Síða 1 af 1
Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 01:09
af cure
kveldið
í hvaða fiskbúð fæ ég vestfirska skötu sem er allra kæstust ?? finnst gott að brenna allveg í spað í munninum
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 01:52
af Arnzi
Vonandi er þetta grín.
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 02:03
af gardar
Hún er fín í fiskbúðinni Hafberg
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 02:06
af KermitTheFrog
Hvergi
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 02:09
af cure
gardar skrifaði:Hún er fín í fiskbúðinni Hafberg
Skoða það takk fyrir
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 03:36
af Black
færð skötu í raspi í nóatúni,eru líka með Orly skötu,og skötubollur og skötubuff fínt í hamborgarabrauðið
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 03:45
af Ripparinn
Ég held mig bara við saltfiskinn..
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 07:28
af g0tlife
átt að fara til litlu kallana sem gera fisk í skóla, vinnu og þannig. Færð meira fyrir minna
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 09:28
af biturk
við keiptum í gær skötu hjá samkaup, ekkert tindabykkju ógeð, heldur þykk og VEL kæst, manni sveið í augun þegar hún var borin upp að munninum
mæli hiklaust með henni, hún rann ljúft niður í gærkveldi
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 13:16
af schaferman
Vestfirðirnir anga núna
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 17:32
af bulldog
Ripparinn skrifaði:Ég held mig bara við saltfiskinn..
Eymingi
Fáðu þér almennilega vel kæsta Vestfirska skötu
Þú ert íslendingur !!!!!!
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 17:34
af Moquai
oj skata
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 17:42
af bAZik
bulldog skrifaði:Eymingi
Fáðu þér almennilega vel kæsta Vestfirska skötu
Þú ert íslendingur !!!!!!
Ohh, staðalímyndir.
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 18:39
af schaferman
það sem flestir fyrir sunnan kalla vel sterkt, er nú bara bragðdauf skata hjá okkur hér fyrir vestan,augnhárin eiga að sviðna á manni
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:40
af flottur
ég fór í hádegisskötu hjá fiskbúðinni Hafberg(held að hún heitir það) sem er rétt hjá MS skólanum, hún var bara helvíti fín þar en fannst hún samt ekki alveg nógu kæst sko.
en í morgun um 9 leitið ákvað ég að fá mér hákarl og smá mjólk var það það besta sem hægt er að gera svona rétt í morgunsárið
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:48
af cure
ég hringdi í fiskbúðina Hafberg og spurði hvort þeir ættu munntæju kæsta skötu og hann svaraði því játandi, var að klára með tilheyrandi hóstaköstum og jú jú það bruni og skinn tæjur í munninum á mér þannig þeir stóðu við sitt
er sáttari en Hemmi Gunn og Ómar Ragnars til samans
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:52
af lukkuláki
Ha ha ha ha ha þetta er trick question ! Það er ekki til neitt sem heitir "góð skata"
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:55
af svanur08
Af hverju talar fólk svona mikið um skötuna en ekki jólasteikina?
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:57
af cure
svanur08 skrifaði:Af hverju talar fólk svona mikið um skötuna en ekki jólasteikina?
það fylgir bjór, skot og fleirra með skötunni
maður er bara heppinn að koma 1 bita ofan í sig á morgun
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:59
af svanur08
cure82 skrifaði:svanur08 skrifaði:Af hverju talar fólk svona mikið um skötuna en ekki jólasteikina?
það fylgir bjór, skot og fleirra með skötunni
maður er bara heppinn að koma 1 bita ofan í sig á morgun
Já ég borða ekki skötu er samt að fá mér bjór
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 19:59
af cure
skál fyrir því
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 20:00
af svanur08
cure82 skrifaði::happy skál fyrir því
skál í botn!
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Fös 23. Des 2011 20:01
af cure
tek því 1 2 og núna !!
Re: Hvar fæ ég góða skötu ?
Sent: Lau 24. Des 2011 05:39
af gardar
cure82 skrifaði:ég hringdi í fiskbúðina Hafberg og spurði hvort þeir ættu munntæju kæsta skötu og hann svaraði því játandi, var að klára með tilheyrandi hóstaköstum og jú jú það bruni og skinn tæjur í munninum á mér þannig þeir stóðu við sitt
er sáttari en Hemmi Gunn og Ómar Ragnars til samans
Flott að heyra
svanur08 skrifaði:Já ég borða ekki skötu er samt að fá mér bjór
Þá ertu bara alcoholisti