Síða 1 af 1
Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:23
af kazzi
sjáið linkinn ATH EKKI FYRIR VIÐKVÆMA,en maður fyllist bara reiði við að sjá svona
http://www.dv.is/frettir/2011/10/17/otr ... rdi-neitt/
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:27
af Philosoraptor
ég er orðlaus... algjörlega orðlaus... djöfulsins viðbjóður
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:29
af GuðjónR
Ég var að horfa á þetta áðan og er bara með tárin í augunum yfir þessu.
Þetta er það allra versta sem ég hef séð á netinu frá upphafi...og hef ég séð margt ljótt.
Ég dauðsé eftir því að hafa horft á þetta.
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:37
af AntiTrust
Peng Yu áhrifin í hnotskurn.
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:44
af kazzi
Já en samt þótt að fólk geti lent í "veseni" með að hjálpa litlu barni,mér er alveg sama .svona gerir fólk ekki.
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:56
af Bidman
já merkilegt mál þarna með Ping Pong sem hjálpaði gömlu konunni upp úr jörðinni og var sektaður fyrir... kommúnisminn enn að sanna sig
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 16:03
af Kristján
veit ekki hvað ég á að segja en þetta kemur mér ekki á óvart
er að verða daufur fyrir svona, maður er að komast að svo miklu núna að maður heldur að maður sé buinn að sjá það versta en svo kemur alltaf eitthvað meira vont meira íllt sem topar síðasta.
eins og manneskjan getur verið góð, getur hún verið margfalt vondari.
Re: Hvað er að í þessum heimi
Sent: Mán 17. Okt 2011 16:30
af rapport
Mér er hreinlega óglatt.
Ég mun kenna börnunum mínum að hjálpa fólki með því að vera þeim góð fyrirmynd.