Síða 1 af 1

R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Þri 28. Jún 2011 21:26
af Raidmax
Vildi bara tilkynna fyrir þeim sem vissu þetta ekki þá var Chús kennari á tölvubrautinni í Tækniskólanum að deyja í gær.

Þetta var mjög góður kennari þeir sem höfðu hann sem kennara einhvertímann þegar þeir voru eða eru í Tækniskólanum vita það.

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/06/2 ... rkfjollum/

http://www.visir.is/nafn-mannsins-sem-l ... 1110628974

Hvíldu í friði Meistari !

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Þri 28. Jún 2011 21:31
af BoruKusk
Ég var með hann bæði sem kennara og umsjónakennara og get aðeins sagt góða hluti um hann.

Hvíldu í friði.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Þri 28. Jún 2011 21:41
af Klaufi
Ég vann fyrir hann á meðan ég var í tímum hjá honum..

Mikill meistari.

Hvíl í friði og ég sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu og vandamanna.

Ég er nokkuð viss um að þessi maður átti margfalt fleiri vini en óvini, þeir sem þekkja til hans vita hvað ég á við..

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Þri 28. Jún 2011 22:11
af BjarniTS
Þennan mann þótti mér örugglega mest vænt um af öllum þeim kennurum sem ég hef haft í Tækniskólanum.

Hann hafði trú á mér og því sem ég var að gera í lífinu. Hann sagði einusinni við mig þegar að ég var að tala um að mér liði eins og ég væri of "seinn" til að vera að læra það sem ég er að læra og ég yrði allt of "seinn" inn á vinnumarkaðinn , að ég ætti ekki að hafa áhyggjur og það væri svo mikill tími framundan og það væri ekkert sem héti of seint þegar nám væri annars vegar.

Hann er eini kennarinn sem að ég hef viljað adda á facebook , spjalla við utan tíma og þá stundum um hluti sem koma náminu ekkert við.

Ég trúi því varla að þessi frábæri maður sé dáinn , ef að ekki væri fyrir hann væri ég kominn skemur á leið með það sem ég er að læra og ég á honum margt að þakka.

Í síðasta skipti sem ég sá Chús þá var það þegar að ég var að fara úr prófi í CNA203 og ég og félagi minn vorum frekar fljótir að þessu (netið mátti nota að vild) og við ekki ókunnir ég og vinur minn.

Chús sagði við mig þegar ég var að fara "Ertu búinn Bjarni , með bæði verklega og bóklega hlutann??" og hann gaf mér þennan glettis-spurninga-gaman-svip sem að bara hann kom með og svona kvassann tón , þessi maður var aldrei alvarlegur. Hann var einhverntímann að auglýsa fyrir einhverja búningaleigu í bænum og var þá bara alklæddur í súpermanbúningi og var í auglýsingu. Það var búin til groopa á facebook , svona like groopa en ef að ég þekki chus rétt þá fannst honum þetta bara fyndið sjálfum og líklegur til að grínast með þetta bara líka. stundum sagði maður "super-chus" í einhverju svona gríni. Án þess að ég hafi svosem talað um þetta við hann.

Ég get ekki ennþá hugsað til þess að þessi maður sé ekki lengur hérna bara til þess að segja mér að "hætta að gera þetta" , "hætta á facebook í tímum"

Einusinni var hann að labba upp stiga til að fara í tíma og tók upp peysuna sína og fór að sýna okkur eitthvað undir hana , þá var hann í bol sem stóð á "Jesus" - alltaf svo hress.

Hann sagði samt einusinni "Gáfa felst í því að vera fljótur að afla upplýsinga og framkvæma , en ekki að búa yfir mikið af upplýsingum persónulega"

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Þri 28. Jún 2011 23:37
af Jim
Hann hét Jesus, það var þá borið fram sem Chús? Ég þekkti þennan mann ekkert en af sögnum ykkar að dæma var hann fyrirmyndar manneskja og það er alltaf sorglegt að missa þannig fólk.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 00:21
af Kristján
ég var hjá honum í tímum þegar ég var á tölvubraut, i þann stutta tíma sem ég var í skólanum.

þekkti hann lítið en þann tíma sem ég var hjá honum í tímum var hann bara skemmtilegur og góður kennari.

voðalega hress, spjallari soldið.

RIP

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 00:48
af BjarniTS
Jim skrifaði:Hann hét Jesus, það var þá borið fram sem Chús? Ég þekkti þennan mann ekkert en af sögnum ykkar að dæma var hann fyrirmyndar manneskja og það er alltaf sorglegt að missa þannig fólk.


Það var aldrei borið fram "Eins og Jesus Christ" , "Tjús , shús , eða shúss" var það sem var notað.

Elskulegasti maður.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 00:59
af Frantic
Ég er orðlaus.....

Hvíldu í friði Chús.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 01:14
af gunnidg
HAaa ? þetta getur ekki verið :| þessi maður fékk alltaf það mesta úr manni.. lét mann vita ef hann vissi að maður gat gert betur en var of latur til. Hann var mjög gagnrýnin en á mjög góðann hátt og gerði námið líkara því sem maður má sjá úti á atvinnumarkaðnum..

Sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina.

Hvíldu í friði Chús.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 10:46
af ViktorS
Þekki hann ekki en örugglega algjör toppmaður.

Hvíldu í friði Chús.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 11:00
af quzo
Topp maður hann Chús var í námi hjá honum og vill nýta tækifærið á að senda samúðarkveðjur til fjölskyldu og nánustu ættingja.
RIP

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 11:07
af ManiO
Þessi þráður verður límdur fram að lok vikunnar í virðingarskyni við þennan mann. Fyrst að hann var greinilega jákvæður punktur í lífi svo margra vaktara.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 12:32
af J1nX
samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina. Aron bróðir minn var nemandi hjá honum og hafði bara góða hluti að segja um hann.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 15:56
af Tumi23
Ég er orðlaus ég á erfitt að trúa að hann er dáinn hann var kennari minn á síðustu önn þótt ég hafi ekki alltaf verið
besti nemandin fannst mér Chús vera einn af uppáhalds kennurunum mínum sem ég hafði haft í tækniskólanum

Hvíldu í friði

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 19:09
af Páll
Leiðinlegt að fá ekki að kynnast þessum manni og vera nemandi hjá honum.

Hvíldu í friði.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 21:15
af DJOli
Var hann búinn að vinna lengi í iðnskólanum?

Gæti verið að ég hafi nokkrumsinnum hitt á þennan snilling í matsalnum back in '07...

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Mið 29. Jún 2011 21:27
af Kobbmeister
DJOli skrifaði:Var hann búinn að vinna lengi í iðnskólanum?

Gæti verið að ég hafi nokkrumsinnum hitt á þennan snilling í matsalnum back in '07...


Hann byrjaði vinna í skólanum árið 2005 eins og sést í þessari grein http://www.tskoli.is/taekniskolinn/frettir/nr/1426

R.I.P. Þessi snilldar kennari.

Re: R.I.P Chús Tölvukennari Tækniskólans

Sent: Lau 09. Júl 2011 09:33
af daniellos333
Ah.. Hann var kennari minn eina önnina. =/

Hvíldu í friði Chús.