Síða 1 af 7
Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:20
af Zethic
Jæja...
Hafiði séð auglýsingarnar ? sá heilsíðu auglýsingu í einhverju blaði og svo svaka auglýsing á skjá einum í gær...
Forvitinn... hver er að borga þessar auglýsingar ? hver stendur á bak við þetta ?
Mesta þvæla sem ég hef heyrt....
http://www.familyradio.com/index2.html
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:23
af Eiiki
Þetta er svo mikið rugl! Það vita allir að eini sanni heimsendirinn er 21.12.2112
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:24
af Glazier
Eiiki skrifaði:Þetta er svo mikið rugl! Það vita allir að eini sanni heimsendirinn er 21.12.2112
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:28
af Frussi
Gæinn sem á family radio er að borga fyrir þetta samkvæmt fréttunum. Nutter frá Bandaríkjunum.
Hann spáði fyrir um heimsendi árið 1993 líka, skrifaði bók og allt...
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:29
af FuriousJoe
Hey, var að lesa biblíuna afturábak og fann þar falin skilaboð frá jesú !
Það verður enginn heimsendir.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:30
af KermitTheFrog
So what? Ef heimurinn endar, þá endar hann. Það þurfa ekki allir að vera að spá fyrir um það og væla. Það er ekkert sem þeir geta gert í málinu. Engin auglýsing stoppar heimsendi.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:31
af Eiiki
KermitTheFrog skrifaði:So what? Ef heimurinn endar, þá endar hann. Það þurfa ekki allir að vera að spá fyrir um það og væla. Það er ekkert sem þeir geta gert í málinu. Engin auglýsing stoppar heimsendi.
Jú ef þú setur auglýsinguna á netið geturu varað nógu marga við svo að heimsendirinn verði ekki
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:33
af FuriousJoe
Eiiki skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:So what? Ef heimurinn endar, þá endar hann. Það þurfa ekki allir að vera að spá fyrir um það og væla. Það er ekkert sem þeir geta gert í málinu. Engin auglýsing stoppar heimsendi.
Jú ef þú setur auglýsinguna á netið geturu varað nógu marga við svo að heimsendirinn verði ekki
Hah þetta var best.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 21:01
af Godriel
Eiiki skrifaði:Þetta er svo mikið rugl! Það vita allir að eini sanni heimsendirinn er 21.12.2112
IT AIN'T OVER UNTIL I SAY IT'S OVER!!! Godriel has spoken
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 21:09
af Arnarr
Hey ég las biblíuna á hlið og hún sagði að þið ættuð að gefa mér pening eða deyja
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 21:11
af KrissiP
Ég las hana lárétta og skildi ekki orð
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 21:21
af SIKk
KrissiP skrifaði:Ég las hana lárétta og skildi ekki orð
Orð.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 22:41
af Dormaster
hef aldrei fattað hvað fólk græðir á því að spá um heimsendir ?
ef það er heimsendir þá deyja allir og þú hafðir reyndar rétt hjá þér en það skiptir ekki máli að því að allir eru dauðir.
ef að þú spáðir vitlaus er það frekar vandræðalegt og þú ert talinn eitthvað skrítinn.
makes no sence.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 22:59
af Frussi
Ef þú átt sjúklega stóra kirkju í Bandaríkjunum og spáir fyrir um einhverju svona þá er bókað að hellingur af auðtrúa vitleysingum sé að fara að mæta í söfnuðinn þinn og jafnvel gefa peninga o.s.frv.
Fólk er vitlaust
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Mið 18. Maí 2011 23:09
af Sphinx
ohh afhverju heimsendir á laugardegi
getur það ekki frekar verið á manudeigi r sum
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:23
af g0tlife
Sphinx skrifaði:ohh afhverju heimsendir á laugardegi
getur það ekki frekar verið á manudeigi r sum
Frekar á sunnudegi svo allir geti djammað að heimsendi. Það er öruglega besta djamm ever
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:24
af Sphinx
gotlife skrifaði:Sphinx skrifaði:ohh afhverju heimsendir á laugardegi
getur það ekki frekar verið á manudeigi r sum
Frekar á sunnudegi svo allir geti djammað að heimsendi. Það er öruglega besta djamm ever
trew
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:26
af bAZik
Æi djö, ætlaði á Pirates of the Caribbean 4 á laugardaginn, vonandi næ ég að klára myndina :S
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:37
af Sphinx
bAZik skrifaði:Æi djö, ætlaði á Pirates of the Caribbean 4 á laugardaginn, vonandi næ ég að klára myndina :S
hahah ja andskotinn.. ef það koma heimsendir áður en myndinn byrjar eg myndi fara og fá endurgreitt bara
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:47
af Gunnar
Las biblíuna og þetta er bara fínasta skáldsaga.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 00:57
af Zethic
Gunnar skrifaði:Las biblíuna og þetta er bara fínasta skáldsaga.
Las biblíuna og fannst þessi djók ofnotaður.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 01:07
af Output
Ég las ekki biblíuna.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 01:15
af Gunnar
Zethic skrifaði:Gunnar skrifaði:Las biblíuna og þetta er bara fínasta skáldsaga.
Las biblíuna og fannst þessi djók ofnotaður.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 01:20
af fallen
Það er fyndið hvað öllum finnst sjálfsagt að gera lítið úr þessum trúarsöfnuði (þmt. prestar ríkiskirjunnar), þegar eini munurinn á þessu FamilyRadio fólki og restinni af kristnum einstaklingum er sá að þetta fólk setur dagsetningu á endurkomuna. Samt sem áður er "venjulega" fólkinu fyrirgefið að trúa þessu, því þetta er jú grundvallaratriði í trúnni þeirra.
Markúsarguðspjallið 13:30 skrifaði:Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.
Þessi persóna sem Jesú á að vera hefur sýnt sig sem falskann spámann skv. þessu hér að ofan, en fyrr í tetxanum talar hann um endurkomu sína. Hann lét hinsvegar ekki sjá sig áður en líf lærisveina hans runnu út. Hvernig er þá hægt að taka öllu öðru sem hann segir bókstaflega?
Mér er óhugsandi hvernig einhver getur spáð fyrir um endi heimsins með því að stúdera bronsaldargoðsagnir í bók sem var skrifuð af 40 mismunandi
mönnum, á mismunandi tungumálum, á tímabili sem spannar eitthver 1600 ár.
Eitt er samt víst, þegar þetta fólk vaknar þann 22. maí mun það ekki afsala sér trúnni. Það mun finna eitthverjar arfaslakar afsakanir sér til varnar, bara eins og venjulega þegar fólk reynir að útskýra rökvilluna sem trúin þeirra er.
Re: Heimsendir 21 maí !
Sent: Fim 19. Maí 2011 01:48
af chaplin
fallen skrifaði:Eitt er samt víst, þegar þetta fólk vaknar þann 22. maí mun það ekki afsala sér trúnni. Það mun finna eitthverjar arfaslakar afsakanir sér til varnar, bara eins og venjulega þegar fólk reynir að útskýra rökvilluna sem trúin þeirra er.
Haha vissulega, eins og presturinn í Bandaríkjunum sem var að spá fyrir heimsendi, þetta er hvað? 3 skipti sem hann spáir fyrir um heimsendi á 30 ára tímabili?
Ég var mjög trúaður þegar ég var 14-15 ár, þá meina ég alveg ofur trúaður. Síðan sá ég Zeitgeist og áttaði mig á hvað þetta er mikil þvæla (auðvita bara mín skoðun, er ekki á móti neinni trú) - en ég fór auðvita að afla mér frekari uppls. um það sem Zeitgeist fjallaði um (þar sem ég tek oftast lítið mark á slíkum myndum) og já.. mikill hluti af myndinni var sannur.
Góð lína sem ég gleymi aldrei, "God loves you, but he wants your money.".