Síða 1 af 1
Hjálp! Vantar mann í forritun
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:17
af Deildu
Sælir, kæru vaktarar.
Núna síðastliðnar vikur/mánuði þá hefur verið vandamál með vefinn Deildu.net, eins og sennilega flestir vita.
Vandamálið er að við höfum enga að til þess að hjálpa okkur(þökkum samt þeim sem hafa stokkið inn í og reddað okkur), og við erum að spá í að leigja annan server sem mun þá keyra samhliða hinum og hýsa þá síðuna á 2 serverum.
Okkur vantar hjálp við það, og þá helst að fá e-h sem að er lærður kerfisstjóri og hefur hugsanlega góða lausn á þessu vandamáli okkar. Þetta er jú auðvitað sjálfboðaliða starf.
Sendið mér annaðhvort skilaboð hér eða sendið tölvupóst á deildu@deildu.netKær kveðja, Deildu.net
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:23
af AncientGod
varstu ekki að segja á facebook um að þetta væri ekki server/hýsingar vandamál ?
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:25
af Deildu
AncientGod skrifaði:varstu ekki að segja á facebook um að þetta væri ekki server/hýsingar vandamál ?
Hvernig væri að lesa það sem ég skrifaði hér fyrir ofan? Þetta er vandamál með kóðann, sem veldur því að serverinn ræður ekki við hann.
S.s serverinn myndi ráða við þetta ef að það værið ekki búið að fucka kóðanum svona upp, svo bailaði forritarinn með nýja kóðann, svo að þetta er seinasta úrræðið.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:26
af AntiTrust
Á hvaða platformi er síðan að keyra?
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:28
af Deildu
AntiTrust skrifaði:Á hvaða platformi er síðan að keyra?
Apache, væri ýkt flott jafnvel að færa hana yfir á nginx.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:33
af AncientGod
það stóð nú ekki í þinum pósti að hann bailaði, hvernig átti ég að vita það.....
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:37
af Heihachi
SPAGHETTI PROGRAMMING FOR THE WIN.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Mán 14. Nóv 2011 23:48
af AntiTrust
Deildu skrifaði:AntiTrust skrifaði:Á hvaða platformi er síðan að keyra?
Apache, væri ýkt flott jafnvel að færa hana yfir á nginx.
Það á nú að vera þokkalega einfalt að setja upp simple load balancing með því, einfaldara en IIS ef e-ð. Hef þó ekki gert það sjálfur.
Annars er nú örugglega einfaldara fyrir ykkur að henda bara öflugra hardware-i í vélina, eða eruði að hugsa þetta sem failover?
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 08:38
af dori
Ef kóðinn ykkar er orðinn svo asnalegur að síðan virkar varla gæti þurft að laga það sama hvað. Maður gæti svosem lesið hann yfir hjá ykkur ef þið viljið. Sjá hvort maður sjái eitthvað skrýtið.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 11:50
af Marmarinn
Hvernig er uppsetningin hjá ykkur?
Vélbúnaður? Hugbúnaður?
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 11:53
af kubbur
væri ekki hægt að fá einhvern annan forritara til að halda áfram með þar sem frá var horfið á hinni síðunni, hún var orðinn nánast nothæf
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 15:10
af Varasalvi
Kannski hefði verið auðveldara finna mann til að hjálpa ef þið hefðuð ekki skitið yfir síðasta mann sem reyndi að hjálpa.
Þetta er sjálfboða vinna eins og þú sagðir en samt var ekkert verið að fela reiðina þegar síðasti maðurinn sem var að hjálpa gafst upp.
Komið þið sæl, kæru notendur.
Okkur þykir leiðinlegt að tilkynna ykkur það að forritarinn sem var að forrita nýja kóðann gafst upp, og hætti. Þið getið þakkað Polarina með fallegum þakkarbréfum.
Afhverju ætti einhver að vilja hjálpa þegar hann veit að ef hann klárar ekki verkið þá verður notanda nafn hans gefið upp og beðið er um að spamma á hann "þakkabréfum".
Þvílíkur barnaskaður. Þið eruð ekki borga skít fyrir hjálpina svo þið ættuð að vera þakka þessum manni fyrir að reyna.
Nú veit ég ekki alla söguna um þetta en svona lítur þetta út og það er það sem skiptir máli.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 15:36
af gardar
Ekki eru menn virkilega ennþá að keyra svona vefi á tbsource viðbjóðinum?
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 15:49
af MatroX
gardar skrifaði:Ekki eru menn virkilega ennþá að keyra svona vefi á tbsource viðbjóðinum?
nope. tbdev sem var minnir mig tbsource hehe
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 15:57
af B.Ingimarsson
væri ekki tilvalið að forrita þessa síðu bara aftur frá grunni, og hafa kóðann þá eins lightweight og hægt er
ég kemst bara inná síðuna í annað hvert skipti, í hin skiptin fæ ég timeout
sem er mjög leiðinlegt fyrir svona góða torrentsíðu
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 16:34
af SolidFeather
Þvílik kvöl það er að reka torrentsíðu.
Re: Hjálp! Vantar mann.
Sent: Þri 15. Nóv 2011 17:16
af gardar
MatroX skrifaði:gardar skrifaði:Ekki eru menn virkilega ennþá að keyra svona vefi á tbsource viðbjóðinum?
nope. tbdev sem var minnir mig tbsource hehe
Sami viðbjóðurinn, kóði sem einhverjir guttar hræktu saman eftir viku fyllerí
Re: Hjálp! Vantar mann í forritun
Sent: Mið 16. Nóv 2011 01:14
af Pandemic
Hefur enginn prófað að henda upp Gazelle?
http://what.cd/gazelle/wiki.phpVirðist vera mikið öruggara og meira scalable.
Re: Hjálp! Vantar mann í forritun
Sent: Mið 16. Nóv 2011 01:23
af Black
Var einhvað að kóðanum sem var? þetta er svona með allar íslenskar torrentsíður..Kemur einhver Drasl torrentsíða með ágætiskóða leyfir innlent efni etc, síðan kvartar smáís þá er bannað inlennt torrent, síðan gengur síðan sjúklega vel koma yfir 4000 torrent..Þá fara þeir að fikta með nýjan kóða sem veldur álagi á síðunni,Einhver gefst upp á kóðanum,Serverinn fer í fokk,Kemur önnur síða sem tekur við og byrjar aftur...Það eru bara 2 íslenskar torrentsíður sem ég get hrósað sem voru einfaldar og með góðan kóða, Það var Rtorrent og Tengdur.net þetta voru síður sem voru ekki haldið uppi af smákrökkum.
Re: Hjálp! Vantar mann í forritun
Sent: Mið 16. Nóv 2011 01:28
af GullMoli
Black skrifaði:Var einhvað að kóðanum sem var? þetta er svona með allar íslenskar torrentsíður..Kemur einhver Drasl torrentsíða með ágætiskóða leyfir innlent efni etc, síðan kvartar smáís þá er bannað inlennt torrent, síðan gengur síðan sjúklega vel koma yfir 4000 torrent..Þá fara þeir að fikta með nýjan kóða sem veldur álagi á síðunni,Einhver gefst upp á kóðanum,Serverinn fer í fokk,Kemur önnur síða sem tekur við og byrjar aftur...Það eru bara 2 íslenskar torrentsíður sem ég get hrósað sem voru einfaldar og með góðan kóða, Það var Rtorrent og Tengdur.net þetta voru síður sem voru ekki haldið uppi af smákrökkum.
Alls ekki gleyma
torrent.isFyrsta og lang besta íslenska torrent-síðan.