Síða 1 af 1

Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 13:03
af Zethic
Jæja ég er að reyna kaupa Borderlands + alla aukapakka á $7,49 en það er eitthvað óþolandi vesen.


Er með fyrirfram greitt kreditkort (venjuleg er dauðadómur) og þar sem ég fékk nýtt síðustu mánaðarmót þá hef ég ekki náð að staðfesta það í gengum Paypal (sem hefur alltaf virkað) en það bara virkar ekki. Heldur ekki að setja bara upplýsingarnar beint inn.

Er einhver annar að lenda í þessu ? Eða veit hvað er málið?


Er hjá Íslandsbanka :/

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 13:16
af Zpand3x
já .. hef lent í þessu.. yfirleitt í kringum það þegar þessi tilboð eru á steam.. Hringdi í Valitor og þeir segja að steam sendi þeim ekki öryggisnúmerið rsum.. man ekki nákvæmlega hvað var vandamálið. Svoldið síðan þetta gerðist (eða síðan ég keypti leik á steam :P)

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 14:21
af Danni V8
Ég lenti í þessu og hringdi í Valitor líka og þeir sögðu mér það sama, að þeir fengu aldrei sent öryggisnúmerið.

Svo ég hafði samband við Steam support og sagði þeim það sem Valitor sagði mér og þeir löguðu þetta um leið.

Þeir eru ekki lengi að laga vandamál þegar þeir fá pening fyrir það :lol:

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 14:22
af DJOli
síðast þegar ég sá, þurfti að hafa 1000kr.- meira á kortinu en þú ætlar að eyða, hvort það kosti auka þúsundkall að kaupa leiki á steam núna or something....vinur minn var allega að kaupa leik fyrir annan vin okkar, á 50$ á steam.

50$ eru sirka 5.700kr.-

Steam hleypti kaupunum ekki í gegn fyrr en innistæða kortsins var komin í 6.700kr.- sirka.

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 14:49
af Plushy
Ég hringdi í Arion banka og þau gáfu mér númerið þegar ég bað um það og greindi fyrir þeim hvað ég var að reyna gera.

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 28. Okt 2011 18:28
af worghal
Med thad sem djoli sagdi, tha geturu bara eytt 90% af inneign sem er a kortinu

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 09. Des 2011 13:34
af Zpand3x
worghal skrifaði:Med thad sem djoli sagdi, tha geturu bara eytt 90% af inneign sem er a kortinu


Hey já.. það var einmitt lausnin.. mundi það einmitt núna þegar ég ætlaði að kaupa SC2 og var að hlaða inná kortið.. Datt í hug að bumpa þetta fyrir alla sem eru að fara að kaupa leiki á steam um jólin :P Leggið 10% (kannski 15% to be sure) meira inná kortið en hluturinn kostar ef þú ert að kaupa hlut með öðrum gjaldmiðli en ISK.

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 09. Des 2011 13:59
af GuðjónR
Hef ekki lent í þessu, en allt í einu tók Steam upp á því að birta ekki í Store og News.
Þannig að ég er ekkert að fara að eyða neinum $$ þarna :-"

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 09. Des 2011 14:18
af J1nX
GuðjónR skrifaði:Hef ekki lent í þessu, en allt í einu tók Steam upp á því að birta ekki í Store og News.
Þannig að ég er ekkert að fara að eyða neinum $$ þarna :-"


ætli konan hafi bara ekki komist í þetta og bannað þér að kaupa leiki ? :D

Re: Steam vesen, einhver?

Sent: Fös 09. Des 2011 14:22
af GuðjónR
J1nX skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Hef ekki lent í þessu, en allt í einu tók Steam upp á því að birta ekki í Store og News.
Þannig að ég er ekkert að fara að eyða neinum $$ þarna :-"


ætli konan hafi bara ekki komist í þetta og bannað þér að kaupa leiki ? :D


#-o