Síða 1 af 4

Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:07
af hauksinick
Hvað viljið þið hafa á pizzastað?
Á hvernig stað mynduð þið fara á frekar en einhvern annan?

Með kvöldin,þegar þið ætlið að fá ykkur bjór og svona.Viljið þið hafa e-ð í gangi eða einhvað þema?

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:15
af Moldvarpan
Gæðin í matnum eru nr.1 2 og 3

Pizza er ekki bara pizza. Sanngjörn verð eru nr 4. Og þægilegt andrúmsloft og viðhorft er nr 5 og 6.

Þú færð engin viðskipti á lélegar flatbökur með diskó þema. Maturinn selur sig sjálfur ef hann er góður.

Góða helgi :beer

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:17
af worghal
eldbakað !!!

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:20
af hauksinick
Já við erum einmitt komin með góðan mat.
Mjög gott andrúmsloft.
Þæginlegt og vinalegt alltsaman.

Vantar bara e-ð sem trekkir að þá sem eru að fara á fyllerí.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:22
af intenz
Gæði, verð, opnunartími, staðsetning.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:24
af Plushy
Þjónustan.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:25
af Glazier
hauksinick skrifaði:Vantar bara e-ð sem trekkir að þá sem eru að fara á fyllerí.

Auglýsir ódýrann bjór? :roll:

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:31
af kallikukur
Þú opnar ekki pizzastað nema vera með almennileg hráefni.
Svo er að sjálfsögðu verðið eitthvað sem pæla þarf í , constant tilboð eða solid lágt verð alltaf það sama :)

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:31
af biturk
verðið fyrst og fremst

ef gæðin eru mikil og verðið líka kaupir enginn!

þetta tvennt verður að fylgjast að!

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:46
af hauksinick
Allt í lagi.

En einhvað með kvöldin um helgar?

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:49
af biturk
hvar eruð þið staddir? ef þið eruð þar sem djammið er þá er algerlega málið að hafa opið svona 1-1\2 tíma lengur en skemmtistaðir

annars bara til um 1- 2.....sjáið það fljótt hvernig traffícin er

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 17:52
af hauksinick
Það er nefnilega málið.Þetta er í Þorlákshöfn.

EN eins og með Copa america,hvernig er hægt að nota það til þess að trekkja að?


Veit um einn stað sem það er þannig að ef þú mætir í alvöru búning annarhvors liðsins sem er að spila þá færðu fríann bjór.

Vitið þið um einhverja svoleiðis,sniðuga hugmynd?

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:02
af Orri
Enski boltinn og eitthvað sniðugt tilboð á meðan leikjum stendur gæti orðið vinsælt.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:12
af kubbur
auglýsingar nr 1, 2 og 3

ekki af ástæðulausu sem að vhs varð vinsælla en betamax

persónulega þoli ég ekki háværa djammstaði, vill getað spjallað við fólkið í kringum mig án þess að þurfa að öskra

lukkuhjól perhaps

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:22
af FuriousJoe
Hafa svona föstudagskvöld alla föstudaga, stór pizza og 5 í fötu á XXXXX kr þá koma kallarnir sko :)

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:24
af biturk
vaktar afslátt á 16" og 2 bjórum :happy

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:26
af AntiTrust
Finnst verð skipta lang, langm estu máli þegar kemur að því að velja skyndibita. Finnst flestallar verðskrár á pizzastöðum í dag t.d. komin svo langt út fyrir öll velsæmismörk, frekar eldar maður sér nautasteik heima og með því.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:31
af Black
fór á pizza hut í gær, það kostaði 8þúsund, :uhh1

annars myndi ég vilja sjá ódýran veitingastað með þægilegri þjónustu og mountain dew í vél :happy

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:32
af vesley
AntiTrust skrifaði:Finnst verð skipta lang, langm estu máli þegar kemur að því að velja skyndibita. Finnst flestallar verðskrár á pizzastöðum í dag t.d. komin svo langt út fyrir öll velsæmismörk, frekar eldar maður sér nautasteik heima og með því.



Veit það að markaðsverðið á hveiti er búið að þrefaldast síðan 2007 ef ekki meira. Það er víst stór hluti af hækkununum .

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:33
af Glazier
Fengir stórann plús frá mér fyrir að hafa venjulegt íslenskt Coca cola en ekki pepsi eða eitthvað álíka eins og svo margir veitingastaðir eru með.

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:47
af Jim
Það sem mér finnst skipta mjög miklu máli er að veitingastaðir séu ekki að reyna að vera eitthvað sem þeir eru ekki.

Metro gerir þetta. Stólar, myndir og gerviblóm úr Ikea eru ekki alveg málið.
Hamborgarabúlla Tómasar Hinsvegar... Allt er mjög casual, gömul blöð og teiknimyndir í sjónvarpinu. Handskrifuð tilboð á veggjunum og allt er voða afslappandi.

Verð er líka mjög mikilvægt.


kubbur skrifaði:auglýsingar nr 1, 2 og 3

ekki af ástæðulausu sem að vhs varð vinsælla en betamax


Haha, var það ekki klámiðnaðurinn sem réði því?

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:54
af coldcut
Maini skrifaði:Hafa svona föstudagskvöld alla föstudaga, stór pizza og 5 í fötu á XXXXX kr þá koma kallarnir sko :)



Mynd

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:58
af Raidmax
intenz skrifaði:Gæði, verð, opnunartími, staðsetning.


x2 sérstaklega Gæði og Verðið sé gott :D ekki verra ef þetta væri niðrí bæ

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 18:58
af Orri
Glazier skrifaði:Fengir stórann plús frá mér fyrir að hafa venjulegt íslenskt Coca cola en ekki pepsi eða eitthvað álíka eins og svo margir veitingastaðir eru með.

Skal gefa þér stærri plús en Glazier fyrir að hafa almennilegt íslenskt Pepsi á boðstólnum, enda eina vitið :)

Re: Pizzastaðarekstur

Sent: Fös 01. Júl 2011 19:00
af valdij
Jim skrifaði:Það sem mér finnst skipta mjög miklu máli er að veitingastaðir séu ekki að reyna að vera eitthvað sem þeir eru ekki.

Metro gerir þetta. Stólar, myndir og gerviblóm úr Ikea eru ekki alveg málið.
Hamborgarabúlla Tómasar Hinsvegar... Allt er mjög casual, gömul blöð og teiknimyndir í sjónvarpinu. Handskrifuð tilboð á veggjunum og allt er voða afslappandi.

Verð er líka mjög mikilvægt.



Smá off-topic enn fann mig knúinn að svara til með Hamborgarabúlluna, og að staðir séu að reyna vera eitthvað sem þeir eru ekki. En allt útlit sem þið sjáið á Búllunni, þar með talið handskrifuð tilboð, gömul blöð, margar sósur í hillum, hvernig hamborgararnir líta út, hvernig brauðið er í raun öll umgjörð á staðnum inn og út er direct copy/paste frá stað í New York sem heitir Burger Joint. Ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrren ég prófaði Burger Joint í New York, labba þangað inn og missti andlitið, þetta var gjörsamlega eins og að vera kominn aftur heim að labba inn á Tomma og þegar ég fékk hamborgarann þá hló ég nánast því þetta var svo fáránlega absúrt að sjá meira segja hamborgarnir litu eins út.

Ekki það að skipti miklu máli, fannst þetta bara ótrúlegt og hafði aldrei heyrt um þetta en þegar ég kom aftur heim þá fór ég að spyrjast fyrir um þetta og þeir játuðu því alveg að þessi staður væri fyrirmyndin :)

En með pizzurnar,

Ég ét pizzur sennilega mun meira en the average joe og mér finnst ekki endilega aðaltriðið að pizzurnar þurfi að vera eldbakaðar, enda komnir ansi margir þannig staðir en
- þjónustan
- verðið
- hraði
- fá mistök
- staðsetning

Þetta er fyrir öllu hjá mér allavega. Það sem gæti trekkt að fyrir ykkur væri ef þið eruð með vínveitingarleyfi að þá væri hægt að koma og "byrja" djammið hjá ykkur, "ef þú kaupir 2x 16" pizzur og hvítlauksbrauð færðu könnu af bjór með á 1000kall!" eða álika, you get my point allavega.