Síða 1 af 1

Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 02:18
af Krissi013
Einhverjir fleiri í vandræðum með að skrifa stafin "á" í stóru

"é" greinilega líka , var komman fyrir stóru stafina eitthvað færðir til?

er að nota caps-lock eins og hálviti
windows 7 btw

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 02:20
af Tesy
Á É ??

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 02:31
af Haxdal
Á É ..

ekkert vandamál hérna .. shift takkinn þinn í lagi ? :-"

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 02:37
af Gizzly
Virkar ekki að halda inni shift meðan þú ýtir á kommuna. Þarft að ýta á kommu, halda inni shift og svo á stafinn.

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 03:02
af Bioeight
Kannski er þetta eitthvað bilað hjá þér. Ég hef samt séð keylogger forrit gera þetta og þá við alla stafi, líka á og é o.s.frv. Kannski er þetta ný og betri útgáfa af keylogger sem skemmir bara stóra stafi með kommum. Mér finnst það ekkert líklegt en ég myndi samt athuga hvort það er kominn einhver trojan inná tölvuna þína til að vera 100% viss, ekki sniðugt að vera með keylogger inná vélinni.

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 03:47
af Krissi013
Gizzly skrifaði:Virkar ekki að halda inni shift meðan þú ýtir á kommuna. Þarft að ýta á kommu, halda inni shift og svo á stafinn.

Núna virkar það, skil ekkert hvað er í gangi, gat maður haldið inni shift allan tíman til að gera stórt Á í win xp?
Kanski hef ég bara alltaf gert það þannig
hélt nú samt að ég væri búnað marg-reina þetta.

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 03:51
af Gizzly
Krissi013 skrifaði:
Gizzly skrifaði:Virkar ekki að halda inni shift meðan þú ýtir á kommuna. Þarft að ýta á kommu, halda inni shift og svo á stafinn.

Núna virkar það, skil ekkert hvað er í gangi, gat maður haldið inni shift allan tíman til að gera stórt Á í win xp?
Kanski hef ég bara alltaf gert það þannig
hélt nú samt að ég væri búnað marg-reina þetta.


Man ekki hvernig þetta var í winxp, en hef alltaf gert þetta svona allavega. Alltaf virkað :p

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 05:42
af pattzi
Virkar bara í capslock hér hef svo sem aldrei pælt í þessu :svekktur

Re: Stórt á?

Sent: Sun 30. Okt 2011 06:00
af Bioeight
... :face ég skil augljóslega ekki vandamálið, þetta er of flókið fyrir mig.

Re: Stórt á?

Sent: Mið 02. Nóv 2011 02:47
af Krissi013
Var að lenda í þessu aftur ! komman virkar ekki á stóra stafi nema ég noti caps-lock

A á

Re: Stórt á?

Sent: Mið 02. Nóv 2011 04:06
af Danni V8
Tók eftir þessari breytingu einvherntímann fyrir löngu. Ég bara man hreinlega ekki hvort það var þegar ég var að skipta úr Windows 2000 yfir XP eða úr XP í 7, en það var allavega þannig að fyrst gat ég haldið inni shift á meðan ég ýtti á yfirkommuna og stafinn en eftir þurfti ég að ýta á yfirkommuna og síðan halda inni shift og ýta á stafinn. Tók mig um það bil 3 sekúndur að venjast þessu þá og þeta hefur ekki verið til vandræða síðan þá!

Lendirðu í vandræðum með alla stafina (Á Í É Ó Ú Ý) eða bara Á og É? Ertu með Logitech SetPoint installað?

Re: Stórt á?

Sent: Sun 06. Nóv 2011 00:26
af Krissi013
Nei er ekki með setpoint.
Er að nota G15 lykklaborð og ekki með neina drivera installaða
Og já þetta er með alla kommu stafina. Það er ekki nóg fyrir mig að ýta á kommu takkan fyrst og svo halda inni shift fyrir stóran staf, verð að nota caps-lock.

Re: Stórt á?

Sent: Sun 06. Nóv 2011 00:58
af Tesy
Gizzly skrifaði:Virkar ekki að halda inni shift meðan þú ýtir á kommuna. Þarft að ýta á kommu, halda inni shift og svo á stafinn.


Þetta virkar hjá mér..

Re: Stórt á?

Sent: Sun 06. Nóv 2011 01:00
af hendrixx
tr :sleezyjoe ll