Síða 1 af 1

Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 17:35
af Kristján
Titill.

vantar að selja bílinn minn og er að spá í hvaða bílasölu maður ætti að fara?

einhver sala sem selur meira en önnur? örugglega en veit einhver hvaða?

er það ekki bara einhver þarna þar sem allar sölurnar eru?

takk

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 18:07
af biturk
ekki bílamarkaðinn allaveganna, þeir eru fávitar!

hvernig bíl ertu annars með?

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 18:18
af Icarus

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 18:33
af steinarorri
Bílalind er að gera góða hluti held ég. http://www.bilalind.is

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 19:10
af Sphinx

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 19:55
af Halli13
Sphinx skrifaði:http://www.bilasolur.is


Auglýsir bílinn hjá bílasölu og síðan setur bílasalan bílinn inná síðuna sína+bilasolur.is

bilasolur.is eru allar bílasölurna á landinu á sameinaðri síðu (allavegna flestar)

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 20:16
af Kristján
já vissi það, held það sé bara ulen dúlen doff á allar þessar sölur á kletthálsi, er maður þá ekki nokkuð öruggur

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 20:41
af capteinninn
Getur líka hent honum á Live2cruize spjallið. Skilst að það sé mikil velta á bílum þar og þannig þarftu ekki að borga bílasölunum milligöngumannsgjaldið.

Samt fínt að henda honum á bílasölu og sleppa að spá í þessu sjálfur

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 20:48
af Kristján
hannesstef skrifaði:Getur líka hent honum á Live2cruize spjallið. Skilst að það sé mikil velta á bílum þar og þannig þarftu ekki að borga bílasölunum milligöngumannsgjaldið.

Samt fínt að henda honum á bílasölu og sleppa að spá í þessu sjálfur



very true

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 20:48
af biturk
hvernig bíll er þetta?

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:03
af Kristján
avensis 2005

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:19
af Halli13
Nokkrar bílasölur samt sem þú átt að forðast t.d. bílalíf, þekkt fyrir brask og eitthverjar aðrar, er ekki alveg nógu mikið inní þessu kannski að eitthver hérna getur sagt þér hvaða bílasölur það eru :D

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 22:03
af info
steinarorri skrifaði:Bílalind er að gera góða hluti held ég. http://www.bilalind.is


Þessir gæjar eru íslandsmeistara í braski,sama í höfðahöllini, myndi líka forðast bílasölu guffa og bílasöluna sem er á móti honum sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Fös 10. Jún 2011 22:34
af AntiTrust
Ég verð að viðurkenna að ég er ekkert sérstaklega hrifinn af bílasölu Guffa, aðallega afþví að Guffi er gamall nötter - en það er ótrúlegt hvað það er mikil traffík hjá honum einfaldlega vegna þess hversu rótgróin salan er, með marga fastaviðskiptavini.

Annars bara skrá bílinn útum allt, kostar ekki neitt, og klára söluna sjálfur og spara þér sölulaunin.

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Þri 14. Jún 2011 16:56
af Zethic
Fann þessa gersemi hjá LH

http://lifehacker.com/5811509/how-to-sc ... etter-deal

Endilega hafa þetta í huga :)

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Þri 14. Jún 2011 17:04
af Viktor
Spurðu frekar á bílaspjalli heldur en tölvunördaspjalli.

live2cruize.com
bmwkraftur.is
stjarna.is

Re: Hvaða bílasölu á ég að skrá bílinn minn á?

Sent: Þri 14. Jún 2011 18:30
af AntiTrust
Sallarólegur skrifaði:Spurðu frekar á bílaspjalli heldur en tölvunördaspjalli.

live2cruize.com
bmwkraftur.is
stjarna.is


Akkúrat ekki. Í fyrsta lagi nota afskaplega fáir L2C/kraftsmenn bílasölur þar sem flest bílaviðskiptin þeirra fara fram á viðkomandi síðum. Í öðru lagi eru svo margir þarna annaðhvort bílasalar eða þekkja persónulega til bílasala og mæla því hugsanlega með sölum upp á eigin hagsmuni.

Langbest að spyrja almenna neytendur en ekki bílafólk/braskara og fá hlutlaust svar ;)

Allavega mín 0.02$.