Síða 1 af 2

Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 18:06
af svalinn
Sælir vaktarar eru menn búinn að prufa nýja bjórinn? sem er kominn á markað hann er ódýrastur miðað við magn og er helvíti góður.
Hér er linkur: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11841

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 18:33
af Daz
Er þetta líters plastflaska? Vá, bara maður væri enþá 17.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 18:55
af daniellos333
Víking>allt

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 18:59
af steinarorri
Daz skrifaði:Er þetta líters plastflaska? Vá, bara maður væri enþá 17.


x2

Skil ekki hvernig þeir ætla að selja svona í lítraplastflösku... þetta er ekki einu sinni það ódýr bjór.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:01
af paze
Flatur allt of fljótt...Nema maður sé á einhverju arga fylleríi..

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:08
af gardar
paze skrifaði:Flatur allt of fljótt...Nema maður sé á einhverju arga fylleríi..



Er þetta ekki til þess að hella í glös og deila með sér?

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:22
af sakaxxx
við þurfum að já litla jón aftur 1.25 litrar af unaði :happy

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:23
af beggi90
gardar skrifaði:
paze skrifaði:Flatur allt of fljótt...Nema maður sé á einhverju arga fylleríi..



Er þetta ekki til þess að hella í glös og deila með sér?


Einmitt frábært í svoleiðis!
Ég bjó úti og þá gat maður keypt 2,5L bjórflöskur í partýin. Algjörlega frábært.
Auðvitað ef maður reyndi að slátra þannig einn varð hún flöt helvíti fljótt...

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:34
af GuðjónR
svalinn skrifaði:Sælir vaktarar eru menn búinn að prufa nýja bjórinn? sem er kominn á markað hann er ódýrastur miðað við magn og er helvíti góður.
Hér er linkur: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11841


Ég ætla að prófa hann við tækifæri, en hann er ekki ódýrastur miðað við magn, 500ml af honum kosta 311 miðað við þetta lítraverð.
Það er haugur af bjórum undir 311kr. 500ml.

Samt...það verður gaman að prófa þennan.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:48
af Nördaklessa
stórt like á þetta, maður grípur þennan við tækifæri

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:55
af ManiO
Fyrir mér er "quality over quantity" alveg nauðsyn þegar að kemur að bjórdrykkju.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 19:58
af littli-Jake
Pínu kúl. ég held að maður verði allavega að prófa

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:01
af bulldog
Flott að það sé kominn bjór sem heitir Krummi =D> Ég er að vísu hættur að drekka fyrir meira en ári síðan :twisted: Það fer allt í að uppfæra tölvurnar :oops:

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:04
af gardar
ManiO skrifaði:Fyrir mér er "quality over quantity" alveg nauðsyn þegar að kemur að bjórdrykkju.



Þar er ég algerlega sammála. Býst nú ekki við því að þessi krummi sé neinn gæðamjöður en maður á nú eftir að gefa honum séns.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:07
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:
svalinn skrifaði:Sælir vaktarar eru menn búinn að prufa nýja bjórinn? sem er kominn á markað hann er ódýrastur miðað við magn og er helvíti góður.
Hér er linkur: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11841


Ég ætla að prófa hann við tækifæri, en hann er ekki ódýrastur miðað við magn, 500ml af honum kosta 311 miðað við þetta lítraverð.
Það er haugur af bjórum undir 311kr. 500ml.

Samt...það verður gaman að prófa þennan.


Nenni ekki útí neina útreikninga, en hann er 5.3% áfengur svo kannski verður hann ódýrastur miðað við rúmmál af áfengi per króna :-k

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:19
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Nenni ekki útí neina útreikninga, en hann er 5.3% áfengur svo kannski verður hann ódýrastur miðað við rúmmál af áfengi per króna :-k
0.3% er ekkert til að tala um =;

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:34
af Daz
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:Nenni ekki útí neina útreikninga, en hann er 5.3% áfengur svo kannski verður hann ódýrastur miðað við rúmmál af áfengi per króna :-k
0.3% er ekkert til að tala um =;

5,6% meira en í 5% bjór :) (prósentur eru fjör).

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:51
af GuðjónR
Daz skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:Nenni ekki útí neina útreikninga, en hann er 5.3% áfengur svo kannski verður hann ódýrastur miðað við rúmmál af áfengi per króna :-k
0.3% er ekkert til að tala um =;

5,6% meira en í 5% bjór :) (prósentur eru fjör).


True
Hollandia bjórinn kostar 288 kr. og hann er 5%
Þannig að 288 x 1,056 = 304 kr.
Líterinn af 5,3% væri því á 608. kr. sem er ódýrara en umræddur bjór.
=D>

http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=09633

p.s. það er reyndar 6% munur sem hækkar niðurstöðuna um 2 kr. á líter.
(0,3/5)= ,06 x 100 = 6%
5% x 1,06 = 5,3%
þú deildir 0,3/ 5.3 = 0,0566 x100= 5,66 en ef þú tekur síðan 5 x 1,0566= 5,283% .... eru prósentur ekki skemmtilegar :)

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 20:59
af isr
Er þetta ekki bjórinn sem Garðar Gunnlaugson er að markaðssetja.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 21:15
af Daz
Hankaður á eigin hártogun!

Mér til varnar var ég að bera saman tölulega muninn (0,3) á móti hlutfallslegum mun (6%!!). Svona í tilefni xkcd dagsins.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 22:15
af GuðjónR
Daz skrifaði:Hankaður á eigin hártogun!

Mér til varnar var ég að bera saman tölulega muninn (0,3) á móti hlutfallslegum mun (6%!!). Svona í tilefni xkcd dagsins.

Þú hefur væntanlega tekið tillit til hnattstöðu jarðar? :twisted:

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Fös 02. Des 2011 22:35
af worghal
læt mér nægja La Trappe Quad. 10% í 33cl :p

Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Lau 03. Des 2011 10:25
af ManiO
worghal skrifaði:læt mér nægja La Trappe Quad. 10% í 33cl :p


Hann bragðast líka fáránlega vel.

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Lau 03. Des 2011 10:29
af GuðjónR
ManiO skrifaði:
worghal skrifaði:læt mér nægja La Trappe Quad. 10% í 33cl :p


Hann bragðast líka fáránlega vel.


Virkilega?
Þeir bjórar sem ég hef smakkað 10%+ hafa allir verið með yfirþyrmadi spírabragði, bara hreinlega vondir.
Er ekki spírabragð af þessum?

Re: Nýr bjór kominn á markað!

Sent: Lau 03. Des 2011 10:36
af Akumo
Maður kemst ekkert í þennan á Akureyri :( værir til í smakk :P