Síða 1 af 1

Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 08:27
af PepsiMaxIsti
Góðan dag

Mig langar að athuga hvort að enhver viti um leið til að fynna tölvu sem að var stolið, þetta Borðtölva, get ég einhvern vegin pingað mac addressuna, á henni eða er hún bara allveg lost. Þetta er gömul tölva sem að félagi minn átti og það var farið inn til hans og stolið tölvunni, hún er ekki merkileg en það voru einhverjar fjölskyldu myndir á henni sem hann væri til í að fá tilbaka. Vitið þið um einhverja leið?

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 08:31
af AntiTrust
PepsiMaxIsti skrifaði:Góðan dag

Mig langar að athuga hvort að enhver viti um leið til að fynna tölvu sem að var stolið, þetta borðtölva, get ég einhvern vegin pingað mac addressuna, á henni eða er hún bara allveg lost. Þetta er gömul tölva sem að félagi minn átti og það var farið inn til hans og stolið tölvunni, hún er ekki merkileg en það voru einhverjar fjölskyldu myndir á henni sem hann væri til í að fá tilbaka. Vitið þið um einhverja leið?


Pingar ekki MAC addressu yfir WAN. Ef hann var ekki með neitt anti-theft software installed þá er þetta pretty much lost case.

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:07
af PepsiMaxIsti
Okey, veit ekki hvort að hann var með solles, en ef að sá/sú sem að tók tölvuna, hefur formatað og sett uppá nýutt, er hægt að leita þá eða er það bara eitthvað sem að er ekki hægt?

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:23
af AntiTrust
PepsiMaxIsti skrifaði:Okey, veit ekki hvort að hann var með solles, en ef að sá/sú sem að tók tölvuna, hefur formatað og sett uppá nýutt, er hægt að leita þá eða er það bara eitthvað sem að er ekki hægt?


Nokkuð viss um að ég geti fullyrt það, að það er ekkert sem hægt er að leita eftir.

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:24
af PepsiMaxIsti
Nokkuð viss um að ég geti fullyrt það, að það er ekkert sem hægt er að leita eftir.[/quote]

Vesen er það :dissed

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:27
af kaktus
ansi hræddur um að þetta sé ekki hægt :( ef þér tekst það samt þekki ég nokkra stráka sem mér skilst að séu flinkir með felgulykilinn

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:32
af AntiTrust
Bara vera á höttunum á barnalandi og helstu sölusíðum landsins, þetta er yfirleitt bara notað upp í skuldir eða sem skiptimynt fyrir greiða eða dóp, og endar yfirleitt í sölu aftur.

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 09:58
af Hargo
Ef þú ert með serial númerið á vélinni láttu þá lögguna fá það. Einnig er gott að láta umboðsaðilann hér á landi fá serial numerið líka svo þeir geti skráð það stolið hjá sér, stundum sér löggan um það líka. T.d. ef þetta var Lenovo tölva að láta þá Nýherja vita og ef þeir fá vélina inn til sín til viðgerðar þá poppar melding upp um að vélin sé stolin.

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 10:06
af ManiO
Hargo skrifaði:Ef þú ert með serial númerið á vélinni láttu þá lögguna fá það. Einnig er gott að láta umboðsaðilann hér á landi fá serial numerið líka svo þeir geti skráð það stolið hjá sér, stundum sér löggan um það líka. T.d. ef þetta var Lenovo tölva að láta þá Nýherja vita og ef þeir fá vélina inn til sín til viðgerðar þá poppar melding upp um að vélin sé stolin.



Borðtölva, => ekki jafn auðvelt eins og með fartölvur.

Re: Leit að stolinni tölvu

Sent: Mið 27. Júl 2011 10:16
af PepsiMaxIsti
Þar fyrir utan , þá er þetta frekar gömul vél, ekkert merkileg, nema bara myndir sem að hann var með inná henni. Held að þetta sé um 5-6 ára gömul vél