Síða 1 af 1

Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 21:58
af beatmaster
http://www.tolvutek.is

Hvað finnst mönnum?

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:00
af AntiTrust
Flott, eldri síðan meikaði aldrei neitt sense. Lítið sem ekkert um info á main síðunni og svo aukalinkur í vefverslunina.

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:00
af cure
Mjög fín.

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:02
af davinekk
Mér finnst það bara fint! vel gert hjá þeim, allt á start-siðunni þarf ekki að klikka á vörur til að sjá mýs eða eitthvað, en það vantar 'Betra verð' eða 'Nýju vörur' :)

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:04
af Heihachi
http://www.lysi.is/

Ný síða hjá Lýsi.is, who'a

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:11
af bulldog
flott síða hjá þeim :)

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:15
af worghal
lýst vel á þetta :happy

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:55
af Hjaltiatla
Fín síða, persónulega finnst mér þægilegra að geta valið um að velja hvernig vörunar birtast t.d hæsta verð fyrst en á síðunni birtist þetta eftir merki í stafrófsröð.

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 23:04
af chaplin
Margfalt betri en gamla vefsíðan sem var auðvita vonlaus, en finnst það samt talsvert betra að skoða vefsíður hjá fyrirtækjum eins og Tölvutækni, Start og Kísildal þar flest allar upplýsingar eru á kristla tæru, stílhreinar og einfaldar.

Finnst td. (veit að þetta er smámunasemi) "Í körfu" takkinn allt of áberandi og fær alla mín athygli, titillinn á vörum finnst mér vera of mikið af "gagnslausum" upplýsingum. Væri til að hafa þetta stílhreinara og skýrara, mér er alveg sama ef e-h SSD diskur er SATA3, eða hann sé 2,5" sem 99,9% af SSD diskum eru.

En auðvita bara mín skoðun..

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 23:30
af birgirdavid
Flott og betri síða, en það er eitt sem ég tók eftir.
Verðvaktin hér á vaktinni virkar ekki núna útaf nýju síðunni
Er að meina allt sem er frá Tölvutek virkar ekki núna

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fim 03. Nóv 2011 23:54
af GuðjónR
Mjög flott síða....en allir linkarnir á Vaktinni fóru í klessu út af þessum breytingum, það ætti samt að vera komið í lag innan fárra daga.
Þetta er líka töff hjá þeim:

http://www.tek.is

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 00:32
af Black
Sjóðheitt, einföld þægileg síða, núna þurfa þeir bara búa til Nýja auglýsingu á vaktina.. s.s þarna flash draslið efst á síðunni :)

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 00:49
af MCTS
Er að meta þetta frábær síða

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 01:58
af methylman
Það er búið að rústa síðunni nú þegar no connection

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 02:03
af Hjaltiatla
methylman Skrifaði:
Það er búið að rústa síðunni nú þegar no connection

Líklegast bara hjá þér virkar fínt hjá mér.

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 02:04
af worghal
vantar allveg að getað flokkað eftir verði

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Fös 04. Nóv 2011 02:49
af methylman
Hjaltiatla skrifaði:
methylman Skrifaði:
Það er búið að rústa síðunni nú þegar no connection

Líklegast bara hjá þér virkar fínt hjá mér.


Er bara ekki að koma með síðuna í Firefox get opnað í IE

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Mið 22. Feb 2012 14:18
af Halldorhrafn
Sælir Hjaltiatla og Worghal, takk kærlega fyrir ábendinguna en við erum nú búin að bæta möguleika á vöruröðun á síðuna :) Það er hægt að sjá nýja „Vöruröðun“ möguleikann hér: http://www.tolvutek.is/vorur, en aðrar nýjungar má nefna endurbætta leitarvél þar sem hægt er að leita að stökum orðum eða blöndu af orðum sem og vöruflokkum og nær hverju öðru sem er.

Með kveðju,
Halldór Hrafn

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Mið 22. Feb 2012 15:45
af Klaufi
Þægilegt að geta ráðið hvernig þetta raðast upp.

Sá á forsíðunni Gigabyte 6950 hjá ykkur, tók eftir því að það er 4k ódýrara en kortið sem sýnt er ódýrast hér á Vaktinni.
*Bætt við*
Það á til að gerast að þegar maður flokkar eftir verðum, og skiptir svo yfir í annan vöruflokk þá kemur upp: "Engar vörur fundust í þessum flokki."
Ef maður breytir svo uppröðuninni aftur þá koma vörurnar upp.

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Mið 22. Feb 2012 16:09
af Orri
Klaufi skrifaði:Sá á forsíðunni Gigabyte 6950 hjá ykkur, tók eftir því að það er 4k ódýrara en kortið sem sýnt er ódýrast hér á Vaktinni. :happy

Þetta kort er bara 1GB á meðan þau sem eru á verðvaktinni eru 2GB ;)

Re: Ný síða hjá Tölvutek

Sent: Mið 22. Feb 2012 16:14
af Klaufi
Orri skrifaði:
Klaufi skrifaði:Sá á forsíðunni Gigabyte 6950 hjá ykkur, tók eftir því að það er 4k ódýrara en kortið sem sýnt er ódýrast hér á Vaktinni. :happy

Þetta kort er bara 1GB á meðan þau sem eru á verðvaktinni eru 2GB ;)


Vel spottað ;)
Leit svona fjórum sinnum yfir þetta því ég var viss um að mér væri að yfirsjást eitthvað :lol: