Síða 1 af 1

Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:40
af GuðjónR
Það er ekki bara Samsung sem er að herma.
Dæmi hver fyrir sig, SJÁ HÉR
Búið að setja ASUS logoið á Mac Book Air.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:45
af Sphinx
zenbook air

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:46
af daniellos333
Þannig að Apple má bara búa til þunnar tölvur?

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:47
af worghal
ég hef líka tekið eftir því að HP er basically að nota macbook pro body með öðrum skjá ofaná...
hef líka séð marga aðra pulla macbook pro útlitið.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:47
af AntiTrust
Aj ég veit það ekki. Það eru bara x margar leiðir til þess að framleiða ultrabooks verkfræðilega séð. Þessi aflíðandi hönnun er ekki þjófnaður eða tilviljun.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 16:48
af GuðjónR
Apple leggur línurnar með tölvur og síma, allir aðrir rembast við að gera eins.
En þið vitið að ef þið eigið Skoda þá breytist hann ekki í Benz þó þið setjið Benz lógóið á hann :sleezyjoe

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 17:25
af braudrist
Nema hvað að þessi er margfalt öflugri en Apple tölvan og mun ódýrari.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 17:25
af appel
Erfitt að segja.

Stíll er eitt, að taka hönnunina algjörlega og nota óbreytt er annað.

Hún er í sama stíl og Apple, en ekki sama hönnun.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 17:31
af Hargo
appel skrifaði:Erfitt að segja.

Stíll er eitt, að taka hönnunina algjörlega og nota óbreytt er annað.

Hún er í sama stíl og Apple, en ekki sama hönnun.


Sammála þessu.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 17:44
af Orri
appel skrifaði:Erfitt að segja.

Stíll er eitt, að taka hönnunina algjörlega og nota óbreytt er annað.

Hún er í sama stíl og Apple, en ekki sama hönnun.

Nenni ekki að photoshoppa side-by-side myndir af þessum tölvum, en mér sýnist þessi vera á mörkunum að vera að taka hönnunina.
Annars er þetta alveg rétt sem þú segir.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 18:21
af Halli25
GuðjónR skrifaði:Apple leggur línurnar með tölvur og síma, allir aðrir rembast við að gera eins.
En þið vitið að ef þið eigið Skoda þá breytist hann ekki í Benz þó þið setjið Benz lógóið á hann :sleezyjoe

á skoda og það er fullt af Audi og WW lógóum á pörtum í honum! ;)

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 18:27
af beatmaster
Það þarf ekkert að photoshoppa þessar tvær hlið við hlið, skoðið bara þetta

P.S Þetta er enginn hönnunarstuldur ;)

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 18:30
af vesley
Halli25 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Apple leggur línurnar með tölvur og síma, allir aðrir rembast við að gera eins.
En þið vitið að ef þið eigið Skoda þá breytist hann ekki í Benz þó þið setjið Benz lógóið á hann :sleezyjoe

á skoda og það er fullt af Audi og WW lógóum á pörtum í honum! ;)


Enda er Skoda í eigu VW .

En er algjörlega sammála Appel þetta er sami stíll en ekki nákvæmlega sama hönnun þrátt fyrir að þær eru gríðarlega líkar.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 18:36
af FriðrikH
Asus eru nú líka búnir að vera með þessa aflíðandi hönnun í eee línunni í nokkuð langann tíma þannig að mér finnst það nú ekki eiga við.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 18:40
af Matti21
Ekkert að því að fá lánaða hönnun frá samkeppnisaðila, það er mjög eðlilegt í raftækjaiðnaðinum. Það má samt ekki stela algjörlega og mér finnst Samsung hafa farið pínu fyrir strikið.
Ég skil samt ekki af hverju, þegar önnur tölvufyrirtæki "fá lánað" frá Apple af hverju þau gera það þá ekki almennilega. T.d. þessi vél er einhverjum 100 dollurum ódýrari en sambærileg macbook air...en með skjá úr plasti :S
Það væri algjör deal-breaker fyrir mig ef ég væri að velja mér tölvu sérstaklega svona þunna. Af hverju höfðu Asus tölvuna bara ekki örlítið dýrari (sem sagt jafn dýra og macbook air) og skjáinn úr áli? Ég skal alveg viðurkenna það að Apple getur verið með svakalega overpriced vörur ef þú berð bara saman vélbúnaðinn en í fartölvunum hjá þeim ertu bara að borga fyrir build quality. Þessi Uni-body hönnun er bara eitthvað sem PC markaðurinn er ekki búinn að ná að copy-a frá Apple. Kæmi mér svo sem kannski ekkert á óvart ef þeir eru með einkaleyfi fyrir þessu :P

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 19:31
af chaplin
Asus hafa verið með mjög svipaða hönnun frá því að fyrstu Asus EEE tölvurnar komu út. Mesti munurinn að þeir hafa orðið meira slim og litabreyting.
worghal skrifaði:ég hef líka tekið eftir því að HP er basically að nota macbook pro body með öðrum skjá ofaná...
hef líka séð marga aðra pulla macbook pro útlitið.

Mynd

appel skrifaði:Erfitt að segja.

Stíll er eitt, að taka hönnunina algjörlega og nota óbreytt er annað.

Hún er í sama stíl og Apple, en ekki sama hönnun.

Sammála.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 20:11
af Tiger
Fyrir mér er þetta eins og að bera saman Subaru Impresu og Benz C32 AMG, báðir 300+ hö en þeir sem hafa klassa og respect velja Benzann :)

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 20:14
af Storm
Hafiði heyrt um ultrabook staðalinn?

Tekið af wikipedia: "An Ultrabook is a computer in a category of thin and lightweight ultraportable laptops, defined by a specification from Intel corporation[1] The name Ultrabook is an Intel trademark. By this marketing initiative and an associated $300M fund, Intel hopes to stimulate the market for Intel-based laptops similar to Apple's MacBook Air, against rising competition from ARM processor-based tablet computers.[2]"

Hér er stutt youtube myndband með smá kynningu á ultrabook fartölvum frá 5 mismunandi framleiðendum, macbook air þar innifalið. http://www.youtube.com/watch?v=61rGlMrteGs

http://en.wikipedia.org/wiki/Ultrabook

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 20:32
af dori
Matti21 skrifaði:Ekkert að því að fá lánaða hönnun frá samkeppnisaðila, það er mjög eðlilegt í raftækjaiðnaðinum. Það má samt ekki stela algjörlega og mér finnst Samsung hafa farið pínu fyrir strikið.
Ég skil samt ekki af hverju, þegar önnur tölvufyrirtæki "fá lánað" frá Apple af hverju þau gera það þá ekki almennilega. T.d. þessi vél er einhverjum 100 dollurum ódýrari en sambærileg macbook air...en með skjá úr plasti :S
Það væri algjör deal-breaker fyrir mig ef ég væri að velja mér tölvu sérstaklega svona þunna. Af hverju höfðu Asus tölvuna bara ekki örlítið dýrari (sem sagt jafn dýra og macbook air) og skjáinn úr áli? Ég skal alveg viðurkenna það að Apple getur verið með svakalega overpriced vörur ef þú berð bara saman vélbúnaðinn en í fartölvunum hjá þeim ertu bara að borga fyrir build quality. Þessi Uni-body hönnun er bara eitthvað sem PC markaðurinn er ekki búinn að ná að copy-a frá Apple. Kæmi mér svo sem kannski ekkert á óvart ef þeir eru með einkaleyfi fyrir þessu :P

Ál beyglast og helst beyglað. Plast beyglast og kemur til baka. Það er ekkert að því að hafa plast ef það er bara notað gott efni í þetta og hönnunin nógu góð þannig að það er ekki of mikið flex. Það er ekki allt unnið með því að hafa skjáinn úr áli. Þetta er bara hönnunarákvörðun.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 21:09
af FuriousJoe
VÁÁÁÁ getur fólk ekki bara "let it go" ?

Má enginn gera neitt vegna þess að apple er til ?




Ástæðan fyrir því að fólk þolir ekki Apple-fans = Þessi þráður.



Búið að setja ASUS logoið á Mac Book Air.

Og þarna segiru sjálfur að ASUS búnaður er það sama og apple, bara annar miði ;)
(sagt í gríni)

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:07
af Heihachi
To steal

Apple

pick one

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:14
af AntiTrust
Snuddi skrifaði:Fyrir mér er þetta eins og að bera saman Subaru Impresu og Benz C32 AMG, báðir 300+ hö en þeir sem hafa klassa og respect velja Benzann :)


Hah, þarna fórstu örlítið yfir strikið hvað varðar samanburðinn, bæði hvað varðar gæði, megin tilgang og verðflokka. Fyrir utan það að mér finnst hálf kjánalegt að sletta svona samanburði fram án þess að hafa handleikið báðar vélar, og mig grunar að þú hafir ekki komist í snertingu við Asus vélina? ;)

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:16
af Matti21
dori skrifaði:Ál beyglast og helst beyglað. Plast beyglast og kemur til baka. Það er ekkert að því að hafa plast ef það er bara notað gott efni í þetta og hönnunin nógu góð þannig að það er ekki of mikið flex. Það er ekki allt unnið með því að hafa skjáinn úr áli. Þetta er bara hönnunarákvörðun.

"The one downside we found with the UX31’s design is its cheap plastic black display bezel. For all of the other effort put into the notebook’s design, cutting corners here seems silly."
Tekið úr review-inu sem var póstað hérna fyrir ofan. Álið í macbook vélum er ekki að fara að beyglast mikið...ekki nema þú kannski missir tölvuna á eitthvað. Við sömu aðstæður mundi hinsvegar plast brotna. Ég mundi nú sætta mig við smá beyglu ofan á skjánum mínum fram yfir brotinn skjá any day.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:40
af Tiger
AntiTrust skrifaði:
Snuddi skrifaði:Fyrir mér er þetta eins og að bera saman Subaru Impresu og Benz C32 AMG, báðir 300+ hö en þeir sem hafa klassa og respect velja Benzann :)


Hah, þarna fórstu örlítið yfir strikið hvað varðar samanburðinn, bæði hvað varðar gæði, megin tilgang og verðflokka. Fyrir utan það að mér finnst hálf kjánalegt að sletta svona samanburði fram án þess að hafa handleikið báðar vélar, og mig grunar að þú hafir ekki komist í snertingu við Asus vélina? ;)


Þetta var nú bara í nettu gríni, orðinn nett þreyttur á þessu apple vs not-apple þráðum. Ef apple væri ekki til værum við ekki á þessum stað í dag, og ef restin væri ekki til þá værum við ekki heldur staddir á þessum stað í hönnun og þróun á tölvum. Þannig að prísum okkur sæla með að þetta sé allt saman til svo allir geti verið ánægðir og fundið eitthvað við sitt hæfi.

Re: Talandi um að stela hönnun frá Apple

Sent: Fim 03. Nóv 2011 22:41
af AntiTrust
Snuddi skrifaði:Þannig að prísum okkur sæla með að þetta sé allt saman til svo allir geti verið ánægðir og fundið eitthvað við sitt hæfi.


Agreed.