Síða 1 af 2

Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:35
af Robertas Denton
Fyrst maður var nú að skrá sig hingað inn þá má ég nú til með að hrósa Kísildalnum aðeins. Það eru nú ekki margir sem komast með hælana þar sem þeir Don Alfredo og Gubbi eigendur dalsins hafa tærnar. Þetta eru einhverjir þeir mestu öðlingar, ljúfmenni, fagmenn og dáðadrengir sem fyrirfinnast í tölvubransanum.

Ég er búinn að vera forfallinn dals fan síðan ég byrjaði fyrst að versla hjá þeim í Álfheimunum fyrir mörgum árum og hef ekki getað slitið mig frá þeim síðan þá. Það er alltaf heitt á könnunni hjá þeim þegar maður rennir í hlað og þeir félagar fagna manni í hvert skipti líkt og maður sé stríðshetja að snúa aftur heim eftir síðari heimstyrjöldina og svo er manni auðvitað boðið upp á bakkelsi að hætti dalsins. Maður kemur aldrei að tómum kofanum hjá þeim félögum þegar tölvumál eru annars vegar og ef ég ætti krónu fyrir hvert skipti sem þeir hafa leyst mín tölvuvandamál þá væri ég eflaust að mala gull í dag.

Ég gæti nefnt ótal mörg dæmi en það myndi taka mig allt árið að fara að rifja það upp. En ég verð þó að minnast á eitt atvik sem gerðist fyrir nokkrum árum og það var áður en þeir félagar fluttu í Síðumúlann. Ég hafði verið búinn að sitja sveittur yfir Wow í svona c.a. viku án þess að fara út fyrir hússins dyr og allt í einu þá kemur bara blue screen dauðans og ég vissi ekki hvað var á seyði. Svo í framhaldinu reyni ég að restarta tölvunni en ekkert gerist. Ég hringi seinna í nokkra vini mína sem eru mjög klárir í tölvumálum og bið þá að koma í heimsókn og aðstoða mig með tölvuna en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hjá þeim til að laga tölvuna þá gerist ekkert og tölvan er áfram steindauð og ég veit ekki mitt rjúkandi ráð. Þarna hélt ég að tölvan væri búin að gefa upp öndina og ég var sko alls ekki sáttur enda var þetta tölva sem kostaði á sínum tíma um það bil 450þús hjá EJS.

Þar sem ég var eins og belja á svelli í tölvumálum á þessum tíma þá hafði ég ekki hugmynd um hvað var að tölvunni en ég hugsaði með mér að nú yrði ég að kíkja í dalinn og koma tölvunni í hendur fagmanna áður en það yrði of seint. Svo mæti ég í dalinn áhyggjufullur og kvíðinn og bara í hálfgeru losti. Gubbi tekur á móti mér þegar ég kem inn og hann sá strax að það væri eitthvað alvarlegt að svo hann hóar í Alfreð sem var baka til og segir honum að flýta sér fram því að það sé 911 situation í gangi fram í búð.

Ég hlýt að hafa litið út eins og andsetinn maður þegar ég kom inn en Alfreð sem hefur marga fjöruna sopið náði að róa mig niður og sagði að hann og Gubbi myndu sameina krafta sína til bjarga tölvunni frá glötun. Gubbi hringir svo í leigubíl fyrir mig því ég var í engu ástandi til að keyra og sagði mér að fara heim og taka eina róandi og svo myndu hann og Alfreð hafa samband á morgun og láta mig vita um stöðu mála. Morguninn eftir þá hringir Gubbi í mig á slaginu 8 og lætur mig vita að tölvan sé komin í lag og að hún sé orðin eins og ný og að þeir hafi meira að segja uppfært úr win98 yfir í win2k. edited: Winxp!

En hvað haldið þið, þá höfðu þeir félagarnir bara vakið alla nóttina og loksins þegar klukkan var langt gengin í 7 þá fundu þeir út hvað var að og svo var tölvunni bara kippt í lag. Gubbi hafði víst ekki sofið dúr í meira en sólarhring þegar hann hringdi í mig, en svona eru þessir menn bara í hnotskurn. Þeir vilja allt fyrir viðskiptavini sína gera og gott betur, en ekki nóg með það og svo þegar ég kom og sótti tölvuna þá spurði ég þá félaga hvað ég skuldaði þeim nú fyrir viðgerðina en hvorugur þeirra vildi rukka mig krónu fyrir og þeir sögðust bara hafa haft ánægju af því að vinna saman og gera við tölvuna mína.
Þegar ég var að fara út með tölvuna þá kallaði Alfreð á eftir mér og sagði: þú mátt kannski koma með tvö kalda næst þegar þú kemur og blikkaði öðru auganu og skellihló svo. Það væri gaman að sjá hvort að einhver annar þarna úti lumi á svipuðum sögum af Dalnum, en ég efast reyndar ekki um að svo sé.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:39
af Klemmi
Bætti inn nokkrum enter-slögum fyrir þig væni :)

Var mjög erfitt að lesa þetta án þeirra.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:41
af astro
Cocaine is a helluva drug !

-From Rick James to you SIR

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:44
af Robertas Denton
Klemmi skrifaði:Bætti inn nokkrum enter-slögum fyrir þig væni :)

Var mjög erfitt að lesa þetta án þeirra.


Ég vissi að ég hafði gleymt einhverju

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:50
af Gúrú
Var World of Warcraft til þegar að Windows 2000 var til sölu?

Var Kísildalur til þegar að Windows 2000 var til sölu?

Má koma með falskar reynslusögur? :D

Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:53
af tdog
Og komstu með ölið þegar þú fórst næst?


-----
Kísildalur ehf er með 2005 kennitölu svo ég giska á að þetta sé feik.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 01:59
af ZiRiuS
Það vantar fleiri háfleiga einstaklinga á þetta spjall, snilldin ein.

Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 02:00
af tdog
Skemmtileg lesning samt, ágætt svona í skammdeginu.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 02:01
af Robertas Denton
Þetta átti auðvitað að vera winxp en ekki win2k. My bad!

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 02:10
af Gúrú
Robertas Denton skrifaði:Þetta átti auðvitað að vera winxp en ekki win2k. My bad!


Og hvernig spilaðirðu þá World of Warcraft (sem að var gefinn út fyrir XP) fyrir þann tíma? 8-[

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 02:18
af Robertas Denton
Ég man nú ekki alveg nákvæmlega hvernig það virkaði en ég gat á sínum tíma spilað wow á gamla win98 stýrikerfinu.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 02:21
af vesley
:lol:

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 03:05
af braudrist
*sigh* synd að svona fífl séu að bætast við á Vaktina, hvaðan kemur þetta lið? bland.is?

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 03:30
af kizi86
braudrist skrifaði:*sigh* synd að svona fífl séu að bætast við á Vaktina, hvaðan kemur þetta lið? bland.is?

synd að það sé til svona fólk eins og þú sem byrjar á að móðga nýkomna í staðinn fyrir að bjóða hann velkominn hingað á þetta spjallborð..

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 04:13
af ASUStek
hvernig væri að hugsa áður en að skjóta?




Mynd

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 07:59
af Daz
Tilhugsunin um 450 þúsund króna tölvu að keyra Windows 98 árið 2004/05 er nú frekar fyndin, þ.e.a.s. þetta væri þá kannski rosalega P3 900 mhz vél með 256 mb af minni, jafnvel með tvö voodoo 3 kort í SLI!

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 09:02
af biturk
kizi86 skrifaði:
braudrist skrifaði:*sigh* synd að svona fífl séu að bætast við á Vaktina, hvaðan kemur þetta lið? bland.is?

synd að það sé til svona fólk eins og þú sem byrjar á að móðga nýkomna í staðinn fyrir að bjóða hann velkominn hingað á þetta spjallborð..


þessi einstaklingur hefur nú ekki lagt sig fram við að vera velkominn hjérna hingað til.....


annars er þessi saga útúr kú og mér er hreint alls ekki skemmt við að lesa hana

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 09:19
af kizi86
biturk skrifaði:
kizi86 skrifaði:
braudrist skrifaði:*sigh* synd að svona fífl séu að bætast við á Vaktina, hvaðan kemur þetta lið? bland.is?

synd að það sé til svona fólk eins og þú sem byrjar á að móðga nýkomna í staðinn fyrir að bjóða hann velkominn hingað á þetta spjallborð..


þessi einstaklingur hefur nú ekki lagt sig fram við að vera velkominn hjérna hingað til.....


annars er þessi saga útúr kú og mér er hreint alls ekki skemmt við að lesa hana

samt.. þótt aðrir hagi sér eins og fávitar, þá gefur það ekki honum sjálfkrafa leyfi til þess líka..

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 09:21
af biturk
kizi86 skrifaði:
biturk skrifaði:
kizi86 skrifaði:
braudrist skrifaði:*sigh* synd að svona fífl séu að bætast við á Vaktina, hvaðan kemur þetta lið? bland.is?

synd að það sé til svona fólk eins og þú sem byrjar á að móðga nýkomna í staðinn fyrir að bjóða hann velkominn hingað á þetta spjallborð..


þessi einstaklingur hefur nú ekki lagt sig fram við að vera velkominn hjérna hingað til.....


annars er þessi saga útúr kú og mér er hreint alls ekki skemmt við að lesa hana

samt.. þótt aðrir hagi sér eins og fávitar, þá gefur það ekki honum sjálfkrafa leyfi til þess líka..



nei, það er alveg rétt hjá þér en fyrsta framkoma er yfirleitt sú sem menn muna lengst ;)

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 11:50
af daniellos333
Afbragðs menn, ég hef líka alltaf notið þess að stunda viðskipti við þá.

edit:

Eftir að lesa hinar athugasemdirnar hérna, hvað í fjandanum er að ykkur? Hvað gerði hann rangt? Ekkert af því að hrósa þessum gaurum í kísildalnum, fínustu náungar og eiga skilið svona meðmæli.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 12:21
af GuðjónR
Að sjálfsögðu er þetta skáldsaga dauðans en ég hafði samt gaman af því að lesa hana.

Góð saga á aldrei að gjalda sannleikans.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 13:33
af tlord
Falleg jólasaga sem sannarlega yljar og gleður.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 15:17
af Robertas Denton
Ef ég set mig spor þeirra sem lesa þessa frásögn mína þá skil ég það vel af hverju sumir hafa þá skoðun að hún sé ósönn, því satt best að segja þá hljómar þetta eins og úr einhverri lygasögu. Ég neita því ekki. En þrátt fyrir það þá er þetta dagsatt og gerðist í raun og veru og þeir félagar í dalnum munu staðfesta það ef eftir því verður leitað.

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 15:26
af GuðjónR
Robertas Denton skrifaði:Ef ég set mig spor þeirra sem lesa þessa frásögn mína þá skil ég það vel af hverju sumir hafa þá skoðun að hún sé ósönn, því satt best að segja þá hljómar þetta eins og úr einhverri lygasögu. Ég neita því ekki. En þrátt fyrir það þá er þetta dagsatt og gerðist í raun og veru og þeir félagar í dalnum munu staðfesta það ef eftir því verður leitað.


Biblían er líka sönn, spurðu bara Guðbjart :happy

Re: Fagmennska í fyrirrúmi - Kísildalur

Sent: Mið 28. Des 2011 15:49
af Páll
GuðjónR skrifaði:
Robertas Denton skrifaði:Ef ég set mig spor þeirra sem lesa þessa frásögn mína þá skil ég það vel af hverju sumir hafa þá skoðun að hún sé ósönn, því satt best að segja þá hljómar þetta eins og úr einhverri lygasögu. Ég neita því ekki. En þrátt fyrir það þá er þetta dagsatt og gerðist í raun og veru og þeir félagar í dalnum munu staðfesta það ef eftir því verður leitað.


Biblían er líka sönn, spurðu bara Guðbjart :happy


=D>