Síða 1 af 1
Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 19:56
af fedora1
Var að spá í að kaupa leikjatölvu fyrir 6 ára guttan minn.
Hvaða leikjatölvu mæla vaktarar með og hvers vegna ? XBOX 360 með Kinect eða PS3 ?
Ég á erindi til þýskalands, hafa menn reynslu af því að kaupa leikjatölvur úti? Það er hægt að fá XBox360 + Kinect á 50k sem er sama og bara tölvan hér.
Ég er bara með 28" túbu sjónvarp eins og er, en það kemur af því að það verður endurnýjað.
Allar ábendingar eru vel þegnar.
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 20:00
af worghal
ég held það séu fleiri leikir á ps3 sem 6 ára krakki gæti skemmt sér yfir
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 20:12
af Magneto
sammála því sem worghal sagði... auk þess að það er sennilega auðveldara fyrir 6 ára krakka að halda á og nota PS3 fjarstýringu heldur en X360 fjarstýringu.
Hinsvegar gæti XBOX360+Kinect útaf Kinect-inu, örugglega mjög gaman fyrir barn... mundu bara að fyrir það þarf svolítið opið rými
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 21:08
af Televisionary
Xbox 360 og Kinect klárlega.
Hvaða leikjatölvu mæla vaktarar með og hvers vegna ? XBOX 360 með Kinect eða PS3 ?
Ég á erindi til þýskalands, hafa menn reynslu af því að kaupa leikjatölvur úti? Það er hægt að fá XBox360 + Kinect á 50k sem er sama og bara tölvan hér.
Ég er bara með 28" túbu sjónvarp eins og er, en það kemur af því að það verður endurnýjað.
Allar ábendingar eru vel þegnar.
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 21:13
af capteinninn
Ég er mjööög ánægður með xboxið mitt, getur fengið leiki ódýrara í gengum xbox360.is (7-9 þús í stað 12-14), getur fengið tölvu með kinect á kringum 40k held ég líka þar.
Ég prófaði ps3 í nokkra daga en var ekki jafn hrifinn, reyndar þekki ég samt fleiri sem spila xbox þannig að ég er að spila með fleirum.
Hef ekki prófað kinect en það er víst mikil snilld, örugglega gaman fyrir krakka að leika sér í því.
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 21:19
af HalistaX
Klárlega Playstation 3
Mun fleiri og betri leikir fyrir yngrikynslóðina, Move og svo er hún mjög einföld í notkun..
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 21:52
af blitz
hannesstef skrifaði:Ég er mjööög ánægður með xboxið mitt, getur fengið leiki ódýrara í gengum xbox360.is (7-9 þús í stað 12-14), getur fengið tölvu með kinect á kringum 40k held ég líka þar.
Ég prófaði ps3 í nokkra daga en var ekki jafn hrifinn, reyndar þekki ég samt fleiri sem spila xbox þannig að ég er að spila með fleirum.
Hef ekki prófað kinect en það er víst mikil snilld, örugglega gaman fyrir krakka að leika sér í því.
Það geta allir verslað í gegnum amazon.co.uk, get ekki séð að xbox360.is séu að bjóða uppá eitthvað merkilegt.
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Mán 03. Okt 2011 22:37
af fedora1
Það eru greinilega skiptar skoðanir.
Hvað segja menn um aðra fídusa eins og að spila myndir. Geta þær ekki báðar spilað myndir af smb share ?
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Þri 04. Okt 2011 02:14
af pattzi
blitz skrifaði:hannesstef skrifaði:Ég er mjööög ánægður með xboxið mitt, getur fengið leiki ódýrara í gengum xbox360.is (7-9 þús í stað 12-14), getur fengið tölvu með kinect á kringum 40k held ég líka þar.
Ég prófaði ps3 í nokkra daga en var ekki jafn hrifinn, reyndar þekki ég samt fleiri sem spila xbox þannig að ég er að spila með fleirum.
Hef ekki prófað kinect en það er víst mikil snilld, örugglega gaman fyrir krakka að leika sér í því.
Það geta allir verslað í gegnum amazon.co.uk, get ekki séð að xbox360.is séu að bjóða uppá eitthvað merkilegt.
Þeir fá 5% af hverri sölu að ég held þannig ég versla frekar þar til að styrkja samfélagið kaupi líka punkta þarna af síðunni ekki amazon
annars xbox átti playstation en fékk mér xbox 360 250 gb langar samt í þessa útgáfu
http://budin.is/tilbod/127-xbox-360-320 ... ed-ed.html
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Þri 04. Okt 2011 06:07
af Danni V8
Miðað við það sem ég hef séð af krökkum í kringum mig, bæði sem vinir og fjölskyldufólk eiga, þá vilja krakkar miklu frekar Wii en PS3 eða Xbox...
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Þri 04. Okt 2011 07:25
af g0tlife
lego og út að leika sér ?
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Þri 04. Okt 2011 09:48
af J1nX
Danni V8 skrifaði:Miðað við það sem ég hef séð af krökkum í kringum mig, bæði sem vinir og fjölskyldufólk eiga, þá vilja krakkar miklu frekar Wii en PS3 eða Xbox...
verð að vera sammála því.. litlu frænkur mínur eru óðar í wii tölvuna mína þegar þær koma í heimsókn
alveg frá 4-10 ára
New Super Mario Bros er í miklu uppáhaldi ásamt Smurfs Dance Party
Re: Hvaða leikjatölva?
Sent: Þri 04. Okt 2011 15:51
af stubbur312
ég myndi kjósa ps3 eg er sjálfur Xbox notandi, en myndi segja ps3 fyrir hann
hún er mjög einföld að nota, og með betra til að horfa á myndbönd/myndir,
en já ekki láta svindla á Þer þegar þú kaupir þer . skoðaðu xbox360.is ef thu færð þer xbox. annars psx.is , en veit ekki um wii