Síða 1 af 2

iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:31
af bulldog
Nú er ég að pæla í að láta kaupa fyrir mig iphone 4 í usa. Hvað þarf ég að hafa í huga þegar hann er kominn til landsins þarf að aflæsa honum eða hvernig er þetta. Það væri fínt að fá að vita hvernig er best að standa að þessu öllu :)

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:32
af bAZik
Þú getur fengið ólæstan síma í USA núna :)

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:37
af bulldog
ég var að skoða verðin og þeir eru á um $200 sem er ekki svo galið verð miðað við geðveikina hérna heima.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:40
af Glazier
bulldog skrifaði:ég var að skoða verðin og þeir eru á um $200 sem er ekki svo galið verð miðað við geðveikina hérna heima.

Með samning og þá læstir við eitthvað fyrirtæki..

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:45
af bulldog
en ólæstir ?

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:47
af ManiO
$649 and $749 for 16GB and 32GB

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:50
af bulldog
er þá ekki málið að kaupa síma sem er læstur og láta aflæsa honum þegar hann kemur hérna heim ?

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:52
af ManiO
bulldog skrifaði:er þá ekki málið að kaupa síma sem er læstur og láta aflæsa honum þegar hann kemur hérna heim ?

Til þess að kaupa læstan síma þarftu að skrifa undir samninginn og til þess þarftu ef ég man rétt að sýna eitthvað sem staðfestir að þú býrð í BNA.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 18:52
af MatroX
bulldog skrifaði:er þá ekki málið að kaupa síma sem er læstur og láta aflæsa honum þegar hann kemur hérna heim ?

nei.
eina leiðin til að aflæsa iphone 4 er gevey sim en það er verið að tala um að það sé búið að loka á það í ios5 þannig að ef þú ætlar að fá þér iphone taktu þá ólæstann síma

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:00
af bulldog
já ókei....

kannski ég láti þá bara kaupa eitthvað tölvudót fyrir mig úti í staðinn :)

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:08
af halli7
Nei endilega fáðu þér Iphone 4, hann er þvílik snilld :D
( skrifað úr iphone :) )

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:12
af bulldog
þá gæti maður skoðað vaktina í símanum \:D/

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 19:27
af braudrist
Fáðu þér frekar Samsung Galaxy S II - mikið ódýrari og miklu betri.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 20:08
af halli7
Nei fáðu þér iphone, að minu mati er það mun skemmtilegri simi en android simarnir

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 20:34
af bulldog
ég fæ mér iphone 4 frekar.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:01
af KristinnK
Mér finnst skemmtilegt að bera saman iPhone 4 og Samsung Galaxy S II, að því leiti að iPhone hefur eins kjarna 800 MHz ARM Cortex-A8 örgjörva, en Samsunginn hefur tveggja kjarna 1,2 GHz ARM Cortex-A9, það er meir en þrisvar sinnum meiri CPU afl. Apple halda sig fastir við að selja minna afl á meiri pening. Og hvað er það sem verið er að sækjast eftir? Ekki getur það verið hvíti liturinn, eins og sumir hafa haldið fram við mig, því flestir i-símar eru seldir í svörtu.

Edit: Einnig hefur Samsunginn 1 GB vinnsluminni, gegn 512 MB Apple símans.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:08
af Kristján
mundi biða eftir iphone 5, eða kaupa notaðann iphone4 þá því allir munu upgradea i iphone 5

bara spurining hvernig iphone 5 verður

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:17
af Sphinx
bestu simarnir :) eg átti iphone 4 aflæstan með gevey sim ekkert að þessu

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:21
af Glazier
Ef þú færð þér iPhone fáðu þér ólæstann, það munar svo rosalega miklu að þurfa ekki alltaf að standa í því að uppfæra þetta drasl og aflæsa endalaust :)

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 21:24
af Tiger
KristinnK skrifaði:Mér finnst skemmtilegt að bera saman iPhone 4 og Samsung Galaxy S II, að því leiti að iPhone hefur eins kjarna 800 MHz ARM Cortex-A8 örgjörva, en Samsunginn hefur tveggja kjarna 1,2 GHz ARM Cortex-A9, það er meir en þrisvar sinnum meiri CPU afl. Apple halda sig fastir við að selja minna afl á meiri pening. Og hvað er það sem verið er að sækjast eftir? Ekki getur það verið hvíti liturinn, eins og sumir hafa haldið fram við mig, því flestir i-símar eru seldir í svörtu.

Edit: Einnig hefur Samsunginn 1 GB vinnsluminni, gegn 512 MB Apple símans.

Þetta eru bara svo useless tölur í síma finnst mér. Minn iPhone4 er bara meira en nógu sprækur og lætur mig aldrei bíða eftir neinu þannig að í raun skil ég ekki hvað ég ætti að gera við meira "afl" og hvað yrði betra við það. Það er bara allt við þennan síma sem gerir hann að því sem hann er í dag, mest selda síma í heimi og það ekki að ástæðulausu. iPhone all the way fyrir mig allavegana.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 22:01
af KristinnK
Snuddi skrifaði:Þetta eru bara svo useless tölur í síma finnst mér. Minn iPhone4 er bara meira en nógu sprækur og lætur mig aldrei bíða eftir neinu þannig að í raun skil ég ekki hvað ég ætti að gera við meira "afl" og hvað yrði betra við það. Það er bara allt við þennan síma sem gerir hann að því sem hann er í dag, mest selda síma í heimi og það ekki að ástæðulausu. iPhone all the way fyrir mig allavegana.

Ég ætla heldur ekki að segja neitt um notagildi afkastagetu síma, mér finnst bara skemmtilegt að sjá Apple enn og aftur bjarga sér á ódýrari íhlutum, án þess að lækka verð vara sinna.

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 22:12
af Orri
KristinnK skrifaði:

Þú verður að gera þér grein fyrir því að þeir hanna stýrikerfið fyrir þessa "ódýru íhluti" og kemur því alveg eins út, ef ekki betur en Galaxy S II á Android.
Líttu á leikjatölvurnar, PS3 og Xbox 360.. Leikirnir eru hannaðir sérstaklega fyrir hardware-ið í þessum tölvum og nýta þeir aflið í "ódýru íhlutunum" mikið betur.
Gætir aldrei keyrt Gears of War 3 á PC tölvu með fjögurra kjarna örgjörva og ATI X1800XT (svipað skjákort og Xenos skjártið sem er í Xbox 360).
Það er kannski öðruvísi með PS3 því Cell örgjörvinn getur unnið vissa skjákorts vinnslu, en gætir allaveganna aldrei keyrt Uncharted 3 í 3D á 7800 GTX (sama arkítektúr og í RSX skjákortinu í PS3).

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 22:22
af ManiO
Nenniði að hætta að rífast um þetta í guðanna bænum. Alltaf þegar að þegar að deilt er um Apple þá er eins og menn séu að deila um trúmál. Enginn ykkar er að hafa áhrif á skoðun annarra, til hvers nenniði þá að rökræða þetta ](*,)

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 22:23
af KristinnK
Orri skrifaði:Þú verður að gera þér grein fyrir því að þeir hanna stýrikerfið fyrir þessa "ódýru íhluti" og kemur því alveg eins út, ef ekki betur en Galaxy S II á Android.
Líttu á leikjatölvurnar, PS3 og Xbox 360.. Leikirnir eru hannaðir sérstaklega fyrir hardware-ið í þessum tölvum og nýta þeir aflið í "ódýru íhlutunum" mikið betur.
Gætir aldrei keyrt Gears of War 3 á PC tölvu með fjögurra kjarna örgjörva og ATI X1800XT (svipað skjákort og Xenos skjártið sem er í Xbox 360).
Það er kannski öðruvísi með PS3 því Cell örgjörvinn getur unnið vissa skjákorts vinnslu, en gætir allaveganna aldrei keyrt Uncharted 3 í 3D á 7800 GTX (sama arkítektúr og í RSX skjákortinu í PS3).

KristinnK skrifaði:Ég ætla heldur ekki að segja neitt um notagildi afkastagetu [...]

Re: iphone 4

Sent: Þri 12. Júl 2011 22:41
af Orri
@KristinnK
Ég kann að lesa.
Það sem ég var að reyna að segja er að Apple er eflaust ekki neitt að reyna að "bjarga sér" með því að láta ódýrari íhluti í símana sína..
Er Retina skjárinn þá ekki bara eitthvað ódýrt drasl sem Apple lét í til að spara pening ?

@ManiO
Finnst þessar rökræður alveg óþolandi líka..
En þegar ég sé eitthvað svona bull þá verð ég bara að svara því..