Síða 1 af 2

Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 15:49
af GuðjónR
Ég keypti 4 risa bónus (Góu)- páskaegg...mér finnst það langbesta súkkulaðið.
Börnin fá 3 og ég við konan skiptum á milli okkar einu.
Namm namm.

Málshættir:
-Ekki er synd í sönnum auði-
-Hvað tungan meiðir er torvelt að lækna-
-Dropinn holar harðan stein-
-Engum er alls varnað-

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 15:52
af vidirz
Fékk 1x nr.5 og 1x nr.3 frá nóa =P~

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 15:54
af Black
Draumaegg nr.9 hérna, frá freyju, spurning um að hafa þetta málsháttar þráð líka,

"Það er sama hvaðan gott kemur"

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 15:55
af JohnnyX
Borða ekki páskaegg. Hata súkkulaðið sem þau eru gerð úr!

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 15:58
af coldcut
Kólus páskaeggin frá Sambó...laaaaaangbest!

Annars er ég orðinn þannig að ég fæ mér 4 bita og er þá kominn með ógeð. Er að gera aðra tilraun á að éta e-ð af þessu risa eggi! :dontpressthatbutton

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:01
af GuðjónR
coldcut skrifaði:Annars er ég orðinn þannig að ég fæ mér 4 bita og er þá kominn með ógeð. Er að gera aðra tilraun á að éta e-ð af þessu risa eggi! :dontpressthatbutton

Ég er þannig líka, kem til með að eiga þetta í viku...samt er þetta alltaf stemning :)

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:03
af Sucre
Fékk mér Kólus páskabolta frá Sambó besta sukkulaðið í þessu finnst mér. :happy

Málsháttur: Töluð orð eru ekki aftur tekin.

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:04
af MarsVolta
Ég fékk páskaegg með karmellukurli frá Nóa. Mjög gott :D, ég verð samt örugglega svona viku með páskaeggið, ég fæ alltaf ógeð eftir svona 2-3 bita :P.

Málsháttur :
- Segjanda er allt sínum vin

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:06
af Klemmi
Nói nr. 7

Fleira er matur en feitt kjöt.

Bullshit.

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:07
af tdog
MarsVolta skrifaði:Ég fékk páskaegg með karmellukurli frá Nóa. Mjög gott :D, ég verð samt örugglega svona viku með páskaeggið, ég fæ alltaf ógeð eftir svona 2-3 bita :P.

Málsháttur :
- Segjanda er allt sínum vin


Ég smakkaði eitt svoleiðis og fannst það ógeðslegt, annars tvö Nóaegg, tengdó gáfu mér eitt og mamma hitt. Kæró er abbó at the moment.

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:07
af Frost
Góa nr.6 og byrjaði á því eftir miðnætti um svona 1 leytið.

Betur vinna byggindi en barðindi

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:29
af Benzmann
fékk ekkert páskaegg :*(

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 16:31
af Glazier
JohnnyX skrifaði:Borða ekki páskaegg. Hata súkkulaði !

Lagað :)

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:05
af JohnnyX
Glazier skrifaði:
JohnnyX skrifaði:Borða ekki páskaegg. Hata súkkulaði !

Lagað :)


Haha, get nú ekki sagt það ;)

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:12
af Predator
Fékk Bónus egg nr. 6 sem ég er búinn með

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:26
af beggi90
Fékk eitt pínulítið Nóa egg (nr.1?)
Og eitt soðið skreitt egg...

Málsháttur: Betra er heilt en vel gróið.

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:39
af KrissiP
Kláraði eitt númer 4 frá Nóa með Frönsku Núggati :happy

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:53
af gissur1
Nr.7 frá Nóa

"Þögn er visku tákn en mælgi heimsku mark"

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 17:58
af vesley
Nóa egg hérna.
Betra er fylgi en fjölmenni

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:02
af hagur
Á mínu heimili voru keypt 2 stór Kólus/sambó (man ekki hvað þetta heitir) páskaegg og svo fékk ég eitt rebranded Nóa egg frá vinnunni með tölvunördamálsháttum.

Minn var "Á eftir línu kemur enter" :)

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:04
af bulldog
Nei ég fékk mér ekki páskaegg heldur bara góðann mat í kvöld af því að ég er með sykursýki \:D/ =D> =D> =D> =D>

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:26
af worghal
af einhverjum ástæðum þá finnst mér páskaegg ekkert spennandi =/
þannig ég fékk mér ekkert egg

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:34
af Nothing
Fékk mér ekkert páskaegg í staðin fékk ég mér kassa af súkkulaði Hámark próteindrykkjum.

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:38
af GuðjónR
Nothing skrifaði:Fékk mér ekkert páskaegg í staðin fékk ég mér kassa af súkkulaði Hámark próteindrykkjum.

:pjuke

Re: Allir búnir að fá páskaegg?

Sent: Sun 24. Apr 2011 18:42
af bulldog
x2