Síða 1 af 2
Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:27
af J1nX
jæja þar sem það styttist í jólin þá var ég að pæla, hvað er versta/asnalegasta jólagjöf sem þið hafið fengið?
mín er klárlega penni sem ég fékk frá afa mínum fyrir einhverjum árum síðan.. var ekki einu sinni skrautpenni, bara ósköp venjulegur penni..
var samt sáttur við hann þegar ég sá hvað systir mín fékk frá sama afanum.. eitt stykki jólakúlu
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:28
af worghal
peysa frá ömmu.
aldrey farið í peysuna.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:31
af methylman
Það eru tóm vandræði með jólagjafir frá gamlingjum amma gaf mér einusinni kerti og spil, ég var 27 ára
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:33
af bulldog
það er kærleikurinn á bakvið gjafirnar sem skiptir máli en ekki hvað maður fær
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:35
af svalinn
nylon geisladiskur
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:35
af REX
bulldog skrifaði:það er kærleikurinn á bakvið gjafirnar sem skiptir máli en ekki hvað maður fær
Bulldog veit hvað hann syngur.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:43
af zedro
Hef aldrei fengið slæma jólagjöf, tók mig bara 20+ ár að fatta það
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:58
af Frost
Hef aldrei verið ósáttur með jóagjöf en var svekktur yfir því að lopapeysan sem amma mín gaf mér einu sinni passaði ekki á mig. Hún var prjónuð svona fjórum númerum of lítil.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 21:59
af urban
methylman skrifaði:Það eru tóm vandræði með jólagjafir frá gamlingjum amma gaf mér einusinni kerti og spil, ég var 27 ára
Kerti og spil er stórkostleg gjöf.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:03
af worghal
methylman skrifaði:Það eru tóm vandræði með jólagjafir frá gamlingjum amma gaf mér einusinni kerti og spil, ég var 27 ára
ef það var notað, þá er það ekki slæm gjöf.
en gjöf sem er aldrei notuð er slæm gjöf.
ég vill yfirleitt gefa eitthvað sem ég veit að verði notað og sömuleiðis vill ég hluti sem ég get notað.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:11
af Flinkur
Ég verð að segja plast stafur sem ég fékk þegar ég varð 30 ára. fékk hann í jóla/afmælisgjöf.... Eitthvað dót sem varla tolli saman yfir 1 kvöld!
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:20
af Tesli
Þegar amma og afi fóru til útlanda og voru sett í það að kaupa SuperSocker vatnsbyssu handa mér í afmælisgjöf sem ég var búinn að væla um lengi.
Þau komu til baka með Su
berSocker vatnsbyssu eftirlíkingu sem var ekki með þrýstipumpu og hún dreif því svona 1-2metra tops, það var gert grín að mér í næsta vatnsslag
(17ár síðan en ég er á batavegi)
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:27
af GuðjónR
Það versta sem ég hef fengið í jólagjöf var geisladiskur frá systir minni
Rick Astley - never gonna give you up.Ég var 18 og hún 13...ég vissi vel að hún gaf mér diskinn af því að henni langaði í hann sjálfri, þess vegna fékk hún diskinn ALDREI...ég á helv. diskinn ofan í kassa einhversstaðar...óspilaðan.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:38
af chaplin
GuðjónR skrifaði:Það versta sem ég hef fengið í jólagjöf var geisladiskur frá systir minni
Rick Astley - never gonna give you up.Ég var 18 og hún 13...ég vissi vel að hún gaf mér diskinn af því að henni langaði í hann sjálfri, þess vegna fékk hún diskinn ALDREI...ég á helv. diskinn ofan í kassa einhversstaðar...óspilaðan.
You never gave it up then..
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:41
af Klemmi
daanielin skrifaði:USER WAS BANNED FOR THIS POST
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:43
af GuðjónR
daanielin skrifaði:You never gave it up then..
Nope, i did not!
Hef aldrei hent gjöf.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:45
af chaplin
Klemmi skrifaði:daanielin skrifaði:USER WAS BANNED FOR THIS POST
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 22:51
af Akumo
Hahaha snilld, annars held ég að það hafi verið skærbleikur bolur og röndótta sokka bleika og gula.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 23:03
af Daz
Eftir ákveðinn aldur (finnst mér) verða jólagjafir "kjánalegar". Það sem mig langar í það kaupi ég, ef ég hef efni á því. Ef ég fæ eitthvað í gjöf sem ég er virkilega ánægður með, þá er það af því að ég hreinlega vissi ekki að hluturinn væri til. Þessvegna gerir maður eins og mörgæsirnar í Madagascar.
Alvöru gjöf væri frí frá konu og börnum í einhvern tíma svo maður gæti notið sinna eigin jólagjafa (Skyrim og bjórkassi anyone?)
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 23:03
af AntiTrust
AIDS.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 23:07
af GuðjónR
Daz skrifaði:Eftir ákveðinn aldur (finnst mér) verða jólagjafir "kjánalegar". Það sem mig langar í það kaupi ég, ef ég hef efni á því. Ef ég fæ eitthvað í gjöf sem ég er virkilega ánægður með, þá er það af því að ég hreinlega vissi ekki að hluturinn væri til. Þessvegna gerir maður eins og mörgæsirnar í Madagascar.
Alvöru gjöf væri frí frá konu og börnum í einhvern tíma svo maður gæti notið sinna eigin jólagjafa (Skyrim og bjórkassi anyone?)
Vá hvað ég er sammála þér!
AntiTrust skrifaði:AIDS.
Say again?
Mér fannst þú nú ekkert AIDS legur þegar ég sá þig
Heavy massaður og flottur.
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 23:27
af littli-Jake
GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:Eftir ákveðinn aldur (finnst mér) verða jólagjafir "kjánalegar". Það sem mig langar í það kaupi ég, ef ég hef efni á því. Ef ég fæ eitthvað í gjöf sem ég er virkilega ánægður með, þá er það af því að ég hreinlega vissi ekki að hluturinn væri til. Þessvegna gerir maður eins og mörgæsirnar í Madagascar.
Alvöru gjöf væri frí frá konu og börnum í einhvern tíma svo maður gæti notið sinna eigin jólagjafa (Skyrim og bjórkassi anyone?)
Vá hvað ég er sammála þér!
AntiTrust skrifaði:AIDS.
Say again?
Mér fannst þú nú ekkert AIDS legur þegar ég sá þig
Heavy massaður og flottur.
No Homo?
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Fös 09. Des 2011 23:34
af Akumo
Daz skrifaði:Eftir ákveðinn aldur (finnst mér) verða jólagjafir "kjánalegar". Það sem mig langar í það kaupi ég, ef ég hef efni á því. Ef ég fæ eitthvað í gjöf sem ég er virkilega ánægður með, þá er það af því að ég hreinlega vissi ekki að hluturinn væri til. Þessvegna gerir maður eins og mörgæsirnar í Madagascar.
Alvöru gjöf væri frí frá konu og börnum í einhvern tíma svo maður gæti notið sinna eigin jólagjafa (Skyrim og bjórkassi anyone?)
Sammála þér
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Lau 10. Des 2011 00:12
af andripepe
Ég fékk einu sinni ipod touch í jólagjöf. there i said it
Re: Versta Jólagjöfin?
Sent: Lau 10. Des 2011 00:15
af ZiRiuS
Ég spái frekar í hvað ég get gefið öðrum heldur en hvað ég fæ.
Annars eru asnalegustu gjafir sem ég hef fengið afmælisgjafir. Þetta árið fékk ég til dæmis bréfaklemmukassa frá Office1 og árið þar á undan paprikuduft í poka og kúrekahatt í barnastærð, svo keypti félagi minn tugi diska af "sameinumst hjálpum þeim" sem ég t.d. fékk í afmælisgjöf.
Samt eru þetta gjafirnar sem ég mun muna til æviloka, er t.d. ennþá með paprikuduftið inn í eldhúsi.