Síða 1 af 3

Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 18:57
af Black
Núna er að fara í gang næst stærsta fjáröflun björgunarsveitana s.s. neyðarkallinn. Ég er Nýliði í Hjálparsveit Skáta Kópavogi og verð að selja neyðarkallinn dagana 3-6 nóvember, Hjálparsveit Skáta Kópavogi er með 16 sölustaði.
Vona að sem flestir styrki okkur svo við getum haldið starfseminni áfram; endurnýjað útkallsbúnaðinn okkar, farartæki og fleira :)

Í ár er "neyðarkallin" kona á skíðum

Mynd

Mbk, Nýliði í Hjálparsveit Skáta Kópavogi.
Mynd

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 18:58
af GuðjónR
Hvað kostar hann (hún) í ár?

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 19:13
af Black
GuðjónR skrifaði:Hvað kostar hann (hún) í ár?


1500kr

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 19:57
af Leviathan
Hvers vegna eru björgunarsveitirnar ekki ríkisreknar? Meikar ekki meira sens að láta þær fá það sem við borgum RÚV eða í trúfélög? :-k

Asnalegt að þau þurfi að standa í fjáröflunum á meðan RÚV fær hellings pening og veitir okkur ekkert í staðinn. Ofan á það þá græða þeir á auglýsingasölu. 8-[

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 20:10
af GuðjónR
Leviathan skrifaði:Hvers vegna eru björgunarsveitirnar ekki ríkisreknar? Meikar ekki meira sens að láta þær fá það sem við borgum RÚV eða í trúfélög? :-k

Asnalegt að þau þurfi að standa í fjáröflunum á meðan RÚV fær hellings pening og veitir okkur ekkert í staðinn. Ofan á það þá græða þeir á auglýsingasölu. 8-[


Gæti ekki verið meira sammála...leggja niður þjóðkirkjuna og stórefla björgunarsveitirnar.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 20:17
af rapport
Afhverju eru þið þá ekki að selja og auglýsa "Neyðarkonu" í stað þess að selja og auglýsa neyðarkarl sem er kona???

p.s. afhverju erþetta kona?

No boobs...

Þetta er meira eins og karl með smá gloss reyndar...

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:13
af Kristján
rapport skrifaði:Afhverju eru þið þá ekki að selja og auglýsa "Neyðarkonu" í stað þess að selja og auglýsa neyðarkarl sem er kona???

p.s. afhverju erþetta kona?

No boobs...

Þetta er meira eins og karl með smá gloss reyndar...


kemur hann :D nei djók, reyndar rétt hjá þér en án þess að breyta þessu i eitthvað allt annað.

til að svara guðjóni og Leviathan, þá erum við ekki með ríkistjórn sem getur processað það að gera þetta, djöfulsins pakk sem við erum með í stjórn....

edit> já ég mun kaupa neyðarkonuna.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:21
af methylman
Við kaupum Neyðarkallinn á hverju ári óháð kynferði

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:22
af svensven
Hef keypt hann undanfarin 3 ár og held því áfram núna.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:26
af Bjosep
rapport skrifaði:Afhverju eru þið þá ekki að selja og auglýsa "Neyðarkonu" í stað þess að selja og auglýsa neyðarkarl sem er kona???

p.s. afhverju erþetta kona?

No boobs...

Þetta er meira eins og karl með smá gloss reyndar...


Gaur, þetta er útivistargella! Þær eru yfirleitt flattoppa!

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:29
af tdog
Já, ég ætla að splæsa. Enda alveg sjálfsagt mál.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:36
af Black
ég held að ástæðan fyrir því að þetta er kallað "neyðarkall" sé í raun útaf þetta er "Neyðarkall" as in kalla á hjálp..En ég held að ríkistjórninn sé að halda þessum sveitum einhvað uppi en annars borga ég öll námskeið t.d úr mínum vasa, var á helgar fyrstuhjálparnámskeiði alla helgina og ég borgaði fyrir það sem er í sjálfumsér sjálfsagt mál,en það er ekkert gefins að vera í hjálparsveit flestir eru með búnað í einkaeign uppá hálfamilljón það er bara mjög eðileg tala :alienprofile

En það er flott að fólk sé virkt í að styrkja hjálparsveitirnar í landinu :)

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 21:38
af Haxdal
rapport skrifaði:Afhverju eru þið þá ekki að selja og auglýsa "Neyðarkonu" í stað þess að selja og auglýsa neyðarkarl sem er kona???

Af því að þetta er Neyðarkall, ekki Neyðarkarl .. leikur með orðum ef þú hefur ekki fattað það áður.

Og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem það hefur verið kona sem Neyðarkall.

Og já, mun kaupa Neyðarkallinn og festa ofaná skjáinn minn niður í vinnu með hinum Neyðarköllunum :)

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 23:40
af zedro
Vantar nýja lyklakippu þannig já! :happy

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 23:51
af Zaphod
lágmark eitt stykki neyðarkall/kona á ári, stundum fleiri. :)

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Sun 23. Okt 2011 23:54
af cure
Ætla að sleppa því þetta árið, lofa að eyða mjög miklu í flugelda í staðin \:D/

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 24. Okt 2011 01:06
af Frost
Ég mun örugglega skella mér í að selja þá og endilega flestir að kaupa og styrkja mjög gott málefni :happy

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 24. Okt 2011 01:43
af methylman
Ef maður getur ekki fest kaup á Álfi frá SÁÁ og Neyðarkalli einu sinni á ári þá er maður nú farinn að nálgast það að vera algjör loooser

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 24. Okt 2011 11:07
af Leviathan
Björgunarsveitirnar vinna mjög gott starf, hvað gerir SÁÁ fyrir þig? Græða þeir ekki nóg á spilakössunum? SÁÁ er bara djók...

Ég mun allavega versla neyðarkallinn og flugelda um áramótin.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 24. Okt 2011 11:14
af DabbiGj
Svona varðandi það að ríkið ætti að reka björgunarsveitirnar að þá stendur ríkið að rekstri björgunarskipa hringinn í kringum landið í samstarfi við Landsbjörg.

Ég held að björgunarsveitir almennt eru ekki hrifnar af því að fara að verða ríkisstofnanir og kunni að meta það frelsi sem að þær njóta með því ða fjármagna sig sjálfar.

Annars er mikilli orku eytt t.d. í þjálfun nýliða einsog Black og fá þeir verðmæta þjálfun og víðfeðma þjálfun og þurfa rétt svo að borga fyrir sameiginlegan mat á námskeiðum og námsgögn einsog bækur sem að þau eiga áfram.

Annars er ég líka félagi í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi og hlakka til að fara ð selja Neyðarkallinn í næsta mánuði þarsem að það er gaman að sjá stuðningin og velviljann sem að fólk sýnir þessu starfi sem að er unnið allt árið.

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 19:59
af Black

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:04
af bulldog
Nei því miður er að fara að kaupa mér skjákort \:D/

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:07
af schaferman
Bæði selja og kaupa

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:13
af vesley
bulldog skrifaði:Nei því miður er að fara að kaupa mér skjákort \:D/



Hlýtur að geta pungað út 1500kall auka fyrir neyðarkallin ;)

Re: Ætlar þú að kaupa Neyðarkallinn?

Sent: Mán 31. Okt 2011 20:17
af urban
voðalega eru margir sem að átta sig ekki á því hvað neyðarkall björgunarsveitanna stendur fyrir.

í raun er snarvitlaust að það sé talað um að selja neyðarkallinn.
þar sem að ef að menn kaupa fígúruna þá eru þeir að svara neyðarkalli björgunarsveitana.

EDIT
en já, að sjálfsögðu tekur maður þátt :)