Síða 1 af 1

Einhver búinn að greina GSM áskriftir á klakanum?

Sent: Mið 29. Jún 2011 16:08
af ManiO
Sælir,

Var að velta því fyrir mér hvort að einhver ykkar væri búinn að tjékka hvaða leiðir væru hagstæðastar og hvaða símfyrirtæki byðu upp á bestu kjörin. Per mánuð tala ég í símann í svona 5-6 tíma (dreift yfir heimasíma og GSM), fer tæplega yfir 100 sms en væri til í að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af netnotkuninni.

Einhver af ykkur sem hefur svipað neyslumynstur og fann góð kjör?

Re: Einhver búinn að greina GSM áskriftir á klakanum?

Sent: Mið 29. Jún 2011 16:12
af AntiTrust
http://simon.is/2011/ver%C3%B0-a-gagnaaskriftum/

Samanburður á gagnamagnsverði.

Re: Einhver búinn að greina GSM áskriftir á klakanum?

Sent: Mið 29. Jún 2011 16:34
af g0tlife
AntiTrust skrifaði:http://simon.is/2011/ver%C3%B0-a-gagnaaskriftum/

Samanburður á gagnamagnsverði.


Var gaman að sjá þetta, takk fyrir :happy

Re: Einhver búinn að greina GSM áskriftir á klakanum?

Sent: Mið 29. Jún 2011 17:14
af wicket
Fyrir mér snýst þetta ekki eingöngu um krónur og aura. Stærð dreifikerfis og gæði þeirra eru æði misjöfn ásamt þjónustu og öðrum þáttum.

Það er t.d. himin og haf finnst mér að nota 3G kerfi Nova eða 3G kerfi Símans og þar hefur Síminn vinninginn. Bæði er útbreiðslan betri og hraðinn meiri, eins og Nova kerfið sé sprungið eða eitthvað álíka.

Að minnsta kosti hætti Android síminn minn að missa 3G samband og upplifunin er betri eftir að ég hætti hjá Nova. Veit ekki hvernig þetta er hjá Vodafone og Tali en það væri gaman að heyra hvað menn hafa að segja um þá.

Re: Einhver búinn að greina GSM áskriftir á klakanum?

Sent: Mið 29. Jún 2011 17:21
af tdog
http://reiknivel.is er ágætt tól