Síða 1 af 1
Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:08
af bulldog
Ég var að hugsa um kassa fyrir Sandybridge setupið mitt. Hvernig líst ykkur á þennan
http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16811129091 Antec Lanboy Red Black.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:23
af Gunnar
ef þú elskar ryk þá er þetta kassinn fyrir þig.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:28
af AntiTrust
Ef ég á að vera hreinskilinn þá er þetta líklega með ljótari kössum sem ég hef séð.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:45
af bulldog
komiði þá með betri hugmyndir
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:52
af Gunnar
kominn með ógéð á háværum kössum svo næst turn sem ég mun fá mér er líklega antec P193 eða líkt þeim kössum.
samt frekar P183 V3 útaf hliðin á P193 er ekki svöl. en hann kælir samt líklega betur svo ég er ekki viss
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:54
af AncientGod
Ekki taka þennan kassa þetta er bara mistök, prófaðu að lesa reviews um hann eða skoða video þá sérðu hvað er að honum.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 19:57
af AntiTrust
Antec P183/193. Ég var með 183 og hefði ekki getað verið sáttari. Flottur, solid, sturdy, gott loftflæði, nóg af viftum, vel hljóðeinangraður og fínt cable management.
Annars sá ég þessa tvo um daginn, lúkka geðveikt clean og fá flott review :
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6811146067http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6811139005
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 20:20
af Gunnar
eða jafnvel einhvern stílhreinann lian li turn. þeir eru MJÖG flottir margir af þeim.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 20:56
af ZoRzEr
Er með P183 sjálfur. Svart paint job. Engar viftur nema Noctua NH-D14 og það heyrist ekkert í honum í idle. Þá meina ég ekki neitt, heyrir ekkert fyrr en þú setur eyrað fyrir aftan kassann þar sem skjákortið er að pústa.
Mæli hiklaust með þeim kassa fyrir hljóðlátt setup.
Hann er þungur með öllu uppsettu. En vel byggður, flexar ekkert og enginn víbringur þökk sé öllum sílikon (brjóstunum) á honum.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:35
af KristinnK
Ef þú ætlar að fá þér vatnskælingu þá mæli ég með CM ATCS 840:
http://www.tolvulistinn.is/vara/19539
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:39
af biturk
þessi antec er bara svoooooooooo flottur
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:40
af SIKk
Gunnar skrifaði:eða jafnvel einhvern stílhreinann lian li turn. þeir eru MJÖG flottir margir af þeim.
lian li eru háklassa turnar! svo léttir og stylish líka!
verst hvað þeir eru samt dýrir ;/
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:40
af AntiTrust
biturk skrifaði:þessi antec er bara svoooooooooo flottur
En.. Þetta er eins og e-ð gert úr tæknilegó?
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:50
af biturk
AntiTrust skrifaði:biturk skrifaði:þessi antec er bara svoooooooooo flottur
En.. Þetta er eins og e-ð gert úr tæknilegó?
og ætlaru núna að dissa tæknilegó
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 21:59
af blitz
Þetta er örugglega töff kassi ef þú ert að fara að fermast.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Fös 29. Júl 2011 22:21
af mundivalur
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Lau 30. Júl 2011 00:09
af B.Ingimarsson
samt ef þú ert að leita að notuðum kassa þá á ég ca 15 ára gamlan beis litaðan kassa sem þú mátt fá, hann er allavega flottari en þessi
neei djók en þessir sem antitrust benti á eru frekar flottir, svo kannski einhver eins og þessi
http://www.newegg.com/Product/Product.aspx?Item=N82E16811112264 lian li eru einu flottustu kassar sem ég hef séð
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Lau 30. Júl 2011 00:21
af bulldog
gula útgáfan af lanboy air er líka flott hehe :=)
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Lau 30. Júl 2011 00:25
af einarhr
er löngu búin að ákveða að fá mér Lian Li næst, virkilega vel hannaðir kassar.
Re: Antec Lanboy Air Red Black
Sent: Lau 30. Júl 2011 08:17
af audiophile
Antec P kassarnir eru bara bestir. Punktur. Færð ekki hljóðlátari kassa fyrir minni pening. Ég er ennþá að druslast á 5 ára gömlum P180.