Síða 1 af 1

undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:18
af biturk
mig vantar að vita hvaða síðu samtök hafa verið að nota til undirskriftasöfnunar eins og gegn icesave og hvernig er best að koma því saman

er einhver sem veit þetta eða getur aðstoðað mig

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:21
af worghal
http://www.petitiononline.com/
þessi hefur verið mikið notuð í icesave undirskrifta söfnuð :)

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:29
af urban
Sem að er alveg svakalega gersamlega vonlaus síða.

ef að eitthvað mark á að vera tekið á undirskriftum þá er algert lágmark að það séu kennitölur þar undir, og þá kennitölur sem að farið er yfir.

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:30
af biturk
urban skrifaði:Sem að er alveg svakalega gersamlega vonlaus síða.

ef að eitthvað mark á að vera tekið á undirskriftum þá er algert lágmark að það séu kennitölur þar undir, og þá kennitölur sem að farið er yfir.

þessi síða gefur náttúrulega rosalega leiðbeindandi álit á því sem er verið að safna fyrir

en hvernig er hægt að koma kennitölusíðu fyrir og fara yfir?

er einhver sem ég get komist í samband við sem hefur reynslu af þessu?

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:33
af gardar
Ég gæti græjað svona vef fyrir þig, fyrir sanngjarna summu.

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:37
af biturk
sendu mér pm um hvað sú summa er, ég er að reina að halda kostnaði í algeru lágmarki og helst eins litlum og hægt er :happy

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:46
af bulldog
er það útaf frumvarpinu með reykingarbannið ?

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:49
af coldcut
bulldog skrifaði:er það útaf frumvarpinu með reykingarbannið ?

ef það er vegna þess þá er það heimskulegt. Þingið er aldrei að fara að samþykkja e-ð Framsóknar-frumvarp :lol:

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:54
af rapport
Mér þætti virkilega kúl ef tóbak yrði bannað á Íslandi og áfengi.

Þá fyrst mundum við slá öll met í þunglyndislyfjanotkun...

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 16:58
af biturk
ég gef ekkert út um hvað þetta er fyrir en þetta er hugmynd sem er búin að vera lengi í hausnum á mér og ég er búinn að vera að kynna mér rólega, ef allt gegnur eftir þá mun ég pósta link hingað og þið getið lesið ykkur til um undirskriftasöfnunina og tekið ákvörðun en þetta er mál sem varðar alla í landinu og hlutur sem allir hafa skoðun á.

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 17:16
af coldcut
Vandamálið með svona undirskriftalista (eins og í Icesave) er að það hefur alltaf komið upp að fólk hafi verið skráð án þess að gera það sjálft. Það verður a.m.k. að vera hægt að sjá hvort að maður sé skráður...

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 20:13
af Daz
Ef netkönnun ætti að vera sæmilega "örugg" myndi ég vilja að hún gæfi þá kost á "lykilorð sent í heimabanka" eða innskráning með rafrænum skilríkjum/skattstjóra login.

En slíkt er líklega ekki á færi einstaklinga og félagasamtaka :( við þurfum svona petitiononline.is sem er rekið af ríkinu og gefur séns á svona :D

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 20:19
af worghal
Daz skrifaði:Ef netkönnun ætti að vera sæmilega "örugg" myndi ég vilja að hún gæfi þá kost á "lykilorð sent í heimabanka" eða innskráning með rafrænum skilríkjum/skattstjóra login.

En slíkt er líklega ekki á færi einstaklinga og félagasamtaka :( við þurfum svona petitiononline.is sem er rekið af ríkinu og gefur séns á svona :D

en galinn við það að ríkið skildi reka svona petition síðu, þá mundi hún aldrei virka, endalaus loforð um uppfærslur sem koma ekki.

Re: undirskriftasöfnunarsíða óskast

Sent: Mán 30. Maí 2011 20:25
af MatroX
worghal skrifaði:

hahahaha