Síða 1 af 1
Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:24
af BjarniTS
Er að greina bilun.
Getur click hljòðið í disknum verið af öðrum ástæðum en þeirri að diskur sé bilaður?
Í raun er ég bara með 2 spurningar ,
A) Hvað í diskum veldur click hljóði ?
B) Hvað annað í vélinni gæti valdið click hljóði disksins(keðjuverkun þ.e.a.s)
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:29
af wicket
Myndi bara drífa mig að taka backup af disknum áður en hann deyr endanlega
Click í hörðum diski er ekki gott.
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:30
af FuriousJoe
wicket skrifaði:Myndi bara drífa mig að taka backup af disknum áður en hann deyr endanlega
Click í hörðum diski er ekki gott.
x2
A) Hvað í diskum veldur click hljóði ?
Held það séi lesnálin, slæst til baka eða eitthvað slíkt (nær ekki að lesa ákveðið svæði og reinir aftur og aftur, þá kemur "tik, tik, tik, tik, tik" o.s.f
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:32
af Raidmax
hann er i 90% skemmdur eda einhvad ad writernum . p.s skrifa i ps3
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:32
af Matti21
Þú ert að heyra í hausnum (skrif/leshausnum) á disknum. Það getur alveg verið eðilegt að heyra í honum meðan þú ert að gera eitthvað á disknum en ef tikkið er stanslaust þá er gott að fara að taka back up.
Nokkur myndbönd sem útskýra harða diska vel;
http://www.youtube.com/watch?v=9eMWG3fwiEUhttp://www.youtube.com/watch?v=Wiy_eHdj8kg
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 15:34
af beggi90
Hef alltaf heyrt að þegar "click of death" hljóðið komi úr hörðum disk sé hann á dauðans dyrum og hef því alltaf farið eftir þvi.
Mæli með að gera afrit af öllum mikilvægum gögnum ef þú ert ekki búinn að því þegar.
Ef þú googlar "click of death" færðu ýmsar upplýsingar ef þú ert forvitinn um ástæðuna fyrir þessu.
Ef þú heldur að þetta click hljóð sé ekki í harða disknum geturðu auðvitað tekið harða diskinn úr og ræst tölvuna og séð hvort hljóðið komi. Getur líka hlustað á hljóðið á
Wikipedia síðunni um þetta.
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Fim 16. Jún 2011 17:30
af rapport
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Sun 19. Jún 2011 19:13
af BjarniTS
Takk strákar , er bara með vél sem er að gefa mér "click" hljóðið , og svo skipti ég disknum út fyrir annan (notað) og ég er að fá aftur "click" , ætla að prufa einn disk í viðbót , sjá hvað setur með hann en útlitið er ekki gott.
Re: Hversvegna er "click" hljóð í 2.5 ide disk.
Sent: Sun 19. Jún 2011 21:08
af Kristján
eg er búinn að vera með klikk hljóð i mínum flakkara siðann eg veit ekki hvenær, mjög lengi ekkert skeð ennþá