Síða 1 af 1

útskýrðu sin, cos, tan

Sent: Lau 18. Jún 2011 03:27
af kubbur
í einföldu máli, það gjörsamlega sýður á hausnum á mér, fatta sérstaklega ekki hvernig ég veit hvenær ég á að deila, margfalda osfr í þessu

Re: útskýrðu sin, cos, tan

Sent: Lau 18. Jún 2011 03:33
af chaplin
Varla hægt að útskýra betur en þetta.

http://www.rasmus.is/IS/t/F/su30k3.html

Re: útskýrðu sin, cos, tan

Sent: Lau 18. Jún 2011 04:40
af Kristján
úff hvað maður var mikið að reikna þetta i rafmagnsfræði

Re: útskýrðu sin, cos, tan

Sent: Lau 18. Jún 2011 09:58
af axyne
Mér hefur alltaf fundist gott að nota Amma ílla regluna.

A er aðlæg skammhlið, hlið sem liggur að horninu.
M er mótlæg skammhlið, hlið sem liggur á móti horninu.
L er langhliðin.
síðan bara muna röðina cos,sin,tan og þá ertu góður.

Lest þetta þannig:
A deild með L jafnt og cos af horninu eða A/L = cos(Θ)

Mynd