Síða 1 af 1

Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 00:42
af BjarniTS
Samkvæmt heimasíðu Toshiba ,

http://www.toshiba-europe.com/eu/contac ... up=Iceland

Þá er þetta Einar Farestveit , eru þetta réttar upplýsingar ?

Er þetta svona í dag ?

Vantar að panta viftu í Toshiba Satellite Pro U200 , þetta virðist bara ekki vera til neinsstaðar og ég finn hvergi vörunúmer eða neitt.
Toshiba Satellite Pro U200
Model No : PLUA1E-01J01NN5
Serial NO : X6621199G

Hef nú tekist að grafa flest uppi á internetinu en ef að þið finnið þetta megi þið endilega láta mig vita. En athugið , Toshiba Satellite Pro U200 og Toshiba Satellite U200 er ekki sama vélin :)

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 00:54
af AntiTrust
Nördinn, hafa þjónustað Toshiba í mörg ár.

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 03:08
af Saber
Veit ekki hvernig þetta er með Toshiba, en þegar mig vantaði viftu í Sony vélina mína, þá hafði ég bara samband við "parts & accessories" hjá ferðatölvudeild Sony í USA og þeir sendu mér þetta beint. Kostaði skilding en var samt ódýrara heldur en að kaupa þetta úr einhverri e-shop. (fann eina sem átti þetta til)

Ég er reyndar með USA model af lappa. Þú hlítur að geta fundið út hvaða deild Toshiba framleiðir parta í þessa vél þína og panta beint frá þeim. Það er oftast einfaldara heldur en að eiga við þessi "umboð" hér á landi.

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 07:43
af gutti

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 11:10
af FuriousJoe
Nördinn sér um Toshiba, Fujitsu og m.a Sony.

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 14. Sep 2011 13:11
af einarhr
janus skrifaði:Veit ekki hvernig þetta er með Toshiba, en þegar mig vantaði viftu í Sony vélina mína, þá hafði ég bara samband við "parts & accessories" hjá ferðatölvudeild Sony í USA og þeir sendu mér þetta beint. Kostaði skilding en var samt ódýrara heldur en að kaupa þetta úr einhverri e-shop. (fann eina sem átti þetta til)

Ég er reyndar með USA model af lappa. Þú hlítur að geta fundið út hvaða deild Toshiba framleiðir parta í þessa vél þína og panta beint frá þeim. Það er oftast einfaldara heldur en að eiga við þessi "umboð" hér á landi.


Ég sá um allar pantanir fyrir Toshiba hjá Tæknival og svo Task þegar þau voru með umboðið, nú er Elvar með þetta hjá Nördanum. Toshiba selur ekki beint til einkaaðila en ef þú lætur Nördin panta þetta fyrir þig þá tekur það í flestum tilvikum ekki meira en 24 til 36 tíma að fá þetta sent frá Þýskalandi ef varahluturinn er til á lager. Þetta á einungis við um Toshibavélar framleiddar fyrir EU/ESB en oftar en ekki getur Toshiba reddað varalhutum í USA vélar því þetta er oft sömu varahlutirnir en bara að annað Partnumber.

Sendu póst á Nördan með Serialnúmerinu af vélinni og sjáðu hvað þeir geta gert fyrir þig. Annar er þá bara að leyta að þessu á Ebay.

Re: Hverjir eru með Toshiba umboðið hérna heima ?

Sent: Mið 22. Júl 2015 11:43
af steingrimur
hver er með umboðið núna?