Síða 1 af 1
Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 02:53
af Ripparinn
Já, þið vaktarar ver'ið að hjálpa mér aðeins :O
Þannig er mál með vexti að ég er með 8000k xenon í bílnum minum(Nissan Almera 00' Luxury) og aðalljósin kvikna ekki þegar ég starta bílnum. Þegar ég sný lyklinum einu sinni kviknar á þeim en þegar ég sný tvisvar, semsagt kveiki á dósini, þá slökknar á þeim. og ég get snúið lyklinum aaaaaaðeins lengra þegar buið er að starta þá kviknar á þeim aftur, en auðvitað helst það ekki á.
Hvað er hægt að gera í svona löguðu og mæliði með einvherjum sem geta kíkt á svona dæmi ?
kv ósýnilegi gæinn á almeruni
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 03:05
af Klaufi
Gæti veirð svissbotninn.
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 08:08
af blitz
Ef þetta eru aftermarket Xenon þá vona ég að þetta komist aldrei í lag.
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 08:09
af tdog
Gæti líka verið faulty relay.
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 12:09
af Haxdal
blitz skrifaði:Ef þetta eru aftermarket Xenon þá vona ég að þetta komist aldrei í lag.
ójá ..
Og plís segðu mér að þú sért með þau rétt hæðarstillt, það er lítið meira pirrandi en að mæta gaur með vanstillt Xenon ljós í bílnum sínum
..
edit:
http://www.youtube.com/watch?v=RDjTglCu84U
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 12:27
af capteinninn
Tengist ekki viðgerð á ljósunum hjá þér en er ekki verst þegar glerið hjá ljósinu eða það er ekki gert fyrir xenon. Maður hlýtur að geta fengið rétt gler í bílinn og þá losnar maður við drasl xenonið
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Mán 31. Okt 2011 17:56
af Ripparinn
Þetta eru allveg legit xenon, ég hringdi í umferðarstofu og fékk info á þessu hjá þeim, og já þau eru rétt stillt hjá mér.
En já gæti þetta hugsanlega verið svissbotninn ?
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 15:30
af Ripparinn
anyone?
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 15:38
af Klaufi
Svissbotn og relay er búið að koma með, spurning um að kíkja á það.
Myndi byrja á relay-inu.
Gæti veirð spennir að klikka en efa það þegar þú getur kveikt á þeim með því að fara með lykilinn aðeins lengra..
Þegar þú gerir það, koma þau á í smástund og deyja strax aftur eða haldast þau inni á meðan þú heldur lyklinum í þeirri stöðu?
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 15:40
af Ripparinn
þau haldast inni ef ég sný lyklinum aðeins lengra eftir að ég er buinn að starta bílnum(snúa tvisvar)
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 15:43
af Klaufi
Þá ættu spennarnir að vera í lagi, ég skýt á svissbotninn en byrjaðu á að kíkja á relay-ið, það er auðveldara.
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 15:45
af Ripparinn
Veit ekkert mikið um þetta relay. Veistu hvar ég get farið og tékkað á þessu ?
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 16:40
af littli-Jake
hannesstef skrifaði:Tengist ekki viðgerð á ljósunum hjá þér en er ekki verst þegar glerið hjá ljósinu eða það er ekki gert fyrir xenon. Maður hlýtur að geta fengið rétt gler í bílinn og þá losnar maður við drasl xenonið
kallars projector
Re: Ljósin í bílnum
Sent: Þri 01. Nóv 2011 17:23
af gardar
Bilaðir spennar fyrir xenonið?