Síða 1 af 1
OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fim 30. Jún 2011 23:04
af Zethic
Jæja, langaði að deila þessu með ykkur
http://www.oecdbetterlifeindex.org/countries/iceland/Er ég eini sem hef áhyggjur af Education á Íslandi ?
Discuss
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 11:40
af Jim
Það ætti að lengja skyldunám til 18 ára aldurs.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 11:53
af chaplin
Jim skrifaði:Það ætti að lengja skyldunám til 18 ára aldurs.
Mér finnst reyndar menntun vera svo mikilvæg að ég er alveg dálítið sammála því.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 12:20
af DJOli
persónulega finnst mér samt að leggja ætti heimanám niður.
Kenna allt sem kenna þarf í tímum.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 12:28
af kubbur
DJOli skrifaði:persónulega finnst mér samt að leggja ætti heimanám niður.
Kenna allt sem kenna þarf í tímum.
Heimanám var upphaflega hugsað til þess að fá foreldra til að eyða meiri tíma með börnunum i að gera eitthvað uppbyggilegt en hefur synt sig að það virkar ekki
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 12:30
af chaplin
DJOli skrifaði:persónulega finnst mér samt að leggja ætti heimanám niður.
Kenna allt sem kenna þarf í tímum.
Mjög svo ósammála. Til að byrja með væri skóladagurinn þá bara lengri, í stað þess að klára um 14-16:00 leitið, þá væri skólinn til +18:00 alla daga. Einnig þurfa nemendur að geta lært sjálfstætt og ekki alltaf geta fengið svörin beint í hendurnar.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 12:32
af worghal
einnig finnst mér að íslendingar læri ýmsa hluti mikið seinna en tíðkast í öðrum löndum, eins og stærðfræði
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 20:05
af Icarus
Heimanám er eitthvað sem þarf að skoða, maður hefur alveg heyrt dæmi um að kennarar, sérstaklega á grunnskólastigi setji fyrir heimanám "af því bara". Þvert á móti er ég algjörlega mótfallin því að hætta með heimanám þar sem það er grundvallaratriði í að læra að gera hlutina sjálfur. Maður lærir takmarkað á því að horfa á kennarann fara yfir dæmi á töflunni, jafnvel þó þú fáir korter í lok tímans til að gera sjálfur.
Annars ef maður horfir á löndin sem verið er að bera saman við er alveg allt í lagi þó að Ísland sé ekki alls staðar efst. Annars finnst mér áhugavert að Japan skori hæst undir "Security", liggur við að það séu 50/50 líkur að þú lendir í jarðskjálfta/flóðbylgju/kjarnorkuslysi.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Fös 01. Júl 2011 21:09
af ZiRiuS
Vil benda á brilliant ræðu frá Sir Ken Robinson sem lýsir menntun í hnotskurn.
http://www.youtube.com/watch?v=zDZFcDGpL4U
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Lau 02. Júl 2011 00:13
af Kristján
daanielin skrifaði:Jim skrifaði:Það ætti að lengja skyldunám til 18 ára aldurs.
Mér finnst reyndar menntun vera svo mikilvæg að ég er alveg dálítið sammála því.
Klárlega sammála þessu, ætla samt að bæta við að þá mætti kannski fá að sérhæfa eitthvað námið eftir 15 ára aldurs, en samt skilda.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Lau 02. Júl 2011 00:24
af Jim
Kristján skrifaði:daanielin skrifaði:Jim skrifaði:Það ætti að lengja skyldunám til 18 ára aldurs.
Mér finnst reyndar menntun vera svo mikilvæg að ég er alveg dálítið sammála því.
Klárlega sammála þessu, ætla samt að bæta við að þá mætti kannski fá að sérhæfa eitthvað námið eftir 15 ára aldurs, en samt skilda.
Ef að skyldunám yrði lengt þá yrði nátturlega að breyta öllu kerfinu. Kannski grunnskóli 6 - 14 ára og menntaskóli 14 - 18 ára
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Lau 02. Júl 2011 00:29
af Zethic
Jim skrifaði:Kristján skrifaði:daanielin skrifaði:Jim skrifaði:Það ætti að lengja skyldunám til 18 ára aldurs.
Mér finnst reyndar menntun vera svo mikilvæg að ég er alveg dálítið sammála því.
Klárlega sammála þessu, ætla samt að bæta við að þá mætti kannski fá að sérhæfa eitthvað námið eftir 15 ára aldurs, en samt skilda.
Ef að skyldunám yrði lengt þá yrði nátturlega að breyta öllu kerfinu. Kannski grunnskóli 6 - 14 ára og menntaskóli 14 - 18 ára
Taka bara upp ameríska kerfið. Það virðist virka. Betur útpælt.
Re: OCEF skoðun á Íslandi
Sent: Lau 02. Júl 2011 00:39
af Kristján
x2