Síða 1 af 3

Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 20:14
af SiggiSveins
Sælir.

Sigurður heiti ég og þetta er minn fyrsti póstur á vaktin.is

Ég er núna í atvinnuleit og er að skoða markaðinn og er búinn að vera skoða 2 fyrirtæki Tölvulistann og Tölvutek og er að pæla hvort að það sé gott að vinna hjá þessum fyrirtækjum?

Hef heyrt slæmar sögur af lélegum launum hjá Tölvulistanum/Tölvutek og líka hef heyrt slæmt umtal um gaurinn sem stjórnar Tölvulistanum.

Langar bara að heyra góðar og slæmar sögur frá núverandi/fyrrverandi starfsmönnum Tölvulistans og Tölvutek og hvort að maður eigi að sækja um störf hjá þessum fyrirtækjum.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 20:26
af atlih
lol, pottþétt allir starfsmenn í svona búðum vaktarar. Enginn að fara tala illa um vinnustaðinn sinn eða vinnufélaga á opnu spjalli.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 20:30
af Hjaltiatla
atlih Skrifaði:
lol, pottþétt allir starfsmenn í svona búðum vaktarar. Enginn að fara tala illa um vinnustaðinn sinn eða vinnufélaga á opnu spjalli.

Kannski fyrrverandi starfsmenn :-"

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 20:36
af beggi90
Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 20:37
af hauksinick
beggi90 skrifaði:Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

x2

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 21:07
af SiggiSveins
Maður getur tekið þá ákvörðun hvort að maður sættir sig við hlutina.

Ég er samt líklega ekki að fara vinnu búðargeiranum eftir stutt símtal áðan :)

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 21:40
af Jimmy
Menn að fara í handboltann?

*burumtiss*

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 21:48
af kubbur
Búinn að sækja um tvisvar hjá tölvutek, þeir höfðu ekki einusinni fyrir því að svara mér

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 22:10
af FreyrGauti
Það eru skítalaun í öllum svona afgreiðslustörfum en það gilda bara sömu reglur í þessum verslunum og öðrum, ert duglegur og stendur þig vel = komið vel fram við þig í vinnuni og auðveldara að fá launahækkun, latur og mætir illa = rekinn.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 22:25
af braudrist
Hvað kallið þið skítalaun?

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Sun 19. Jún 2011 22:40
af capteinninn
kubbur skrifaði:Búinn að sækja um tvisvar hjá tölvutek, þeir höfðu ekki einusinni fyrir því að svara mér

Hvort mættirðu á staðinn eða sendir email/hringdir?

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 00:04
af Minuz1
beggi90 skrifaði:Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

Það er betra að vera heima hjá sér á atvinnuleysisbótum frekar en að vera í ömurlegri vinnu.

Þetta eru 40 tíma á viku, 8 tímar hvern virkan dag og örugglega 5-10 klst aukalega á viku hérna á íslandi.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 00:16
af tdog
Fyrir afgreiðslustörf eru alger lágmarkslaun 182.000 kr á mánuði. Er það ekki svipað og bæturnar?

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 00:39
af gissur1
Minuz1 skrifaði:
beggi90 skrifaði:Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

Það er betra að vera heima hjá sér á atvinnuleysisbótum frekar en að vera í ömurlegri vinnu.

Þetta eru 40 tíma á viku, 8 tímar hvern virkan dag og örugglega 5-10 klst aukalega á viku hérna á íslandi.

Held að það sé ekkert voðalega sniðugt að vera bara heima, hreyfingarleysi, eyðir peningum í entertainment svo þú deyir ekki úr leiðindum og missir allt contact við umheiminn og verður þunglyndur :)

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 01:09
af guttalingur
gissur1 skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
beggi90 skrifaði:Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

Það er betra að vera heima hjá sér á atvinnuleysisbótum frekar en að vera í ömurlegri vinnu.

Þetta eru 40 tíma á viku, 8 tímar hvern virkan dag og örugglega 5-10 klst aukalega á viku hérna á íslandi.

Held að það sé ekkert voðalega sniðugt að vera bara heima, hreyfingarleysi, eyðir peningum í entertainment svo þú deyir ekki úr leiðindum og missir allt contact við umheiminn og verður þunglyndur :)

Hefuru ekki heyrt um TPB? (fyrir MatroX)

Annars var ég búinn að vera í þessari stöðu í nær 3 ár
Djöfulli var gott að byrja svo loks að vinna

Þetta með þunglyndið er 100% rétt í mínu tilviki í það minnsta

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 01:21
af g0tlife
tók 4 mánuði á sjónum, kem heim í mánaðafrí og er að verða létt geðveikur. Bíð spenntur eftir að komast aftur

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 07:59
af tdog
gotlife skrifaði:tók 4 mánuði á sjónum, kem heim í mánaðafrí og er að verða létt geðveikur. Bíð spenntur eftir að komast aftur

Búinn að vera í 10 daga fríi, alger geðveiki að komast úr rútínunni. Er í skýjunum svo gaman að vera mættur til vinnu aftur.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 12:01
af AntiTrust
Ég myndi persónulega leitast við að vinna í smærri fyrirtækjum. Það er yfirleitt meiri ábyrgð, en maður fær að hafa puttana í fleiru sem er fyrir marga mikið skemmtilegra. Oft tengjast launin í slíkum fyrirtækjum líka árangri, og ef þú ert metnaðarsamur einstaklingur þá er lítið því til fyrirstöðu að fá reglulega bónusa eða launahækkanir.

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 13:06
af rapport
AntiTrust skrifaði:Ég myndi persónulega leitast við að vinna í smærri fyrirtækjum. Það er yfirleitt meiri ábyrgð, en maður fær að hafa puttana í fleiru sem er fyrir marga mikið skemmtilegra. Oft tengjast launin í slíkum fyrirtækjum líka árangri, og ef þú ert metnaðarsamur einstaklingur þá er lítið því til fyrirstöðu að fá reglulega bónusa eða launahækkanir.

Nauts...

Lang best að vinna á sem stærstum... þeim stærsta ef þú getur... :twisted: :twisted:

Ríkið = best og öruggast...

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 17:28
af everdark
-

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 17:43
af biturk
everdark skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
beggi90 skrifaði:Held að atvinnumöguleikarnir núna séu ekki svo miklir núna að maður geti verið mjög "picky" á staðina.

Það er betra að vera heima hjá sér á atvinnuleysisbótum frekar en að vera í ömurlegri vinnu.

Þetta eru 40 tíma á viku, 8 tímar hvern virkan dag og örugglega 5-10 klst aukalega á viku hérna á íslandi.

Hefur þú enga sjálfsvirðingu?

ég skil hann nú bara ósköp vel

ef fyrirtæki geta ekki drullast til að borga mannsæmandi laun svo fólk geti lifað af mánuðinn þá eiga þau að fara í gjaldþrot

atvinnuleysisbætur eru ekki nema rétt til að duga út mánuð fyrir meðalmenn í fjölskyldu (ekki krakkar sem búa hjá foreldrum), leiga, internet, bíll, matur, tilfallandi kostnaður mánaðarlega eins og sjúkrahús, bilanir og annað..........þetta telur allt og atvinnuleysisbætur duga mjög skammt fyrir þessu öllu

ef menn svo eiga skuldir og annað, nefskatt, tryggingar og slíkt þá er þetta farið að verða komið í feitan mínus hjá manni

lægstu útborguðu laun inná reikning ættu aldrei að vera minni en 180 þúsund beint í vasa miðað við hvernig ástandið er, annað bara dugir ekki til að lifa af án þess að vera alltaf í yfirdrætti, lánum og rugli :svekktur

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 18:38
af SiggiSveins
Atvinnuleysisbætur eru núna 161.523 kr fyrir skatt og eftir skatt er það 141.413 kr
Ef launin eru 180.000 kr fyrir skatt þá fær maður 152.533 kr eftir skatt
Og ef launin eru 220.000 kt fyrir skatt þá fær maður 176.544 kr eftir skatt

Svo þarf maður að komast í vinnu
Borða þegar maður er í vinnuni
Vinnuföt og skófatnaður

Svo það er mjög eðlilegt að fólk spyr sig hvort að það borgi að vera á vinnumarkaðnum á skítalaunum eða bara vera heima og reyna gera eitthvað uppbyggjandi

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 18:57
af gissur1
SiggiSveins skrifaði:Atvinnuleysisbætur eru núna 161.523 kr fyrir skatt og eftir skatt er það 141.413 kr
Ef launin eru 180.000 kr fyrir skatt þá fær maður 152.533 kr eftir skatt
Og ef launin eru 220.000 kt fyrir skatt þá fær maður 176.544 kr eftir skatt

Svo þarf maður að komast í vinnu
Borða þegar maður er í vinnuni
Vinnuföt og skófatnaður

Svo það er mjög eðlilegt að fólk spyr sig hvort að það borgi að vera á vinnumarkaðnum á skítalaunum eða bara vera heima og reyna gera eitthvað uppbyggjandi

Bónus (sem á að heita skíta vinnustaður) býður uppá fríann mat og vinnufatnað fyrir starfsfólk.

Fyndist það frekar fyndið að "flottari" vinnustaðir byðu ekki upp á það sama :lol:

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 19:23
af Halli13
gissur1 skrifaði:Bónus (sem á að heita skíta vinnustaður) býður uppá fríann mat og vinnufatnað fyrir starfsfólk.

Fyndist það frekar fyndið að "flottari" vinnustaðir byðu ekki upp á það sama :lol:

Hvað gerir bónus að skíta vinnustað?

Re: Hvernig er að starfa hjá Tölvulistanum og Tölvutek?

Sent: Mán 20. Jún 2011 19:25
af bulldog

Sammála !