Síða 1 af 1
Sögur um tölvuverslanir hér og erlendis
Sent: Fim 11. Ágú 2011 23:28
af AncientGod
ég væri til að heyra slæmar og góðar sögur varðandi verslanir hér og erlendis gaman að lesa svona og kynna sér málið hvernig mismunandi fólk hefur fengið þjónustu bæði slæma og góða.
Vill ekki að þessi þráður fari í off-topic og allir að rífast og segja hvað verslun sé best og hvað er versta það er bara leiðindi að lesa þannig.
Og eitt að lokum vona að stjórnin samþykki þennan þráð =D
Re: Sögur um tölvuverslanir hér og erlendis
Sent: Fim 11. Ágú 2011 23:29
af kjarribesti
Þetta endar sem enn einn buy.is þráðurinn, cmon er þetta ekki komið gott....
bara læsa þessu áður en vaktarar fara að takast á hérna
Re: Sögur um tölvuverslanir hér og erlendis
Sent: Fim 11. Ágú 2011 23:33
af AncientGod
Af hverju buy ? mig langar bara að heyra eithverja sögur og engin rifrildi vill vita kosti og ókosti hjá tölvubúðum bæði hér og erlendis, ég er nokkuð sáttur með buy.is eina slæmi kostur að þetta tekur sinn tíma annars hann friðjón er mjög góður maður eins og eitt skipti hann komst ekki með vöruna minna á pósthús þannig hann skutlaðist með þetta heim til minn =D og ég var mjög ánægður með það.
Re: Sögur um tölvuverslanir hér og erlendis
Sent: Fim 11. Ágú 2011 23:34
af kjarribesti
Hef upplifað góða þjónustu sérstaklega hjá tölvutækni og buy.is.
Annars, @tt.is alltaf staðið við sitt og tæknibær svosem líka. Tölvutek með frábæra þjónustu líka.
Re: Sögur um tölvuverslanir hér og erlendis
Sent: Fim 11. Ágú 2011 23:48
af biturk
mín reynsla er sú að tölvutek á akureyri hafa staðið sig GRÍÐARLEGA vel og eiga þeir lof skilið
tölvulistinn mætti liggja hliðiná úldnu selspiki mín vegna
buy.is hafa staðið sig frábærlega í viðskiptum við mig
kísildalurinn hefur verið rosalega hjálpsamur þó ég hafi ekki verslað beint við þá
computer.is hafa staðið sig mjög vel í mínum viðskiptum