Síða 1 af 3
Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:14
af greenpensil
Ég og félagi minn vorum að tala um rappara. Við vorum ósammála um hver væri besti lifandi rapparinn. Hann sagði að Eminem væri bestur en ég var ósammala því. Hann er kannski vinsælastur en ekki bestur.
EDIT: lokaði skoðanakönnuninni. Hún var léleg. Eminem var að vinna með 67% en síðan kom ANNAR og eftir því Snoop Dogg.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:16
af vesley
J-dilla nr1 og Common númer 2.
Big L var líka mjög góður en var svo stutt í bransanum
Edit. tók ekki eftir því að þú varst að tala um lifandi.
Það myndi kannski vera Common eða jafnvel Masta Ace eða einhver annar , get ekki valið einhvern 1
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:17
af djvietice
Eminem
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:22
af Klaufi
Þetta er svo langt frá því að vera eitthvað nálægt bestu röppurunum..
J.Dilla var flottur, inn á topp 20 hjá mér en ekki toppurinn sem rappari, eeen það yrði samt erfitt að gera á milli topp pródúsera, hann er í það minnsta í topp 5 fav's þar hjá mér.
P.s. Rapp þráður á vaktinni:
http://www.youtube.com/watch?v=VO-HPT_dykA
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:30
af greenpensil
Klaufi skrifaði:Þetta er svo langt frá því að vera eitthvað nálægt bestu röppurunum..
J.Dilla var flottur, inn á topp 20 hjá mér en ekki toppurinn sem rappari, eeen það yrði samt erfitt að gera á milli topp pródúsera, hann er í það minnsta í topp 5 fav's þar hjá mér.
P.s. Rapp þráður á vaktinni:
http://www.youtube.com/watch?v=VO-HPT_dykA
Ég setti nú bara þessa v rappara sem allir þekkja. Það eru mjög fáir sem ég þekki sem vita hver t.d. Big L og þessu gömlu og góðu eru. Nas er nú einn besti ef ekki besti rappari frá upphafi. Og hafiði heyrt eitthvað frá Royce? Nýjustu eru ekkert frábær en gömlu lögin eru ruglað góð.
EDIT: og þá má líka vera dauðir rapparar
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:37
af Magneto
J Dilla var rosalegur! og svo nottla Immortal Technique mjög góðurlíka... soldið brútal textar en samt sjúklega góðir
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:39
af Klaufi
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 19:57
af biturk
immortal technique
ill bill
necro
þessir þrír eru mér ofarlega í huga
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:05
af ViktorS
Immortal Technique, allavega besti textasmiðurinn.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:21
af greenpensil
ViktorS skrifaði:Immortal Technique, allavega besti textasmiðurinn.
Tjaa það er nú hægt að rökræða um það
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:22
af BjarniTS
Vantar alveg Gísla Pálma inn á þennan lista.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:27
af coldcut
Bíddu what? 5 af þessum 11 sem þú nefndir eru ekki rapparar! Þeir ættu að flokkast undir Hip-Pop stefnuna frekar en rapp/Hip-Hop!
Annars ætla ég ekki einu sinni að kjósa í þessari könnun því hún er til skammar. Kannski 3 þarna sem gætu farið á Top15/Top20-lista.
BjarniTS skrifaði:Vantar alveg Gísla Pálma inn á þennan lista.
hahahaha
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:30
af Klaufi
BjarniTS skrifaði:Vantar alveg Gísla Pálma inn á þennan lista.
Allt í lagi að spyrja að því hérna:
Hvað eru alvöru hip hop hausarnir hérna að hlusta á?
Þá er ég ekki að tala um mainstream "rapp"..
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:34
af braudrist
Gísli Pálmi ekki spurning. Set mig í gang er bara þvílík snilld
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:35
af BjarniTS
braudrist skrifaði:Gísli Pálmi ekki spurning. Set mig í gang er bara þvílík snilld
Snerti mig sem engan annan.
Þetta er það sem fær mig til vakna á morgnanna.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:38
af greenpensil
Klaufi skrifaði:BjarniTS skrifaði:Vantar alveg Gísla Pálma inn á þennan lista.
Allt í lagi að spyrja að því hérna:
Hvað eru alvöru hip hop hausarnir hérna að hlusta á?
Þá er ég ekki að tala um mainstream "rapp"..
Bestu underground rappararnir sem eru að gera tónlist núna eru að mínu mati: Royce da 5'9 þó hann sé orðinn mainstream eftir Bad Meets Evil, Joell Ortiz, Jedi Mind Tricks eru fínir og auðvitað Immortal Technique. Dettur ekki í hug fleiri í augnablikinu en þeir eru nokkrir.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:43
af coldcut
Klaufi skrifaði:Allt í lagi að spyrja að því hérna:
Hvað eru alvöru hip hop hausarnir hérna að hlusta á?
Þá er ég ekki að tala um mainstream "rapp"..
Biggie, Big Pun, Big L, Jedi Mind Tricks, Dilla, M.F. Doom, Pharcyde, Jurassic 5 o.s.frv. Alltof mikið til að telja upp...
Hlusta samt ekkert bara á svona sko...
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 20:50
af Klaufi
coldcut skrifaði:Biggie, Big Pun, Big L, Jedi Mind Tricks, Dilla, M.F. Doom, Pharcyde, Jurassic 5 o.s.frv. Alltof mikið til að telja upp...
Hlusta samt ekkert bara á svona sko...
Maður að mínu skapi..
Stór Doom fan, en hlusta á allan andskotan.
Búinn að hlusta mikið á Sage Francis, B. Dolan og Aesop Rock síðustu daga.
Er stór Rhymesayers fan líka..
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:16
af Orri
Það er alveg ástæða afhverju Eminem er vinsælasti rapparinn.
Hann varð heldur ekkert vinsælastur á einni nóttu.
Á þeim tíma þegar hann varð vinsæll þá var það ekkert jafn auðvelt og að pósta video á Youtube.
Hvað þá sem rappari og hvað þá hvítur rappari..
Að mínu mati er Eminem besti rapparinn overall.
Það eru kannski betri textasmiðar eða rapparar með betra/hraðara flow en hann, en overall er hann bestur.
Fer allt eftir því hvað þú leitast eftir í rappara.
PS. Kannski er ég bara mjög biased því ég hef hlustað á Eminem síðan ég man eftir mér.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:19
af Klaufi
Orri skrifaði:Það er alveg ástæða afhverju Eminem er vinsælasti rapparinn.
Hann varð heldur ekkert vinsælastur á einni nóttu.
Á þeim tíma þegar hann varð vinsæll þá var það ekkert jafn auðvelt og að pósta video á Youtube.
Hvað þá sem rappari og hvað þá hvítur rappari..
Að mínu mati er Eminem besti rapparinn overall.
Það eru kannski betri textasmiðar eða rapparar með betra/hraðara flow en hann, en overall er hann bestur.
Fer allt eftir því hvað þú leitast eftir í rappara.
PS. Kannski er ég bara mjög biased því ég hef hlustað á Eminem síðan ég man eftir mér.
Ég er jafn biased, og hann á alveg props skilið fyrir það hvað hann vann sér inn mikið af vinsældum.
Ég man ennþá eftir því þegar ég hringdi sem smápjakkur í pabba minn og bað hann að kaupa marshall mathers Lp í fríhöfninni fyrir mig..
Eeeen besti rapparinn er ekki það sama og vinsælasti rapparinn, sama hvernig hann fór að því að vinna sér inn þessar vinsældir.
Vona að einhver nái punktinum mínum..
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:25
af coldcut
Eminem var góður.
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:31
af rapport
http://www.youtube.com/watch?v=zMulFaqRmNwÞetta lag finnst mér alltaf með þeim flottustu...
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:33
af Orri
Klaufi skrifaði:Eeeen besti rapparinn er ekki það sama og vinsælasti rapparinn, sama hvernig hann fór að því að vinna sér inn þessar vinsældir.
Held þú hafir ekki alveg skilið punktinn minn.
Við erum ekki að tala um vinsældir eins og Justin Bieber..
Eminem er ekki vinsæll því hann er svo sætur eða með flott hár.
Eminem er vinsæll því hann er svo hæfileikaríkur.
Ekki bara á einu sviði rappsins heldur öllum.
Þessvegna segi ég hann vera bestann overall.
Vonandi er þetta skiljanlegt haha
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:36
af Klaufi
Orri skrifaði:Held þú hafir ekki alveg skilið punktinn minn.
Við erum ekki að tala um vinsældir eins og Justin Bieber..
Eminem er ekki vinsæll því hann er svo sætur eða með flott hár.
Eminem er vinsæll því hann er svo hæfileikaríkur.
Ekki bara á einu sviði rappsins heldur öllum.
Þessvegna segi ég hann vera bestann overall.
Vonandi er þetta skiljanlegt haha
Skildi þetta alveg hjá þér
En stuttu eftir að hann varð vinsæll, þá varð nánast allt grátlegt sem kom frá honum. Sbr. Póstinum frá Kaldskurði.
Harðkjarna menn myndu jafnvel kalla þetta: "Sellout".
Re: Besti Rapparinn?
Sent: Fös 21. Okt 2011 21:44
af greenpensil
Orri skrifaði:Klaufi skrifaði:Eeeen besti rapparinn er ekki það sama og vinsælasti rapparinn, sama hvernig hann fór að því að vinna sér inn þessar vinsældir.
Held þú hafir ekki alveg skilið punktinn minn.
Við erum ekki að tala um vinsældir eins og Justin Bieber..
Eminem er ekki vinsæll því hann er svo sætur eða með flott hár.
Eminem er vinsæll því hann er svo hæfileikaríkur.
Ekki bara á einu sviði rappsins heldur öllum.
Þessvegna segi ég hann vera bestann overall.
Vonandi er þetta skiljanlegt haha
Ég tel að Eminem sé ekki bestur, hann er samt lang vinsælastur. Hann
var mjög góður í gamla daga en hann er ekki lengur svo góður. Ég er samt viss um að nokkuð stór þáttur í vinsældum hans er að hann er hvítur. Þó að hann hafi gefið út klassísk lög eins og t.d. Mocking Bird og When im gone sem eru með bestu storytelling lögum sem ég hef heyrt. Lögin hans eru samt mjög breytt frá í gamla daga. Núna er hann bara vælandi í lögunum sínum.
Hann er samt ekki jafngóður og hann er vinsæll. Margir aðdáendur hans eru einhverjar unglingsstelpur sem halda að hann sé besti rappari í heimi.
Að mínu mati er Nas bestur en hann er hættur í hip-hopi.