Síða 1 af 2

Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:36
af hauksinick
Getur einhver svarað mér þessari líka vandræðalegu spurningu?

Hvar er geymirinn í Benz E420?

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:42
af kjarribesti
í hliðinni / vinstri í húddinu ?

Man ekki nákvæmlega

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:43
af hauksinick
kjarribesti skrifaði:í hliðinni / vinstri í húddinu ?

Man ekki nákvæmlega

Ekki þar,fáránlegt alveg hreint.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:44
af Porta
Eru þau ekki oftast í skottinu á benzum?
Undir gólfinu í skottinu?
Þannig er það allavega á mínum :)

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:49
af hauksinick

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:50
af SolidFeather
stjarna.is

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:53
af mercury
hömm sennilega í hægra hliðarhólfinu í skottinu. "er geimirinn" ef ég man rétt.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:54
af Moldvarpan
3 staðir sem koma til greina.

Undir húddinu.
Undir aftursætinu.
Í annari hliðinni í skottinu.


Er ekki hægt að opna skottið með lykli?

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 16:56
af hauksinick
Nei lykillinn virkar ekki

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:00
af Frussi
Geturðu ekki fellt niður aftursætin?

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:00
af Moldvarpan
Er s.s. skrá fyrir lykil á skottinu sem þú nærð ekki að snúa? Eða er engin skrá?


Bensíntankurinn er held ég á milli aftursætanna og skottsins.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:01
af hauksinick
Skrá sem ég næ ekki að snúa..

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:05
af Moldvarpan
Ertu búinn að kíkja undir aftursætið? samkvæmt http://wiki.answers.com/Q/Where_is_the_battery_located_on_a_Mercedes_E420

Þá er það undir aftursætinu. Hvort þetta sé rétt, veit ég ekki.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:06
af hauksinick
búinn að tjékka..ekki þar

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:11
af Moldvarpan
Þá finn ég bara http://wiki.answers.com/Q/How_do_you_open_the_trunk_of_our_Mercedes_2000_S500_when_the_battery_is_dead_The_key_doesn%27t_work

Þetta er ekki E420, en þar sem þinn geymir er á sama stað, og lykillinn virkar ekki, þá hugsa ég að taktíkin sé svipuð og þessi til að komast inn án þess að skemma.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:19
af hauksinick
Hvað meinar hann með að setja mínusinn á "the frame of the car" ?

Bara í jörð?

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:23
af Moldvarpan
Já það er verið að tala um jörð þarna - " the frame of the car"

Áttu til hleðslutæki sem þú getur stillt hleðsluna á?

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:24
af hauksinick
Ekki kominn svo langt.En held ekki.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:25
af hauksinick
En það skemmtielgasta við þetta er að það vantar hurðaspjaldið bílstjóra megin og þar með takkarnir til að stilla sætið og að ég held til að opna allt eru ekki á!

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:28
af 322
Það á að vera PLÚS í húddinu á bílnum einhverstaðar, sennilega hlíf sem þú þarft að smella af. Og svo setur þú mínusinn í járn í bílnum, ekki lakkað eins og bretti. Gæti verið sniðugt ef þú kemur kaplinum í vélarhengjuna, sem þú mundir festa í ef þú værir að hífa mótorinn upp úr bílnum...

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:30
af Moldvarpan
Ég held að þú þurfir á fagaðstoð að halda, http://www.stjarna.is/spjall/

Takmarkað sem við tölvunördin getum aðstoðað held ég :D

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 17:58
af Ulli
Moldvarpan skrifaði:Ég held að þú þurfir á fagaðstoð að halda, http://www.stjarna.is/spjall/

Takmarkað sem við tölvunördin getum aðstoðað held ég :D


Nau ný uppáhalds bílasíða :)

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 19:47
af hauksinick
322 skrifaði:Það á að vera PLÚS í húddinu á bílnum einhverstaðar, sennilega hlíf sem þú þarft að smella af. Og svo setur þú mínusinn í járn í bílnum, ekki lakkað eins og bretti. Gæti verið sniðugt ef þú kemur kaplinum í vélarhengjuna, sem þú mundir festa í ef þú værir að hífa mótorinn upp úr bílnum...


Þú ert að tala um að "jump-a" sem er ekki möguleiki í þessum. Búinn að komast að því að ég þarf að tjakka hann upp eða setja hann á lyftu og setja straum beint á startarann.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 22:06
af rapport
Ég hef ekki hugmynd um hvar geymirinn er í mínum bíl en í húddinu er merktir staðir ef ég þarf eða þarf að gefa start...


Þú gætir s.s. tengt þessa staði á þínum bíl við annan með startköplum og hlaðið einhverju inn á hann, best væri náttúrulega að starta honum hreinlega.

Re: Vandræðileg spurning

Sent: Fös 23. Sep 2011 22:07
af hauksinick
rapport skrifaði:Ég hef ekki hugmynd um hvar geymirinn er í mínum bíl en í húddinu er merktir staðir ef ég þarf eða þarf að gefa start...


Þú gætir s.s. tengt þessa staði á þínum bíl við annan með startköplum og hlaðið einhverju inn á hann, best væri náttúrulega að starta honum hreinlega.

Hvernig bíl ertu með?