Síða 1 af 1
Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:02
af axyne
Rak augun í þessa frétt á
pressan.isÁkvað í kjölfarið að lesa
DóminnVið ákvörðun refsingar verður talið að ákærðu eigi sér engar málsbætur og verður að líta á brot ákærðu að mestu sem samverknað án nokkurs réttmæts tilefnis. Ákærðu er báðir fulltíða menn með hreint sakavottorð.
Þykir refsing ákærða Sigurðar hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi sem rétt þykir að skilorðsbinda til tveggja ára eins og nánar greinir í dómsorði ekki síst vegna þess hve langt er síðan rannsókn málsins lauk en henni lauk á vordögum 2009.
Þykir refsing ákærða Stefáns Ágústs hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi sem rétt þykir af ofangreindum ástæðum að skilorðsbinda til tveggja ára eins og nánar greinir í dómsorði.
Mér finnst þeir sleppa alltof auðveldlega frá þessu !
hefðu auðveldlega getað drepið manninn ef það hefði ekki verið fólk sem veitti honum hjálp.
það er klárlega eitthvað að þessu fólki og það þarf að veita því aðstoð, ekki klappa því á bakið og segja "ekki gera þetta aftur"
2 árum eftir verknaðinn
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:06
af Klaufi
*ATH, það sem stendur hér fyrir neðan er skáldskapur um teiknimyndafígúrur í sögu sem ég er að semja. Ekkert hér fyrir neðan tengist umræðuefni spjallþráðarins*
Eitthvað er betra en ekkert segi ég nú bara, ég bjóst við þyngri dómum.
Og mér persónulega finnst þeir eiga þá skilið.
*Bætt við*
Og já, sammála því að þeir hljóta að þurfa á einhverri sálrænni hjálp að halda..
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:12
af AntiTrust
Sammála. Ég get líka ómögulega séð hvernig tími liðinn frá glæpnum getur minnkað afplánunartíma eða skilorðstíma.
Ég hefði búist við þyngri dóm en mér sýnist þetta vera að mestu leyti orð á móti orðum mál, og þau eru alltaf tvísýn.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:19
af Klaufi
AntiTrust skrifaði:Sammála. Ég get líka ómögulega séð hvernig tími liðinn frá glæpnum getur minnkað afplánunartíma eða skilorðstíma.
Ég hefði búist við þyngri dóm en mér sýnist þetta vera að mestu leyti orð á móti orðum mál, og þau eru alltaf tvísýn.
*ATH, það sem stendur hér fyrir neðan er skáldskapur um teiknimyndafígúrur í sögu sem ég er að semja. Ekkert hér fyrir neðan tengist umræðuefni spjallþráðarins*
Afhverju ætti starfsmaður í Fjarðarkaup með þúsundkall á tímann að fara að ráðast á mann fyrir að stela DVD mynd sem hefur engin áhrif á starfið hans?
Ég veit að það er ekki eins auðvelt fyrir dómara eins og fyrir okkur að taka hlið í þessu máli, kallaðu það fáfræði en miðað við fyrri sögur af þessari fjölskyldu veit ég alveg hvorum megin við línuna ég stend í málum þar sem þeira nöfn koma upp.
Einnig skil ég heldur ekki hvernig töf í dómskerfinu ætti að geta haft áhrif á dóminn.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:27
af AntiTrust
klaufi skrifaði:

Auðvitað 'vitum' við hvar sökin liggur, hverjir í þessu máli eru fæddir og uppaldnir fávitar og skítseiði. Það er hinsvegar dómarans starf að nálgast vitnisburð og málsgögn af hlutleysi, eins og gefur að skilja.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:41
af Klaufi
AntiTrust skrifaði:Auðvitað 'vitum' við hvar sökin liggur, hverjir í þessu máli eru fæddir og uppaldnir fávitar og skítseiði. Það er hinsvegar dómarans starf að nálgast vitnisburð og málsgögn af hlutleysi, eins og gefur að skilja.
*ATH, það sem stendur hér fyrir neðan er skáldskapur um teiknimyndafígúrur í sögu sem ég er að semja. Ekkert hér fyrir neðan tengist umræðuefni spjallþráðarins*
Yup, einmitt það sem ég var að reyna að koma frá mér..
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 16:58
af axyne
Get ekki annað en vorkennt starfsmanninum
Hann var einungis að sinna sinni vinnu er ráðist var á hann og þurfti að bíða í 2 ár til að fá viðurkenningu á máli sínu.
þarf siðan vændanlega að höfða skaðabótamál sjálfur til að fá einhverjar bætur.
Sorglegt hvað dómskerfið okkar er að kafna eftir bankahrunið, hlýtur að vera fullt af fólki sem samfélaginu stafar hætta af því það leikur lausum hala en ætti að vera í fangelsi (endurhæfingu)
Ekki myndi ég vilja lenda uppí kant við þessa feðga á förnum vegi, myndi eflaust enda með áverka og kæru á sjálfan mig fyrir líkamsárás.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:00
af dori
AntiTrust skrifaði:Auðvitað 'vitum' við hvar sökin liggur, hverjir í þessu máli eru fæddir og uppaldnir fávitar og skítseiði. Það er hinsvegar dómarans starf að nálgast vitnisburð og málsgögn af hlutleysi, eins og gefur að skilja.
Passaðu þig, hefur þetta fólk ekki kært fyrir meiðyrði og náð því í gegn? Svona hlutir láta mann reyndar missa alla trú á þessu samfélagi
http://eyjan.is/2010/09/20/aratunshjoni ... -meidyrda/
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:04
af AntiTrust
dori skrifaði:AntiTrust skrifaði:Auðvitað 'vitum' við hvar sökin liggur, hverjir í þessu máli eru fæddir og uppaldnir fávitar og skítseiði. Það er hinsvegar dómarans starf að nálgast vitnisburð og málsgögn af hlutleysi, eins og gefur að skilja.
Passaðu þig, hefur þetta fólk ekki kært fyrir meiðyrði og náð því í gegn? Svona hlutir láta mann reyndar missa alla trú á þessu samfélagi
http://eyjan.is/2010/09/20/aratunshjoni ... -meidyrda/
Það er einungis huglægt mat á því hvorn aðilann ég er að tala um. Annars skal ég glaður mæta umræddum skíthæl í réttarsal eða annarsstaðar, og kenna honum mannasiði.
/alpha-male gene activated.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:06
af Klaufi
dori skrifaði:AntiTrust skrifaði:Auðvitað 'vitum' við hvar sökin liggur, hverjir í þessu máli eru fæddir og uppaldnir fávitar og skítseiði. Það er hinsvegar dómarans starf að nálgast vitnisburð og málsgögn af hlutleysi, eins og gefur að skilja.
Passaðu þig, hefur þetta fólk ekki kært fyrir meiðyrði og náð því í gegn? Svona hlutir láta mann reyndar missa alla trú á þessu samfélagi
http://eyjan.is/2010/09/20/aratunshjoni ... -meidyrda/
*ATH, það sem stendur hér fyrir neðan er skáldskapur um teiknimyndafígúrur í sögu sem ég er að semja. Ekkert hér fyrir neðan tengist umræðuefni spjallþráðarins*
Noted..
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:33
af Hargo
Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:37
af axyne
Hargo skrifaði:Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Í dómnum stendur að konan hafi farið einhvert á meðan á barsmíðunum stóð ...
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 17:47
af Hargo
axyne skrifaði:Hargo skrifaði:Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Í dómnum stendur að konan hafi farið einhvert á meðan á barsmíðunum stóð ...
Kannski bara heim að horfa á DVD?
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 21:38
af Nekeroz
Hargo skrifaði:Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Mér finnst það mjög fyndið að EF hún stal DVD disknum að þeir tveir skyldu velja að fá á sig ákæru fyrir 2 likamsárás heldur en að skila DVD disknum...
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Þri 10. Maí 2011 21:42
af GuðjónR
Nekeroz skrifaði:Hargo skrifaði:Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Mér finnst það mjög fyndið að EF hún stal DVD disknum að þeir tveir skyldu velja að fá á sig ákæru fyrir 2 likamsárás heldur en að skila DVD disknum...
Þroskaheftir perhaps?
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Mið 11. Maí 2011 00:07
af Dormaster
Nekeroz skrifaði:Hargo skrifaði:Kom ekkert í ljós hvort konan hefði í raun stolið DVD disknum?
Mér finnst það mjög fyndið að EF hún stal DVD disknum að þeir tveir skyldu velja að fá á sig ákæru fyrir 2 likamsárás heldur en að skila DVD disknum...
mér finnst nú skrítið afhverju þeir notuðu ekki To***nt ?
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Mið 11. Maí 2011 01:49
af chaplin
Bara spurning hvenær þetta pakka ræðst á röngu aðilana sem pakka þeim saman í eitt skipti fyrir öll, en ég man það en fyrir uþb. 4-5 árum þurfti ég að hafa samband við lögregluna, ætla ekki að tjá mig um það mál en lögreglan sagði að lokum "glæpamenn hafa meiri réttindi en löghlíðnir borgarar"(sagði þetta bókstaflega en átti raun við að glæpamenn komast upp með allt og þarf almenningur síðan að gjalda fyrir þeirra glæpi), einnig var mælt með því að ég myndi ekki kæra málið.
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Mið 11. Maí 2011 08:33
af Benzmann
daanielin skrifaði:Bara spurning hvenær þetta pakka ræðst á röngu aðilana sem pakka þeim saman í eitt skipti fyrir öll, en ég man það en fyrir uþb. 4-5 árum þurfti ég að hafa samband við lögregluna, ætla ekki að tjá mig um það mál en lögreglan sagði að lokum "glæpamenn hafa meiri réttindi en löghlíðnir borgarar"(sagði þetta bókstaflega en átti raun við að glæpamenn komast upp með allt og þarf almenningur síðan að gjalda fyrir þeirra glæpi), einnig var mælt með því að ég myndi ekki kæra málið.
w0ot !
Re: Aratúns fjölskyldan.
Sent: Mið 11. Maí 2011 23:04
af axyne