Síða 1 af 2

Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 03:58
af Ripparinn
Ég bara VARÐ að gera einn þráð um þetta, en það er eldri kona að vinna í nesradíó og kanski einhver ykkar hafi "lent" í henni og séuð með sögur.

Ég lenti í henni um daginn þegar ég var að fara að kaupa hátalara, ég var buinn að tala við hana í um 5 mínæutur þá var hún buinn að láta mig hafa það óþvegið, segja mér að ég gæti ekki tengt þetta og ég ætti að koma með þetta til þeirra því þar eru allvöru fagmenn, sem ég trúi allveg jújú, en ég kann þetta allveg og hef gert þetta við þónokkra bíla, síðan hringdi síminn og hún ákvað bara að svara í hann þegar ég og hún erum í miðjum viðskiptum, þá fékk ég allveg nóg og sagði við hana að ég ætli annað að kaupa hátalara.. :/

Hefur einhver lent í henni ?

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 04:11
af Carragher23
Þessi kelling er aaaalveg! Hún er einfaldlega óþolandi.

Veit pérsónulega um marga sem versla ekki þarna, þar með talinn ég.

http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... 8-nesradio

http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... nesrad%EDo

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 04:35
af Ripparinn
shiit, ég fór þangað lika fyrir 8dögum eða svo og ætlaði að kaupa snúrukit, juju ekkert mál, hún sýndi mér nokkur kit, og svo spurði hún mig, ætlaru að setja þetta í sjálfur, ég bara uuu já, þá fauk allveg í hana. Spurði mig hvort ég væri mentaður rafkerfisfræðingur og væri með sveinspróf í rafeindarfræði. Svo spurðist ég eftir radarvara og hún neitaði að selja mér hann því ég er svo ungur enþá og sagði mér að fara í húsasmiðjuna og fá mér spítukubb undir bensíngjöfina

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 04:47
af Páll
Keypti spilara af henni um daginn, hún var ekkert nema almennileg við mig.

Hinsvegar kom inn maður og var að láta hana vita af stórri bifreið sem væri í gangi þarna rétt hjá þeim, hún snappaði alveg og sagði að hún væri í viðgerð og ekki væri hægt að gera við hana nema hafa hana í gangi.

Þá sagði kallinn að hún hefði nú bara getað sagt honum það án þess að þurfa vera með þessi læti, mér fannst þetta bara fyndið...

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 04:50
af paze
Tja ég spurði hana hvort whistler radavarinn sem þau voru með á slikk virkaði eitthvað. Hún sagði að hann virkaði jafn vel ef ekki betur en þeir dýrustu á markaðnum. Þessi radavari var snillingur að bípa hurðir en aldrei nokkurtímann bípaði hann við lögregluni, sama hvernig ég stillti hann.

Ég hef 1 hræðilega sögu með Nesradíó hinsvegar sem kemur henni ekki beint við.
Ég fór og keypti græjur og tengdi allt sjálfur en komst svo að því að millistykkið sem ég fékk virkaði ekki í bílinn sem ég var með þannig ég fór og ætlaði að fá nýtt. Þau sögðu mér að koma bara með bílinn og þau myndu gera það fyrir mig, því það er jú frí uppsetning ef maður kaupir spilara.

Ég kem með spilarann og þeir byrja að vinna í þessu og komast svo að því þegar þeir eru búnir að gera major skurðaðgerð á bílnum að þetta er flóknara dæmi en þeir héldu.
Þeir halda samt áfram og koma svo spilaranum í á endanum.
Svo kemur eigandinn og segir að af því að þetta var svona flókið þá kosti þetta 9000kr. Ég tók eftir því að þeir voru búnir að rispa hanskahólfið mitt í drasl þar sem það lá bara á gólfinu allann tímann og þeir voru labbandi í þessu öllu þannig ég sagði að ég þyrfti að fara í hraðbanka. Ég keyrði bara út og kom aldrei aftur. Þeir sögðu mér aldrei fyrirfram að ég yrði rukkaður fyrir einhverja ''flóknari bíla''. Þeir auglýsa bara fría ísetningu ef maður kaupir spilara.
Ég hefði átt að rukka þá fyrir nýtt hanskahólf og neita að borga neitt gjald en ég er bara lítill í mér..

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 04:52
af AntiTrust
Þessi kona er legend. Maður veit ekki hvort maður á bara að brosa/hlægja að henni eða verða pirraður. En Gummi (kallinn hennar sem á þetta) er topp kall. Hef oft farið með bíla þangað niðreftir í ísetningar og aldrei séð eftir krónu.

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 07:13
af noizer
Þessi kelling er óþolandi! Ég fór einhverntímann í Nesradíó til þess að kaupa mér snúru til þess að tengja keiluna mína í útvarpið og var búinn að mæla allt mjög vandlega og vissi nákvæmlega hvað mig vantaði en þegar ég sagði við hana hvað ég vildi fá þá fór hún eitthvað að mótmæla og sagði að þetta væri ekki nógu langt og ég þyrfi aðra snúru og hitt og þetta sem ég hafði ekkert að gera við... :mad og þetta var ekki eina skiptið sem ég fór þarna og hún fór eitthvað að mótmæla öllu sem ég sagði.

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 08:19
af slubert
Legend............dary. keypti radarvara snúru hjá þeim og hún reyndi allt til þess að ég leyfði þeim að tengja hana fyrir mig, rantaði um rafeinta virkja og eitthvað rugl í örrugglega 10 mín. ](*,)
ég sagði bara að ég hefði engan áhuga og spurði hvort hún ætlaði að selja mér snúruna eða ekki, hún seldi mér snúruna enn var ekki ánægð með það. Fór aftur seinna og var að spyrja um þjófavörn þá fékk ég ekkert rugl bara ljúfa þjónustu, getur verið misjöfn í skapinu.

Ef maður hlustar bara ekki á hana og svarar ákveðinn þá heldur hún sig á mottuni.

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 08:27
af gardar
Voðalega þarft þú að væla um þetta á mörgum stöðum Aron :lol:

Ég hef annars ekkert nema góða hluti að segja um þessa konu, hún er alltaf vinaleg og góð við mig :happy

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 08:47
af Ulli
Vá ég hefði ekki þolimæði í svona.
Eins gott að ég hef ekki farið þarna inn..Spurning um að fara leita sér hjálpar..Gusfrabba.. :sleezyjoe

Mynd

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 12:05
af axyne
Ripparinn skrifaði:Svo spurðist ég eftir radarvara og hún neitaði að selja mér hann því ég er svo ungur enþá og sagði mér að fara í húsasmiðjuna og fá mér spítukubb undir bensíngjöfina


Hahaha, þetta er nú meiri snilldin!

Annars hef ég nokkrum sinnum þurft að tala við þessa konu og skil alveg hvað þú ert að fara.
Í eitt skiptið þegar ég var á hraðferð og vantaði eh eitt smástykki þá dettur henni í hug að svara í símann rétt áður en hún rukkar mig svo ég þarf að bíða heillengi eftir að hún klárar símtalið.. alveg :pjuke

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 12:08
af GuðjónR
axyne skrifaði:Í eitt skiptið þegar ég var á hraðferð og vantaði eh eitt smástykki þá dettur henni í hug að svara í símann rétt áður en hún rukkar mig svo ég þarf að bíða heillengi eftir að hún klárar símtalið.. alveg :pjuke

Ég þoli ekki þegar afgreiðslufólk gerir þetta...

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 15:35
af Ripparinn
gardar skrifaði:Voðalega þarft þú að væla um þetta á mörgum stöðum Aron :lol:

Ég hef annars ekkert nema góða hluti að segja um þessa konu, hún er alltaf vinaleg og góð við mig :happy



Haha satt, ég varð bara eitthvað svo hneikslaður á þessu að ég vaarð að koma með þetta yfir á vaktina :oops:

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 17:18
af tdog
núna langar mig að versla hjá henni. og epsa hana upp.

Re: Nesradíó

Sent: Sun 18. Des 2011 17:44
af Flamewall
Ég þekki viðkomandi

Hún er frekar ákveðin ef svo mætti að orði komast og kemur alveg með skot á fólk og taka menn því misvel, en alveg fínsta manneskja :)

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 17:49
af pattzi
haha like

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 18:24
af Plushy
shit hvað mér langar að fara þangað bara til að baka hana ef hún er með leiðindi.

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 19:46
af braudrist
Hvers konar þjónusta og virðinglarleysi er þetta við kúnnann? Að bara svara í símann á meðan hún er að afgreiða? Fyrst kallinn hennar á þetta þá kemst hún auðvitað upp með allt. Hljómar eins og algjör helvítis drullukunta.

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 20:06
af Davidthor
Þekki þetta :)
Fór og bað um snúru í hljómtæki, vissi nákvæmlega hvaða snúru mig vantaði.
En konan talaði strax við mig eins og ég væri hálviti og vildi vita tegund af bílnum osfrv. sem kom málinu ekkert við því þetta var mjög gamall bíll.
Sagði henni reyndar í upphafi að þetta væri gamall bíl og ekkert til neitt sérsniðið í þennan bíl.
Ég gerði henni ljóst (þegar hún var búin í símanum sem hún svaraði í miðju samtali okkar) að ég vissi hvað ég vildi og bað um snúra sem hún afhenti með fílusvip.

Versla aldrei aftur þarna...

Tvennt sem aldrei á að gera: Svara í símann meðan á afgreiðslu stendur eins og ekkert sé eðlilegra og tala við viðskiptavin eins og hálvita.

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 20:47
af bulldog
Þetta er greinilega eðalkona :sleezyjoe

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 18. Des 2011 22:24
af Saber
Man eftir henni frá því að maður var á fullu í bílagræjunum í denn. Snilldar kerling! :lol:

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Mán 19. Des 2011 18:05
af Cikster
Kíkti við þarna áðan og get ekki verið ánægðari. Trickið er að koma nógu seint þegar hún er ekki að vinna. :)

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Mán 19. Des 2011 18:08
af vesi
þetta er kelling sem maður man eftir,,, how sick is that!!!! ](*,)

Re: Nesradíó

Sent: Mán 19. Des 2011 19:07
af intenz
Ripparinn skrifaði:Svo spurðist ég eftir radarvara og hún neitaði að selja mér hann því ég er svo ungur enþá og sagði mér að fara í húsasmiðjuna og fá mér spítukubb undir bensíngjöfina

LOL! :megasmile

Re: Nesradíó - Reynslusögur af eldri afgreiðslukonuni

Sent: Sun 16. Ágú 2015 02:13
af Frosinn
Ekki úr vegi að koma með update á 4ra ára gamlan þráð...

Fór í Nesradíó í fyrradag til að athuga með Stalk Control Adapter fyrir Mercedes E270, þar sem ég var búinn að rífa hið forna Mercedes kassettutæki úr bílnum og þurfti millistykki til að tengja nýjan geislaspilara í bílinn þannig að hækka/lækka virkin í stýrinu myndi halda sér.

Konan frussaði út úr sér að í fyrsta lagi þyrfti ekkert millistykki, þar sem það væri ISO tengi í þessari tegund af Mercedes, og ef þetta virkaði ekki hjá mér þá yrði ég bara að panta tíma á verkstæðinu hjá henni til að láta strákana hennar græja þetta. Svo gargaði hún á mann á miðjum aldri þarna inni (sem hlýtur að hafa verið eiginmaður hennar fyrst hann lét þetta yfir sig ganga) eitthvað um að hætta að lofa dagsetningum á afhendingu. Og svo svaraði hún símanum. Ég stóð þarna eins og álka, vissi ekki hvort ég ætti bara að fara, en beið þolinmóður eftir að símtalinu hennar lyki. Hún spurði hranalega hvort ég væri með gamla kassettu-útvarpið, þannig að hægt væri að skoða að sérsmíða snúrur fyrir þetta. Ég sagði henni að útvarpið væri komið í ruslatunnuna klukkustund áður, en ég vissi að þetta tengi væri til sem stock-lausn víða á netinu og þyrfti líklega ekki sérsmiði. Hún spurði hvort ég gæti ekki bara skotist eftir gamla útvarpinu og ég sá að það þýddi ekkert að eiga orðastað við konuna, sagði "jújú, ég geri það bara", settist upp í bílinn og lét ekki sjá mig þarna framar.