Síða 1 af 1
Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 13:07
af bulldog
Ætlið þið að horfa á hnefaleikanna í nótt ? Ef þið ætlið að fylgjast með hvor haldið þið að vinni og af hverju ?
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 14:08
af J1nX
er fólk ennþá að horfa á box, hélt að UFC væri alveg búið að taka yfir þetta
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 15:26
af Gúrú
Pacquiao vinnur... ekki spurning.
Þess má geta að líkurnar hjá veðbönkunum á það að Mosely vinni eru 1:8.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 16:31
af KristinnK
Pacquiao er algert villidýr, það kemur mér mjög á óvart ef hann vinnur ekki.
@J1nX: MMA er tiltölulega ný íþrótt, og er enn að aukast í vinsældum. En staðreyndin er sú að hnefaleikar eru enn mun vinsælli íþróttin. Bestu hnefaleikakapparnir eru með um tífalt meiri laun en bestu mennirnir í MMA, það er svipað og að bera saman fótbolta og handbolta.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 16:53
af bulldog
Ef Mosley kemur í svipuðu formi og hann var á móti Margarito 2009 þá getur allt gerst.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:05
af Tiger
Hef ekki horft á box síðan Tyson hætti...... og að horfa á UFC er nú bara eins og fara í Borgarleikhúsið
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:11
af bulldog
Hættirðu að horfa þegar Lennox Lewis rotaði Tyson
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:11
af KristinnK
Tyson var náttúrulega líkamlega besti hnefaleikakappi allra tíma. Hann var ekki jafn taktískur og Ali, en krafturinn, og sérstaklega
hraðinn, var ótrúlegur.
Ég vil samt sjá Pacqiuano og Floyd Maíveður yngri loksins taka bardaga.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:16
af bulldog
Kristinn : spurning með George Foreman .... hann var líka óstöðvandi þegar hann var upp á sitt besta.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:28
af KristinnK
Foreman var ekki verri "power-puncher" en Tyson, en Tyson er bara svo ótrúlega sleipur og hraður. Ég er líka hliðhollur í þessu máli þar sem ég dáist svo mikið af Tyson.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:41
af bulldog
Tyson var mjög góður þegar hann var upp á sitt besta. Hann hafði samt ekki mikið úthald í Bardaga sem fóru í meira en 4-5 lotur af því að hann stútaði mönnum yfirleitt fyrr.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Lau 07. Maí 2011 17:46
af Gúrú
KristinnK skrifaði:Bestu hnefaleikakapparnir eru með um tífalt meiri laun en bestu mennirnir í MMA, það er svipað og að bera saman fótbolta og handbolta.
Þetta virðist vera satt, Anderson Silva og GSP averagea ~$400k í pay out frá UFC, líklega $400k ofaná það í PPV % og svo ~$250-500K í sponsorships, samtals ~$1-1.3M
A standard HBO PPV with no 24/7 build up the headliners usually get between $2,000,000-$7,000,000
A hyped HBO PPV with a 24/7 the headliners usually get between $4,000,000-$13,000,000
Then a few guys like Mayweather, Pacquiao, De La Hoya, and Hatton can make over $20,000,000 per fight.
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Sun 08. Maí 2011 08:20
af bulldog
Manny Pacquiao sigraði Shane Mosley á stigum áðan. Dómararnir skoruðu bardagannn 120-108, 120-107 & 119-108 .....
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Sun 08. Maí 2011 11:02
af Benzmann
það var kveikt á þessum leik á Bjarna Fel í nótt tók ég eftir...
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Sun 08. Maí 2011 11:15
af coldcut
djöfullsins rúst! ég man ekki eftir að hafa horft á bardaga sem vannst svona afgerandi með stigum!
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Sun 08. Maí 2011 11:50
af BjarkiB
Gúrú skrifaði:KristinnK skrifaði:Bestu hnefaleikakapparnir eru með um tífalt meiri laun en bestu mennirnir í MMA, það er svipað og að bera saman fótbolta og handbolta.
Þetta virðist vera satt, Anderson Silva og GSP averagea ~$400k í pay out frá UFC, líklega $400k ofaná það í PPV % og svo ~$250-500K í sponsorships, samtals ~$1-1.3M
A standard HBO PPV with no 24/7 build up the headliners usually get between $2,000,000-$7,000,000
A hyped HBO PPV with a 24/7 the headliners usually get between $4,000,000-$13,000,000
Then a few guys like Mayweather, Pacquiao, De La Hoya, and Hatton can make over $20,000,000 per fight.
^^
Fá þeir samt ekki meira gæjanir í UFC eins og CroCop heldur en í strikeforce?
Annars þá bíður maður aftur 18 júni, Overeem á móti Werdum í strikeforce!
Re: Pacquiao vs Mosley
Sent: Sun 08. Maí 2011 13:14
af bulldog
Pacquiao fékk 20 milljón dollara + prósentur af pay per view
Mosley fékk 5 milljón dollara + prósentur af pay per view
Þetta er sko engar örorkubætur sem þeir fengu fyrir 36 mín slagsmál ....
De La Hoya og Hatton eru hættir .....
Nún þarf bara að fá Pacquiao vs Mayweather .... það er talað um að það væru c.a. 50 milljón dollara á haus þar