Síða 1 af 1
Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 13:39
af skrifbord
Hæ, afsakið ég kanski búi til þráð hér um þetta. En ríkið er á fullu að taka af mér peninga. Og það er ekki eðlilegt. Mig vantar því lögfræðing sem fer með peningamál fyrir einstaklinga, ekki samt slysabætur eða þannig heldur gegn ríkinu. Veit einhver um einhverja sem sinna slíku?
kv
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 13:41
af cure
Hahaha (Gangi þér vel)
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 13:43
af beatmaster
Mér finnst mjög líklegt að þú þurfir að útskýra þetta eitthvað nánar svo að þú fáir ekki bara eitthvað flame í þennann þráð
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 13:50
af skrifbord
ok. málið er bara leita að lögfræðingi sem sinnir ef ríkið er að beita samborgarana óeðlilegum kröfum á peninga.
sleppið óþarfa kommentum. Bara ef einhver hefur þurft að sækja eitthvað með aðstöð lögfræðings til ríkisins.
kv
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 13:54
af Hjaltiatla
skattur eða sekt ?
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 14:01
af skrifbord
ok þetta er fyrir kunningja sem er öryrki. átti húsbréf sem hann seldi og það er bara nær allt tekið fyrir sem skuld við tryggingastofnun
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 14:38
af rapport
LEX vinnur með og á móti ríkinu en þeir eru beittir (hef ég heyrt en ekki af reynslu).
En ég er forvitinn um hvernig ríkið getur skuldajafnað skuld við Tryggingastofnun og húsbréfaeign án þess að tala við viðkomandi einstakling, það er ólöglegt (mundi ég halda).
ILS er stofnun og Tryggingastofnun líka = þessar tvær stofnanir eiga ekki og meiga ekki vinna saman í innheimtu eða skuldajöfnun eða e-h sem "hámarkar" þeirra sameiginlega hag, það væri sambærilegt eins og að þú yrðir böstaður fyrir þjófnað í Bónus og það yrði tekið af inneignarnótu sem þú átt í Debenhams.
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 14:46
af skrifbord
það er það sem þeir gera. Ef þu átt of mikið og ert að fá mánaðarlegar tekjur, og selur það svo (eins og húsbréf) þá telja þeir að þeir hafi verið að borga þér án þess að hafa átt að borga þér því þú áttir peninga. Málið er, fyrir hrun þurfti ekki að gefa upp til skatts hluti eins og húsbréf en eftir hrun fór það að koma á skattskyrslum víst, þetta segir hann mér.
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 14:54
af Kristján
þetta er tapaður peningur held ég..
mundi frekar setja þetta á bland.is miklu fleiri sem lesa það og eru mögulega i sömu málum.
svo líka bara gulu síðurnar or some.
gangi ykkur vel
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 15:12
af beatmaster
Er hann semsagt að missa bætur því að húsbréfasalan er flokkuð sem tekjur?
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 15:14
af skrifbord
jamm það er rétt beatmaster
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 15:28
af stjani11
en þarf hann að borga til baka það sem hann var þegar búinn að fá?
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 15:31
af skrifbord
já. gerð skuldakrafa á hann og tekið af honum á mánuði af þeim litlu tekjum sem hann fær frá tr
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 17:40
af FriðrikH
Já, þetta eru reglurnar og það er til lítils að fara í mál, þetta er flokkað sem tekjur og koma til frádráttar bótum á því ári sem sölutekjurnar eru taldar fram.
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 18:37
af skrifbord
hefði verið betra fyrir hann þegar hann seldi íbuð fyrir 8 árum og tók þessi bréf upp í til að vaxtast að selja það bara þá. I stað þess að missa þetta núna. Þetta er fáráðanlegt !
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 18:41
af Gúrú
Mér finnst alveg magnað hvað fólk sem að er á bótum virðist aldrei vita
neitt um það undir hvaða forsendum og skilyrðum
það er að fá þær. Nánast undantekningalaust (að vísu fær maður ekki að heyra af þeim sem að hafa þetta á hreinu) gerast svona hlutir
af því að bótþeginn leit bara á þetta sem greiðslur sem að hann "á alltaf að fá mánaðarlega" no questions asked.
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 18:50
af skrifbord
ok nú er þetta að fara þróast í ranga umræðu. Eins og óttast var. Enginn að tala um að hugsun sé þannig. Heldur hugsun um að verið sé að taka af það sem fólk hefur unnið sér inn fyrir 8 árum og um ævina við vinnu.
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 19:49
af Gúrú
skrifbord skrifaði:ok nú er þetta að fara þróast í ranga umræðu. Eins og óttast var. Enginn að tala um að hugsun sé þannig. Heldur hugsun um að verið sé að taka af það sem fólk hefur unnið sér inn fyrir 8 árum og um ævina við vinnu.
Jebb, get bara nánast ekki sleppt því að minnast á þetta samt, auðvitað leiðinlegt að misskilja skilmálana og missa af fjármunum svona
en það er líka frekar spes að hafa ekki alveg á hreinu hvað má og hvað ekki í svona máli (fyrir 8 árum þegar að hann tók ákvörðunina).
Re: Veit einhver hér um góða Peningalögfræðinga gegn ríkinu?
Sent: Lau 01. Okt 2011 20:12
af skrifbord
Allt aðrir tímar þá. ekkert svona gefið til skatts og hann fattaði ekki að selja þetta áður en hann fór á örorku, þá væri þetta ekki svona.