Síða 1 af 1

Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 15:50
af Black
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... 20T%F6lvur

Vildi benda á að tölvuvirkni selur líka notaðar vörur, félagi minn fékk um daginn tölvu með Q6600 b0g, með 4gb muskhin, og hd7770 og 1tb disk á 50.000kr er búinn að sjá 3x svipaða vél á þessu verði, algjör snilld fyrir þá sem vilja spara, síðan er hálfárs ábyrgð á hlutunum þó þeir séu notaðir :D

Just sayin :)

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 15:51
af bulldog
það er 6 mánaða ábyrgð

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 16:59
af Black
bulldog skrifaði:það er 6 mánaða ábyrgð

já átti að vera hálfsársábyrgð, skrifaði óvart heilsárs ;þ

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 19:02
af Bjosep
Það er kannski bara vangeta mín til að verðmeta hluti rétt en ég er svo sem ekkert að missa mig yfir því hversu frábær verðin þeirra eru.

Ég átta mig allavega ekki á því hversu verðmætt 6 mánaða ábyrgð og xp er í dag.

En þetta er kannski bara rugl í mér og sanngjörn verð?

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 19:24
af Nitruz
Black skrifaði:http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&flo=product&id_top=3943&topl=3942&clfc=3944&head_topnav=Nota%F0ar%20T%F6lvur

Vildi benda á að tölvuvirkni selur líka notaðar vörur, félagi minn fékk um daginn tölvu með Q6600 b0g, með 4gb muskhin, og hd7770 og 1tb disk á 50.000kr er búinn að sjá 3x svipaða vél á þessu verði, algjör snilld fyrir þá sem vilja spara, síðan er hálfárs ábyrgð á hlutunum þó þeir séu notaðir :D

Just sayin :)

þessar tölvur sem eru í boði núna á 50 þúsund bilinu eru bara með duo.

Just sayin.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 21:35
af zedro
Núna er ég reyndar svolítið forvitinn. Hefur Tölvuvirkni rétt á því að ákveða það að það sé 6mánaða ábyrgð? :-k
Þeir eru jú tölvubúð að selja tölvuvöru burtséð frá því hvort þeir segi að hún sé "notuð" eða ekki.
Það er lögbundinn 2 ára ábyrgð á tölvuvörum. Þeir sem eru góðir í lögfræðinni meiga endilega tjá sig :P

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 21:55
af worghal
Zedro skrifaði:Núna er ég reyndar svolítið forvitinn. Hefur Tölvuvirkni rétt á því að ákveða það að það sé 6mánaða ábyrgð? :-k
Þeir eru jú tölvubúð að selja tölvuvöru burtséð frá því hvort þeir segi að hún sé "notuð" eða ekki.
Það er lögbundinn 2 ára ábyrgð á tölvuvörum*. Þeir sem eru góðir í lögfræðinni meiga endilega tjá sig :P

*nýjum raftækjum/tölvu vorum.

gætir jafnvel sótt rétt þinn á 5 ára ábyrgð ef þú færð mat um það :P

enn hingað til hefur tíðkast að gefa staðbundna 6 mánaða ábyrgð á notuðum raftækjum sem eru fallin úr ábyrgð.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 22:21
af Gúrú
worghal skrifaði:

Samkvæmt hvaða breytingu á lögum nr. 48 frá 20. mars 2003?

    Þessar tölvur eru seldar til neytenda og seljandi þeirra hefur atvinnu sína af sölu þeirra.
    Neytandinn væri í þessu tilfelli einstaklingur að kaupa tölvuna utan atvinnustarfsemi.
    Lögin eru ófrávíkjanleg, það má ekki semja um né bera fyrir sig kjör sem að eru neytendum óhagstæðari en lögin leiða til.
og
    Ef söluhlutur reynist gallaður og gallinn er hvorki sök neytanda né stafar af aðstæðum sem hann varða getur neytandi:
    a. haldið eftir greiðslu kaupverðs samkvæmt ákvæðum 28. gr.;
    b. valið milli úrbóta eða nýrrar afhendingar samkvæmt ákvæðum 29. og 30. gr.;
    c. krafist afsláttar samkvæmt ákvæðum 31. gr.;
    d. krafist riftunar samkvæmt ákvæðum 32. gr.;
    e. krafist skaðabóta samkvæmt ákvæðum 33. gr.;

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 22:44
af AntiTrust
Ég man reyndar ekki til þess að hafa lesið neitt sérstaklega um B vörur í kaupalögum, en það hefur tíðkast síðan ég man eftir mér í flestum búðum að selja sýningarvörur/skilavörur/refurbished/notaðar vörur sem B vörur undir 6 mánaða ábyrgð með tilheyrandi afsláttum.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 22:45
af worghal
þarna er ekkert minnst á lengd ábyrgðar, ef ef að tólvu hlutirnir reynast gallaðir eða bilaðir innan þessara 6 mánaða sem er gefið upp, þá ætti ekki að vera mikið mál að sækja rétt sinn í ábyrgðina.
þar sem ég hef séð notuð raftæki til sölu og fengið að heyra af ábyrgð, þá hafa 6 mánuðir komið sterkir inn.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 23:08
af Gúrú
AntiTrust skrifaði:Ég man reyndar ekki til þess að hafa lesið neitt sérstaklega um B vörur í kaupalögum, en það hefur tíðkast síðan ég man eftir mér í flestum búðum að selja sýningarvörur/skilavörur/refurbished/notaðar vörur sem B vörur undir 6 mánaða ábyrgð með tilheyrandi afsláttum.

Mig rámar líka sérstaklega í það að einhversstaðar komi fram að það séu undanþágur fyrir sýningarvörur, finn
það bara ekki í þessari löggjöf og vil því endilega vita hvar það var sem þetta stóð,
og þá líka hvað gefur þeirri löggjöf/reglugerð gildirétt yfir svona skýra klausu um að lögin séu ófrávíkjanleg.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 23:09
af worghal
spurning hvernig þetta sé flokkað þegar þeir selja svona notað, semsagt ekki sýningar vörur, er þetta umboðssala eða geta þeir flokkað þetta undir uppboð ?

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 23:10
af ponzer
Er þetta vélar sem þeir selja í "rekstarleigu" til fyrirtækja og fá svona til baka eftir X tíma og selja svo til "almennings" ?.. Væri gaman að vita hvaðan þessar vélar koma..

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 23:26
af lukkuláki
worghal skrifaði:
Zedro skrifaði:Núna er ég reyndar svolítið forvitinn. Hefur Tölvuvirkni rétt á því að ákveða það að það sé 6mánaða ábyrgð? :-k
Þeir eru jú tölvubúð að selja tölvuvöru burtséð frá því hvort þeir segi að hún sé "notuð" eða ekki.
Það er lögbundinn 2 ára ábyrgð á tölvuvörum*. Þeir sem eru góðir í lögfræðinni meiga endilega tjá sig :P

*nýjum raftækjum/tölvu vorum.

gætir jafnvel sótt rétt þinn á 5 ára ábyrgð ef þú færð mat um það :P

enn hingað til hefur tíðkast að gefa staðbundna 6 mánaða ábyrgð á notuðum raftækjum sem eru fallin úr ábyrgð.

5 Ára ábyrgð (kallað kvörtunarfrestur) á bara við um dýrari vörur og oft stærri raftæki sem ætlast er til að endist lengi
(kallað ,,viðurkenndur meðallíftími" og er mjög teygjanlegt)
Einhver getur varla ætlast til þess að fá 5 ára ábyrgð af ódýrum notuðum tölvuvörum ?

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mið 12. Okt 2011 23:38
af atlif
ponzer skrifaði:Er þetta vélar sem þeir selja í "rekstarleigu" til fyrirtækja og fá svona til baka eftir X tíma og selja svo til "almennings" ?.. Væri gaman að vita hvaðan þessar vélar koma..

þeir kaupa tölvuna af þér ef þú vilt s.s getur farið með tölvuna þína niður eftir og þeir staðgreiða hana ef þú ætlar kannski að uppfæra eða bara losa þig við tölvuna

http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... %20Nota%F0

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Fim 13. Okt 2011 00:03
af ponzer
atlif skrifaði:
ponzer skrifaði:Er þetta vélar sem þeir selja í "rekstarleigu" til fyrirtækja og fá svona til baka eftir X tíma og selja svo til "almennings" ?.. Væri gaman að vita hvaðan þessar vélar koma..

þeir kaupa tölvuna af þér ef þú vilt s.s getur farið með tölvuna þína niður eftir og þeir staðgreiða hana ef þú ætlar kannski að uppfæra eða bara losa þig við tölvuna

http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... %20Nota%F0

Sniðugt.. En allar vélarnar eru í allaveg eins kössum, getur verið að þeir setji þær í nýja kassa ?

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Fim 13. Okt 2011 00:09
af AntiTrust
ponzer skrifaði:Sniðugt.. En allar vélarnar eru í allaveg eins kössum, getur verið að þeir setji þær í nýja kassa ?

Þætti það mjög líklegt, ekki auðvelt að selja sjúskaðan Medion kassa á 50k t.d.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Fim 13. Okt 2011 02:08
af HelgzeN
Hef oft skoðað þarna, það hafa allveg verið vélar þarna í öðruvísi kössum.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mán 24. Okt 2011 16:07
af Magneto
hefur einhver hérna selt Tölvuvirkni tölvuna sína eða tölvuvörur?
og veit einhver hvað þeir mundu gefa mér ca. mikið fyrir þessa vél?

Intel E8400
Gigabyte GA-P35-DS3L
2x1GB DDR2 800Mhz (er með 2GB í viðbót sem ég mundi selja þeim líka)
Nvidia 9800 GT 512MB
300GB HDD
55W aflgjafi
Antec 300 Case

Þyrfti eiginlega að fá svar sem fyrst, t.d. ef það er einhver sem vinnur í Tölvuvirkni eða ehv...

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mán 24. Okt 2011 16:12
af Gúrú
Magneto skrifaði:Þyrfti eiginlega að fá svar sem fyrst, t.d. ef það er einhver sem vinnur í Tölvuvirkni eða ehv...

Netfang: info@tolvuvirkni.is
Söludeild: info@tolvuvirkni.is

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Mán 24. Okt 2011 16:28
af lukkuláki
Gúrú skrifaði:
Magneto skrifaði:Þyrfti eiginlega að fá svar sem fyrst, t.d. ef það er einhver sem vinnur í Tölvuvirkni eða ehv...

Netfang: info@tolvuvirkni.is
Söludeild: info@tolvuvirkni.is

Tölvuvirkni kaupir notaðar tölvur, skjái, fartölvur og tölvuíhluti gegn staðgreiðslu

Tölvur og fartölvur mega vera bilaðar eða óvirkar.

þú kemur til okkar í Tölvuvirkni með vöruna að Holtasmára 1 Kópavogi.
Starfsmenn Tölvuvirknis meta það sem þú hefur uppá að bjóða og gera tilboð í vöruna.
Tölvuvirkni staðgreiðir þær vörur sem eru keyptar.

Ekki er hægt að meta hluti í síma eða í gegnum tölvupóst.

Re: Tölvuvirkni selur notaðarvörur.

Sent: Þri 25. Okt 2011 15:34
af Gúrú
lukkuláki skrifaði:
Gúrú skrifaði:
Magneto skrifaði:Þyrfti eiginlega að fá svar sem fyrst, t.d. ef það er einhver sem vinnur í Tölvuvirkni eða ehv...

Netfang: info@tolvuvirkni.is
Söludeild: info@tolvuvirkni.is

Ekki er hægt að meta hluti í síma eða í gegnum tölvupóst.

Til hvers að kvóta mig með í þessu? Átti ég að segja honum að hafa hvorki samband í síma né tölvupósti heldur að hafa bara
póstinn sinn hérna á einhverju random spjallborði?