöggir, hægt að komast að innan nokkurra daga og verðið bara ágætt http://ja.is/hradleit/?q=toppur%20ehf%2 ... %A6%C3%B0i


Toppur .. er það ekki Subaru BogL & IH bílar ? Eða taka þeir alla bíla ?

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 22:59
af Jss
Ég mæli með Aðalverkstæðinu Malarhöfða:

http://ja.is/u/adalverkstaedid-bifreidaverkstaedi-reykjavik/

Hafa reynst mér mjög vel sem og fleirum sem ég þekki, eru með þeim ódýrari sem ég veit um og vinna hlutina vel.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fim 05. Jan 2012 23:00
af Alexzo
Prófaður dekkjabær, þeir er með allt ódyr þarna.

Re: Bílaverkstæði - hvert skal leita?

Sent: Fös 06. Jan 2012 00:23
af methylman
lukkuláki skrifaði:
methylman skrifaði:Mæli með þessu verksæði snöggir, hægt að komast að innan nokkurra daga og verðið bara ágætt http://ja.is/hradleit/?q=toppur%20ehf%2 ... %A6%C3%B0i


Toppur .. er það ekki Subaru BogL & IH bílar ? Eða taka þeir alla bíla ?


Ég held það, en ég fór með Subaruinn minn þangað fyrir jólin og reikningurinn var undir kostnaðaráætlun frá öðrum aðilum, svo ég er mjög sáttur.

Ég geri við bæði Dell og HP \:D/