Síða 1 af 1

Notar skype innlent niðurhal ?

Sent: Sun 23. Okt 2011 17:28
af kjarribesti
Var að hugsa ef ég er að chatta mike/webcam við vini mína á íslandi á skype er ég að nota erlent eða innlent niðurhal ?

Re: Notar skype innlent niðurhal ?

Sent: Sun 23. Okt 2011 18:47
af Klemmi
Skype er peer2peer, svo þetta ætti allt að vera innlent við innlendu vini þína.

Re: Notar skype innlent niðurhal ?

Sent: Sun 23. Okt 2011 18:57
af gardar
Klemmi skrifaði:Skype er peer2peer, svo þetta ætti allt að vera innlent við innlendu vini þína.



Ertu viss?
Skype geymir amk allt chat log á skype aðganginum þínum, svo að þetta fer í gegnum einhvern miðlægan þjón.

Re: Notar skype innlent niðurhal ?

Sent: Sun 23. Okt 2011 18:59
af Klemmi
gardar skrifaði:
Klemmi skrifaði:Skype er peer2peer, svo þetta ætti allt að vera innlent við innlendu vini þína.



Ertu viss?
Skype geymir amk allt chat log á skype aðganginum þínum, svo að þetta fer í gegnum einhvern miðlægan þjón.


Skype = Sky peer-to-peer

En auðvitað er miðlægur þjónn sem þú tengist þegar þú loggar þig inn og broadcastar þar með IP-tölunni þinni o.s.frv. :) Svo það eru einhver byte sem teljast til utanlands, en hljóð- og video-bandvíddinn á að telja sem innlent.