Síða 1 af 1
Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 11:48
af bulldog
Mig langar til þess að gefa Tölvuvirkni hrós í sambandi við þjónustu. Nú er þetta í annað skipti sem ég fæ gallaða vöru hjá þeim og þeir skipta vörunni út strax fyrir nýja mér að kostnaðarlausu.
1) Ég keypti Corsair Force 3 120 gb ssd disk sem var gallaður og þeir skiptu honum strax út þegar gallinn kom í ljós.
2) Ég keypti uppfærslu sem var móðurborð, minni og örgjörvi. Það kom í ljós við skoðun að móðurborðið var gallað og því var skipt út mér að kostnaðarlausu. Skoðunin var líka frí hjá þeim eftir að það kom í ljós með gallann.
Ég vil gefa þeim mín bestu meðmæli svona þjónustulund gerir það að verkum að þeir fá fleiri viðskipti frá mér. Bestu tölvubúðirnar á Íslandi án alls vafa eru Tölvutækni og Tölvuvirkni.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 11:58
af FuriousJoe
Þetta er bara sama þjónusta og annarstaðar t.d hjá Tölvutek.
Ef varan er gölluð auðvitað er henni skipt út (t.d SSD diskur, ekki geta þeir gert við hann?)
Og auðvitað er það að kostnaðarlausu, ekki rukka menn fyrir að skipta út gallaðri vöru? (hef amk ekki kynnst því hingað til)
Flott að gefa hrós en þetta eru svo hversdagslegir atburðir.
Þetta er eitthvað sem öll tölvufyrirtækin gera.
(Þetta hljómaði rosalega eins og einhver auglýsing, þessvegna kommentaði ég á þetta.)
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 12:05
af worghal
Maini skrifaði:Þetta er bara sama þjónusta og annarstaðar t.d hjá Tölvutek.
Ef varan er gölluð auðvitað er henni skipt út (t.d SSD diskur, ekki geta þeir gert við hann?)
Og auðvitað er það að kostnaðarlausu, ekki rukka menn fyrir að skipta út gallaðri vöru? (hef amk ekki kynnst því hingað til)
Flott að gefa hrós en þetta eru svo hversdagslegir atburðir.
Þetta er eitthvað sem öll tölvufyrirtækin gera.
(Þetta hljómaði rosalega eins og einhver auglýsing, þessvegna kommentaði ég á þetta.)
ég held að aðal punkturinn og hrósið falli á það hversu fljótir þeir voru að redda málunum
þótta að þetta séu hversdagslegir hlutir, þá eru verslanir mjög mismunandi þegar kemur að hraða.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 16:12
af FuriousJoe
worghal skrifaði:Maini skrifaði:Þetta er bara sama þjónusta og annarstaðar t.d hjá Tölvutek.
Ef varan er gölluð auðvitað er henni skipt út (t.d SSD diskur, ekki geta þeir gert við hann?)
Og auðvitað er það að kostnaðarlausu, ekki rukka menn fyrir að skipta út gallaðri vöru? (hef amk ekki kynnst því hingað til)
Flott að gefa hrós en þetta eru svo hversdagslegir atburðir.
Þetta er eitthvað sem öll tölvufyrirtækin gera.
(Þetta hljómaði rosalega eins og einhver auglýsing, þessvegna kommentaði ég á þetta.)
ég held að aðal punkturinn og hrósið falli á það hversu fljótir þeir voru að redda málunum
þótta að þetta séu hversdagslegir hlutir, þá eru verslanir mjög mismunandi þegar kemur að hraða.
Sammála því
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 17:57
af schaferman
Hef nú lennt í mismunandi þjónustu varðandi ábyrgð hjá tölvufyrirtækjum,, sumstaðar MJÖG slæmum,, en Tölvuvirkni hafa alltaf reynst mér vel hingað til
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:00
af bulldog
Tölvulistinn , att , computer.is og Elko eru öll með HRÆÐILEGA þjónustu
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:21
af bAZik
^ Att hafa alltaf verið með mjög góða þjónustu þegar ég versla hjá þeim. Hinsvegar er ég ekki jafn heppinn með Tölvutækni og flestir á vaktinni - þegar ég lendi í veseni með vöru frá þeim sem hefur gerst tvisvar hingað til, þá hef ég þurft að bíða í a.m.k. viku þangað til ég heyri eitthvað frá þeim.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:23
af bulldog
prufaðir þú að hringja eða sendirðu þeim tölvupóst ?
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:23
af worghal
Att hefur staðið sig í stykkinu þegar ég hef verslað við þá
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:24
af bAZik
bulldog skrifaði:prufaðir þú að hringja eða sendirðu þeim tölvupóst ?
Já, marg oft, þeir segjast ætla athuga á málinu og hringja til baka eftir smástund en þeir hringja aldrei.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 18:32
af bulldog
Þetta hljómar rosalega ólíkt þeim
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 20:32
af Klemmi
bAZik skrifaði:bulldog skrifaði:prufaðir þú að hringja eða sendirðu þeim tölvupóst ?
Já, marg oft, þeir segjast ætla athuga á málinu og hringja til baka eftir smástund en þeir hringja aldrei.
Því miður gerist þetta inn á milli sem er að sjálfsögðu ekki til sóma og enn leiðinlegra ef þú hefur lent í þessu oftar en einu sinni
Það koma tímabil inn á milli þar sem það er einfaldlega allt of mikið að gera fyrir þennan fámannaða vinnustað þó svo að allir leggi sig fram og séu tilbúnir til að vinna frameftir á kvöldin. Við erum búnir að reyna að ráða á því bót með því að leita eftir góðum starfsmönnum en því miður eru umsóknirnar mjög misjafnar og erfitt að finna menn sem henta vel, eru áhugasamir og eru að leita eftir framtíðarstarfi.
Okkur þykir mjög leiðinlegt þegar svona hlutir koma fyrir og á þessum álagstímum reynum við yfirleitt að gera vel við þá sem þurfa að bíða lengst og að sjálfsögðu reynum við eftir mesta megni að standa við þau loforð um að hringja til baka þegar slíku er lofað en ég fyrir mitt leiti verð þó að viðurkenna að stundum hef ég gleymt því þar sem maður t.d. svarar í símann, talar við einhvern um viðgerð, festist svo beint í afgreiðslu í hálftíma og svarar svo aftur beint í símann, eftir að því samtali er lokið þá því miður getur komið fyrir að maður gleymi því að bjalla í þennan fyrsta kúnna eða koma því til skila til þess sem var að vinna í tölvunni að hann eigi að hringja.
Þetta gerist þó aðallega þegar einmitt, er fyrir einhverja tilviljun extra mikið að gera á verkstæðinu en ætti að lagast með tilkomu auka starfsmanna
Ég vona að það séu sem fæstir sem lenda í svona vandamálum með okkur og vona einnig að þeir sem eru svo óheppnir sýni því skilning að við erum á fullu að leita eftir starfsmönnum til að geta haldið þjónustustiginu á því háa stigi sem við viljum bjóða.
Allra beztu kveðjur,
Klemenz Hrafn
Tölvutækni
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 20:38
af worghal
klemmi, ég mundi sækja um vinnu hjá ykkur, en ég er hræddur við að Matrox slegi mig utanundir
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:12
af MatroX
worghal skrifaði:klemmi, ég mundi sækja um vinnu hjá ykkur, en ég er hræddur við að Matrox slegi mig utanundir
afhverju?...
ég væri löngu búinn að sækja um hjá þeim ef ég væri ekki með flott starf.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:17
af Nuketown
Mér finnst elkó með frábæra þjónustu hingað til ef maður kemur til þeirra. en símaþjónustan er hræðileg.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:18
af bulldog
Ég myndi nú ekki halda að matrox myndi slá fast .... en ég hélt líka að hann væri að vinna hjá Tölvutækni þangað til að hann sagði mér að hann væri ekki að vinna þar. Þannig að þetta er greinilega algengur misskilningur
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:20
af worghal
þetta er bara léttur brandari þar sem ég er ekkert of gáfaður um tölvuhluti
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:21
af MatroX
haha true... en varstu búinn að registera móðurborðið? tókst þér það fyrir 30 dagana?
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:22
af worghal
já, rétt svo xD
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:25
af MatroX
worghal skrifaði:já, rétt svo xD
Thanks to me right? hehe
sorry með offtopic.
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:30
af bulldog
meinarðu móðurborðið sem var gallað sem ég fékk ?
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:31
af worghal
nei, evga p67 ftw mitt
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 22:34
af bulldog
já ókei. var ekki viss hvort móðurborðið hann væri að tala um
Re: Tölvuvirkni - HRÓS -
Sent: Þri 27. Sep 2011 23:46
af g0tlife
án efa leiðinlegasta tölvuverslun sem ég hef verslað hjá ! Þeir létu mig fá vitlaust skjákort eitt skiptið svo gleymdu þeir að láta harðadisk í mér sem ég bað svo líka um að sá diskur mundi vera stýrisdiskurinn. Þegar það komst upp með það að þeir gleymdu að láta hann í þá neituðu þeir að láta hann í sem stýrisdisk nema ég mundi borga þeim fyrir það. Borga þeim semsagt að leiðrétta sín eigin mistök...