Síða 1 af 2
Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:19
af Gilmore
Hvað þýðir þetta?
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/12/2 ... _a_netinu/Ég versla töluvert af netinu og ég borga fullan virðisaukaskatt af öllu þegar varan er tollafgreidd. Er þessi skattur viðbót? Það mundi gera útaf við alla netverslun!!
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:25
af Jón Ragnar
Held að þetta þýði bara skítafréttir
Verður ómögulegt að versla af Steam/Origin ofl
Sé samt ekki hvernig þeir eiga að rukka þetta
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:25
af Klemmi
Nei, það er verið að tala um þegar þú kaupir þér t.d. hugbúnað á netinu og sækir hann svo, s.s. enginn eiginlegur hlutur sem kemur inn til landsins sem tollurinn fær í hendurnar og tollar.
Þetta á því við um t.d. tölvuleiki á Steam, hugbúnað, tónlist frá Apple-Store o.s.frv.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:26
af Daz
"Rafrænt afhent þjónusta" er lykilorðið hérna. Leikir á steam, rafbækur á amazon osfrv. Augljóslega ertu ekki að fara að borga vsk tvisvar.
Þetta verður bara partur af verðinu sem við borgum og Steam/whatever borga ríkinu þessa upphæð.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:31
af Gilmore
Auðvitað.....
Sem þýðir að þeir sem hafa verið að kaupa þetta löglega fara bara að hala þessu niður ólöglega..........kemur ekkert í kassann af þessum skatt.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:37
af Fletch
Hvernig í ósköpunum ætla þeir að fylgjast með þessu?
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:41
af Danni V8
Vá hvað ég mun bara fá einhvern erlendis til að versla fyrir mig og senda mér sem Gift á Steam/Origin.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:48
af blitz
...proxy / playme.tv / unlock-us ....
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 11:57
af Daz
Fletch skrifaði:Hvernig í ósköpunum ætla þeir að fylgjast með þessu?
Ábyrgðin hlýtur að liggja söluaðila megin. Þeir hafa sitt kerfi til að vita hvar þú býrð og skila gjöldum eftir því. Ríkið fer varla að eltast við nema þessa allra stærstu og eins og kemur fram í fréttinni þá eru Amazon nú þegar búnir að setja þetta upp hjá sér. Spurning að maður verði duglegur að versla á Steam útsölunni fyrir áramótin bara.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:03
af kubbur
vara sem kostar 4 dollara kostar þá 617 kr ísl (491*1.255)
söluaðilinn á að sjá um að rukka þetta þannig að td ef maður verslar af amazon þá borgar maður strax fullt gjald, ættum að sjá bara heildarupphæðina þegar við verslum
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:14
af Daz
kubbur skrifaði:vara sem kostar 4 dollara kostar þá 617 kr ísl (491*1.255)
söluaðilinn á að sjá um að rukka þetta þannig að td ef maður verslar af amazon þá borgar maður strax fullt gjald, ættum að sjá bara heildarupphæðina þegar við verslum
Bara þegar þú ert að kaupa þér "rafrænt afhenta þjónustu“. Sem almenn verslun á Amazon og Ebay er t.d. ekki. Þá borgarðu bara gjöldin þegar varan skilar sér til landsins eins og áður.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:15
af GuðjónR
Meira fasistaríkið sem við búum í. Er ekki nóg að borga VSK. í því landi sem gögnin koma frá?
Og annað, þegar tollurinn reiknar gjöld þá reiknar hann gjöld á sendingarkostnað líka, reyna þeir þá ekki að finna út hvað niðurhalið kostar og rukka vsk af því?
Þetta kemur til með að auka ólöglegt niðurhal.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:19
af Daz
GuðjónR skrifaði:Meira fasistaríkið sem við búum í. Er ekki nóg að borga VSK. í því landi sem gögnin koma frá?
Og annað, þegar tollurinn reiknar gjöld þá reiknar hann gjöld á sendingarkostnað líka, reyna þeir þá ekki að finna út hvað niðurhalið kostar og rukka vsk af því?
Þetta kemur til með að auka ólöglegt niðurhal.
Þú borgar nú þegar vsk af "niðurhalinu" (nema þú sért að stela þráðlausa netinu af nágranna þínum). Skv venju ættirðu þá ekki að borga VSK í því landi sem þú ert að kaupa hlutinn, samanber t.d. að amazon.co.uk dregur breskann VSK frá vörum sem þú pantar til Íslands.
Gjöld eru alltaf borguð af sendingarkostnaði, sama hvort þú ert Jón Jónson eða Karl K. Karlson, þar sem sendingarkostnaður ER partur af vöruverðinu.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:45
af kubbur
hver væri þá sendingarkosnaður af td portal 2 eða modern warfare ef maður kaupir þessa leiki rafrænt ?
og þá hvað ef maður dlar leiknum oft ?
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:49
af Daz
kubbur skrifaði:hver væri þá sendingarkosnaður af td portal 2 eða modern warfare ef maður kaupir þessa leiki rafrænt ?
og þá hvað ef maður dlar leiknum oft ?
Nú hef ég áhyggjur. Svörum þessu samt.
Hver er sendingarkostnaðurinn núna? Býstu við að hann sé að breytast?
Og hvað með það ef maður sækir sama hlutinn oft? Hefurðu áhyggjur af erlenda niðurhalinu þínu?
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 13:59
af Bjosep
GuðjónR skrifaði:Meira fasistaríkið sem við búum í. Er ekki nóg að borga VSK. í því landi sem gögnin koma frá?
Og annað, þegar tollurinn reiknar gjöld þá reiknar hann gjöld á sendingarkostnað líka, reyna þeir þá ekki að finna út hvað niðurhalið kostar og rukka vsk af því?
Þetta kemur til með að auka ólöglegt niðurhal.
Steam hlýtur að vera að greiða vsk í BNA af seldum leikjum hvort sem þeir fara til Íslands eða innan BNA. Er ekki bara breytingin að núna að Steam mun borga vaskinn til Íslands en ekki BNA. Neytandinn á ekki að vera tvískattaður. Það kann reyndar að vera leikirnir muni hækka eitthvað þar sem íslenski vsk er líklegast hærri en sá bandaríski.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 14:03
af GuðjónR
Daz skrifaði:kubbur skrifaði:hver væri þá sendingarkosnaður af td portal 2 eða modern warfare ef maður kaupir þessa leiki rafrænt ?
og þá hvað ef maður dlar leiknum oft ?
Nú hef ég áhyggjur.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 14:21
af Olafst
Bjosep skrifaði:íslenski vsk er líklegast hærri en sá bandaríski.
Heldur betur.
Enginn eiginlegur vsk í USA heldur notast þeir við eitthvað sem þeir kalla söluskatt sem getur verið frá 0-13%(misjafnt eftir ríkjum).
Sjá nánar á
http://en.wikipedia.org/wiki/Value_added_tax
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 14:29
af Daz
Olafst skrifaði:Bjosep skrifaði:íslenski vsk er líklegast hærri en sá bandaríski.
Heldur betur.
Enginn eiginlegur vsk í USA heldur notast þeir við eitthvað sem þeir kalla söluskatt sem getur verið frá 0-13%(misjafnt eftir ríkjum).
Sjá nánar á
http://en.wikipedia.org/wiki/Value_added_tax
VSK = VAT = söluskattur (meira og minna fyrir okkur neytendur í það minnsta). Athugið samt að vsk af rafbókum er bara 7%, svo það er ekki svo mikil hækkun/breyting.
Versta afleiðingin af þessu væri náttúrulega sú að einhverjar búðir gætu lokað á íslendinga, því það sé of mikið vesen að setja sölukerfið sérstaklega fyrir þá. Ekki að ég hafi heyrt af því eða finnist það endilega líklegt, en það er sannarlega möguleiki.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 14:34
af rapport
Mér finnst þetta í raun eðlilegt.
Að DL Win7 beint frá Microsoft kostar X en að kaupa diskinn út úr búð kostar X + sendingarkostnaður + VSK.
Það á að borga skatt af "virðisauka" og í raun ekkert óeðlilegt við það.
ÞAð kemur manni bara á óvart að íslenska ríkið gangi svona langt þegar ríkið hefur enga leið til að enforca þessu.
Hvað með t.d. póker, mun bætast VSK á s.s. að 1000 kr sem ég greiði verði eingöngu að 800 kr. inneign á pókersiðu?
Þetta mun floppa feitt, I feel it in my bones... 8==8 8==8 8==8 8==8
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 14:41
af einarhr
Hvernig ætlar Scatman að hafa yfirsýn á þessu, það eru fleir þúsund netverslanir til í heiminum sem selja rafræna vöru? Sé fyrir mér að það verði bara stóru netverslaninar sem byrja á þessu sem þíðir að Íslendingar finna sér aðra og ódýrari leið til að kaupa rafrænar vörur.
Virðisaukaskattur (vsk) og Value Added Tax (vat) er sami skatturinn og ef þú þýðir enskuna í íslensku þá færð þú út Virðisaukaskattur. Hann er hinsvegar mismunandi á milli landa og eru skattar yfirleytt frekar lágir í USA en þú td. sem túristi og ferð á veitingahús þá þarft þú að punga út ca 25% í tipps en bara nokkur prósent í vsk.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 15:02
af Klemmi
Ég verð samt að vera sammála Rapport, mér þykir þetta ekkert annað en eðlilegt, en það verður erfitt að framfylgja þessu þar sem þetta þarf að vera gert í samráði við síðurnar úti, og hætt við að einhverjar ákveði að hætta að selja Íslendingum þar sem við erum mjög lítill markaðshópur og ekki víst að vesenið borgi sig fyrir þá
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 16:01
af braudrist
Nú gengu þeir of langt!
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 16:03
af Daz
einarhr skrifaði:Hvernig ætlar Scatman að hafa yfirsýn á þessu, það eru fleir þúsund netverslanir til í heiminum sem selja rafræna vöru? Sé fyrir mér að það verði bara stóru netverslaninar sem byrja á þessu sem þíðir að Íslendingar finna sér aðra og ódýrari leið til að kaupa rafrænar vörur.
Virðisaukaskattur (vsk) og Value Added Tax (vat) er sami skatturinn og ef þú þýðir enskuna í íslensku þá færð þú út Virðisaukaskattur. Hann er hinsvegar mismunandi á milli landa og eru skattar yfirleytt frekar lágir í USA en þú td. sem túristi og ferð á veitingahús þá þarft þú að punga út ca 25% í tipps en bara nokkur prósent í vsk.
Nóg til af netverslunum, en þetta snýst bara um netverslanir sem selja RAFRÆNAR vörur. Það eru ekkert svo margar sem selja slíkt.
Svo skil ég ekki alveg samanburðinn á tipps og VSK, annað rennur í vasa starfsmann sem partur af launum, hitt er skattlagning sem rennur til ríkisins.
Re: Virðisaukaskattur hjá Netverslunum!
Sent: Fim 22. Des 2011 16:23
af einarhr
Enda tók ég fram Rafræn Vörur í mínu innleggi!. Það er haugur af fyrirtækjum sem selja forrit og leiki á netinu, í USA, Evrópu og Asíu og þá er ég ekki að tala um Risana eins og Steam og Amazon. Ég kaupi td stóran hluta af mínum tölvuleikjum hjá Netverslun í Tævan. Eitthvað hlítur það að kosta fyrir Ríkið að ganga frá öllum þessum samningum við tugi landa í heiminum og hef ég enga trú á því að allar netverslanir í heiminum sem selja Rafræna vöru fái þessi skilaboð frá Steina Joð.
Ég hefði getað orðað þetta betur varðandi vsk og tipps. Vsk í vissum löndum getur verið lítil prósentutala eins og kom fram áður í þessum þræði þá er vsk ekki há prósenta í USA en á móti getur komið annar kostnaður sem kaupandi þarf að greiða. Þetta hefur ekkert með netverslun að gera en ef þú kaupir þjónustu í USA þá þurfa allir að fá þjórfé fyrir td að setja í innkaupapokana fyrir þig. Þetta á kanski meir við í umræðu um skatta yfir höfuð og hafa þeir sem ferðast hafa til USA kynnst þessu af eigin reynslu.