Síða 1 af 1
Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 19:01
af lukkuláki
Hefur einhver ykkar prófað að tengja HDD við Bewan Vodafone routerinn ?
Ég er búinn að prófa 2 harða diska og er engan vegin að fá þetta til að virka, er búinn að skoða og fara eftir þessum leiðbeiningum
http://www.vodafone.is/hugbunadur/leidbeiningar/Vox_Hardur_Diskur.pdf en það er alveg sama ég kemst ekki inn á diskinn ef hann er tengdur við þetta drasl.
Þetta er ferlega sniðugt EF þetta bara fengist til að virka eðlilega.
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 19:21
af steinarorri
Ég reyndi ótrúlega lengi að fá þetta til að virka á eldri Bewan routernum (b/g) en það gekk ekki neitt en datt í hug að reyna með nýja (bgn) og það gekk.
Þetta með fyrri routerinn var stórskrítið þar sem ég gat tengst flakkaranum en sá bara örfáar möppur og allt möppur merktar Lacie en ekkert með gögnunum mínum :/
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 19:59
af Bioeight
Ég prófaði flakkara sem er með rafmagnstengi, flakkara sem tekur bara rafmagn úr USB og nokkra minnislykla. Gat séð diskana tengda í router interface-inu en tókst aldrei að tengjast þeim frá annarri vél. Ég prófaði líka að fara með flakkarana til vinar míns sem var líka með Bewan router en þar var bara sama vandamálið. Ég fann enga lausn á þessu og veit ekkert hvað var að. Tæknimaður Vodafone nefndi einhverja diska sem hann sagði að myndu virka en ég var ekki að fara að kaupa nýjan flakkara fyrir þetta.
Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 20:03
af tdog
Skiptir skráarkerfið bara ekki málið?
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 20:07
af lukkuláki
tdog skrifaði:Skiptir skráarkerfið bara ekki málið?
Það virðist ekki vera ég er búinn að prófa bókstaflega allt sem mér dettur í hug og breyta skráakerfinu en það skiptir engu.
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 20:10
af Kristján
það eru 2 usb á bewan routernum,
eitt aftaná hjá snúrunum og eitt ofaná fyrir 3g pung held ég.
þið eruð að nota það sem er aftaná, eða virkar kannski bæði?
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 20:31
af lukkuláki
Kristján skrifaði:það eru 2 usb á bewan routernum,
eitt aftaná hjá snúrunum og eitt ofaná fyrir 3g pung held ég.
þið eruð að nota það sem er aftaná, eða virkar kannski bæði?
Hef prófað öll. Virkar ekki fyrir HDD
Eitt þeirra er ætlað 3G en öll USB virka eins.
Re: Bewan router og HDD
Sent: Lau 22. Okt 2011 20:40
af beatmaster
Einhver sagði að það þyrfti að kveikja á uPnP til að þú gætir fengið diskinn til að virka og mounta hann í windows/mac