Síða 1 af 1
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 08:36
af Plushy
http://visir.is/grimuklaeddir-thjofar-b ... 1111019112Tveir grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Kópavogi í nótt og stálu þaðan töluverðum verðmætum og komust undan.
Þeir brutu rúðu í versluninni til að komast inn og á upptökum úr eftirlitsmyndavélum sjást þeir láta greipar sópa um verslunina. Lögregla er nú að skoða upptökurnar nánar.
Brotist var inn í þrjár tölvuverslanir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og eru þau mál enn óupplýst.
Jæja er þetta einhverjar búðir sem við þekkjum?
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 09:28
af Kristján
þær eru nú nokkrar verslanirnar er það ekki.
en það sem mér datt strax i hug, ef verslanirnar mundu láta stjórnendur vaktarinnar eða modana fá upplýsingar um hvað var stolið þannig það er hægt að sjá hvort það er verið að selja þetta herna.
ég skil að það er aldrei víst að þetta muni koma hingað en kannski flestir okkar fá þá upplysingarnar og ég er ekki að segja að við förum og leitum að auglýsingum bara ef einhver okkar rekst á þetta þá er hægt að láta vita.
svo er líka ekkert víst hvort þetta fari á netið, þetta gæti farið beint á milli manna eða eitthvað.
en bara svona hugmynd sem stjórnendur geta kannski ponderað með og gert það sem þeir vilja.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 10:45
af appel
Spurning hvort þessar búðir þurfi að hafa varðhunda í verslunum eftir að þeim lokar.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 11:02
af Kristján
mér bregður stundum yfir hversu svona verslannir eru ekki með gott kerfi hjá sér.
jújú, það er með eitthvað frá securitas eða eitthvað en svo eru HUGE gluggar þarna sem tekur 30sec að brjóta og komast inn og út á 5 til 10 mín sléttum.
og eina sem þessi kerfi gera er að koma einhverjum manni á staðinn til að staðfesta að það sé rán í gangi og hann svo hringir i lögguna og má ekkert gera,
ég vann hjá securitas btw. svo myndavélarnar ná yfirleitt bara grímuklæddum mönnum.
hví ekki að gera þetta almennilega og aldrei lenda í ráni??? mundi það borga sig, veit ekki, er þetta ekki hvort sem er allt tryggt.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 11:37
af Pandemic
Mæli með að setja öryggisfilmur í glerin þá er ekki séns að brjóta þær, eitthvað svipað þessu
http://www.shattergard.com/home.html.
Var að horfa á þátt á Discovery þar sem þeir voru að prófa þetta. Þetta gerir þjófunum lífið leitt með því að gera glerið mikið sterkara og helst í þótt það brotni svo það sker stigamennina þegar þeir reyna að komast í gegnum það.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 12:02
af AntiTrust
Um að gera að dæla því út hverju var stolið, ég monitora flestar tækja/tölvusölusíður landsins eins og margir aðrir.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 12:33
af GuðjónR
Tveir grímuklæddir menn rændu tölvuverslun í nótt.
Þrír grímuklæddir menn rændu úrabúð í morgun og komust undan á stolnum bíl.
Talið er að um útlendinga sé að ræða.
Mér finnst nú ekki ólíklegt að þessi mál tengist.
http://visir.is/grimuklaeddir-thjofar-b ... 1111019112http://visir.is/raeningjarnir-ganga-enn ... 1111019078
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 12:55
af astro
Jaaahá.. það er greinilegt að BF3 sé að koma út
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 12:57
af AncientGod
allir að upgrada =D
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 13:00
af BirkirEl
væri jú mjög sniðugt fyrir þessar búðir að láta vita hvað það er sem var stolið. maður getur þá haft augun opin fyrir sölunni.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 13:47
af Klaufi
Pandemic skrifaði:Mæli með að setja öryggisfilmur í glerin þá er ekki séns að brjóta þær, eitthvað svipað þessu
http://www.shattergard.com/home.html.
Var að horfa á þátt á Discovery þar sem þeir voru að prófa þetta. Þetta gerir þjófunum lífið leitt með því að gera glerið mikið sterkara og helst í þótt það brotni svo það sker stigamennina þegar þeir reyna að komast í gegnum það.
Veistu til þess að það sé umboð fyrir þetta á landinu?
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 14:04
af Pandemic
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 14:59
af GuðjónR
Ef þetta eru útlendingar þá er líklegt að þeir reyni að flytja góssið út.
Veit einhver hvaða tölvuverslanir hafa verið að lenda í þessu undanfarið?
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 15:02
af Prags9
Mæli með Kemi.
Re: Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun
Sent: Mán 17. Okt 2011 16:07
af Kristján
GuðjónR skrifaði:Ef þetta eru útlendingar þá er líklegt að þeir reyni að flytja góssið út.
Veit einhver hvaða tölvuverslanir hafa verið að lenda í þessu undanfarið?
buy.is nýlegast sem var verið að tala um herna
macland, fyrir nokkru síðann
svo veit ég ekki meir.