Síða 1 af 1

Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 18:01
af kazzi
Ég segi bara eitt .ég versla bara við björgunarsveitirnar annað kemur ekki til greina.þeir vinna of gott starf til að hægt sé að líta fram hjá þeim.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 18:05
af bulldog
x2 þeir sem selja þetta í einkasölu koma ekki að bjarga þér ef þú þarft á því að halda ...

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 18:19
af GuðjónR
kazzi skrifaði:Ég segi bara eitt .ég versla bara við björgunarsveitirnar annað kemur ekki til greina.þeir vinna of gott starf til að hægt sé að líta fram hjá þeim.

bulldog skrifaði:x2 þeir sem selja þetta í einkasölu koma ekki að bjarga þér ef þú þarft á því að halda ...

GuðjónR skrifaði:Ég veit að mörgum finnst að björgunarsveitirnar eigi að vera einir um að selja flugelda, ég er ekki að fiska eftir þeirri skoðun ykkar heldur hvar er hagstæðast að versla.

Ontopic please.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 18:25
af DabbiGj
Stundum á maður ekki að versla það ódýrasta.

Er bara að segja.

Annars sýnast mér verðin vera frekar svipuð og ég held að björgunarsveitirnar standi vel að því að vera oft styrktir um að fá að vera frítt inni í sölustöðum og að vera ekki að borga laun o.s.f.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 20:05
af kallikukur
Það er bara þvílíkt ógeð að einkaaðilar séu að selja flugelda, græðgi á háu stigi.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 21:01
af Bjosep
kallikukur skrifaði:Það er bara þvílíkt ógeð að einkaaðilar séu að selja flugelda, græðgi á háu stigi.

Það er bara gott að björgunarsveitunum sé veitt aðhald í flugeldasölu. Það kemur annarsvegar fyrir að þeir keyri verðið upp úr öllu valdi (sem þeir myndu svo sannarlega gera) og hinsvegar verða þeir ekki eins háðir þessari einu fjármögnun og lenda því í minni vandræðum ef flugeldasala er léleg það árið eða þeir brenna lagerinn sinn.

Kosturinn við það að versla við björgunarsveitirnar er hinsvegar sá að þú veist alveg að hverju þú ert að ganga hvað snertir gæði flugeldanna þar sem þetta eru nánast allt sömu terturnar ár eftir ár. Maður veit eiginlega aldrei að hverju maður er að ganga með óþekktar skotkökur og staka flugelda alla jafna og það er sjaldnast neitt að marka myndina á umbúðunum.

Nema náttúrulega flugeldasalan sé með mynd eða lýsingu af sprengingunni, ég er þó efins um að þær séu almennt með slíkar lýsingar.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 21:10
af g0tlife
kallikukur skrifaði:Það er bara þvílíkt ógeð að einkaaðilar séu að selja flugelda, græðgi á háu stigi.

plís seigðu mér að þú sért að djóka ? Eru ekki megnið af fólkinu hérna enþá hjá mömmu og pabba í skóla eða bara vinnu og skulda ekkert ? Þoli ekki litla stráka vera bera sig saman við karlmann

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 21:31
af Blackened
Ég segi nú bara fyrir mig að ef að fólki er svona rosalega umhugsað um björgunarsveitirnar (sem er svosem alveg sjálfsagt).. afhverju leggur það þá ekki inn peninga hjá þeim? það rennur þá allt til þeirra
t.d. 1000kr á mánuði sem er nú ekki stór fjárhæð.. og þá geta bara allir verslað flugelda þar sem að þeim sýnist!?

Eða verður fólk sem að kaupir kannski ekki flugelda sjálft.. klofið yfir því að aðrir styrki ekki björgunarsveitirnar?

Finnst þetta alveg fáránlegt hvað það má ekki minnast á flugelda sem að koma ekki frá björgunarsveitum þá brjálast allir yfir því að einkaaðilar bjargi þér ekki osfrv.

..ekki það að mér finnst svoem að björgunarsveitirnar ættu að fá peningana sem að kirkjan fær frá ríkinu :-" ...en það er nú svosem allt annar handleggur ;)

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 21:52
af ASUStek
Blackened skrifaði:Ég segi nú bara fyrir mig að ef að fólki er svona rosalega umhugsað um björgunarsveitirnar (sem er svosem alveg sjálfsagt).. afhverju leggur það þá ekki inn peninga hjá þeim? það rennur þá allt til þeirra

1+

edit:hjálpað hef ég með því að leyfa slökkvuliði og björgunarsveit að nota lyftara til að flytja flugelda og notað skúrinn hjá mér sem var bílaverkstæði sem reykæfingu og bát sem þeir æfðu sig meðal annars

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Sun 25. Des 2011 22:32
af kallikukur
g0tlife skrifaði:
kallikukur skrifaði:Það er bara þvílíkt ógeð að einkaaðilar séu að selja flugelda, græðgi á háu stigi.

plís seigðu mér að þú sért að djóka ? Eru ekki megnið af fólkinu hérna enþá hjá mömmu og pabba í skóla eða bara vinnu og skulda ekkert ? Þoli ekki litla stráka vera bera sig saman við karlmann

Karlmanninn sem vill fá fleiri flugelda (víí dót) þótt það þýði að einkaaðili græði og björgunarsveitir/góðgerðarfélög missi styrk.

"plís seigðu mér" fleiri brandara. =D>

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 08:17
af tveirmetrar
Blackened skrifaði:Ég segi nú bara fyrir mig að ef að fólki er svona rosalega umhugsað um björgunarsveitirnar (sem er svosem alveg sjálfsagt).. afhverju leggur það þá ekki inn peninga hjá þeim? það rennur þá allt til þeirra
t.d. 1000kr á mánuði sem er nú ekki stór fjárhæð.. og þá geta bara allir verslað flugelda þar sem að þeim sýnist!?

Eða verður fólk sem að kaupir kannski ekki flugelda sjálft.. klofið yfir því að aðrir styrki ekki björgunarsveitirnar?

Finnst þetta alveg fáránlegt hvað það má ekki minnast á flugelda sem að koma ekki frá björgunarsveitum þá brjálast allir yfir því að einkaaðilar bjargi þér ekki osfrv.

..ekki það að mér finnst svoem að björgunarsveitirnar ættu að fá peningana sem að kirkjan fær frá ríkinu :-" ...en það er nú svosem allt annar handleggur ;)

x2

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 11:56
af GuðjónR
Úfff...er svo nískur þegar kemur að því kveikja í peningum.
Get samt ekki haft þetta af börnunum sem hlakka meira til en að opna pakkana á jólunum.
Held að bestu kaupin fyrir "börnin" séu þetta bland:

Einn svona pakki.
og
einn svona pakki.

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 14:39
af BugsyB
http://super-flugeldar.com/

þessir eru lang bestir og ódýrastir og styrkja mærastyrksnefnd sem gerir meira fyrir fátækafólkið en björgunarsveitirnar sem eru mest í því að bjarga fólki sem hefur efni á því að ferðast upp á fjöll

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 15:35
af hauksinick
g0tlife skrifaði:
kallikukur skrifaði:Það er bara þvílíkt ógeð að einkaaðilar séu að selja flugelda, græðgi á háu stigi.

plís seigðu mér að þú sért að djóka ? Eru ekki megnið af fólkinu hérna enþá hjá mömmu og pabba í skóla eða bara vinnu og skulda ekkert ? Þoli ekki litla stráka vera bera sig saman við karlmann

2x

Talandi um græðgi samt. Eru þá ekki allir íslenskir sjálfstæðir atvinnurekendur með græðgi á háu stigi?

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 16:14
af playman
erm.... vantar ekki helling inní þennan þráð? eða er ég bara að verða geðveikur hérna?

Re: Hvar er ódýrast að versla flugelda?

Sent: Mán 31. Des 2012 16:16
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:Úfff...er svo nískur þegar kemur að því kveikja í peningum.
[...]

Alveg sama hér. Kveiki kannski í 1-2 stjörnublysum, annars er sprengt nógu djöfulli mikið til að maður geti horft á aðra sprengja upp hundraðþúsundkalla og bíta í tunguna á sér á meðan.