Síða 1 af 1

Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:17
af Ripparinn
Sælir,

Ég er að fara versla mér bíl núna eftir páska(BMW E36 318) og mig langar að gera eitthvað skemtilegt við hann, ég hef séð á netinu að fólk sé að setja tölvur í bílana sína og svona fleira og ég varð yfir mig hrifinn af því.
Hefur einhver gert þetta áður?

Mig vantar svona að vita hvað ég þarf til þess að gera þetta, hvað sé best að nota og hvar ég get staðsett tölvuna í bílnum. Var að spá með einhverja litla Shuttle vél og kanski lítinn 7" skjá en ég veit ekki allveg.
Ég fer í það að setja hljóðkerfi í bílinn, semsagt keilur, magnara, hátalara og sem því fylgir en það eru svo margir með þannig og langar mig að gera eitthvað sem fáir hafa gert.
Endilega ef einhver hefur gert þetta áður eða hefur hugmynd um hvernig sé best að gera þetta að endilega láta ljós sitt skína :)

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:28
af thegirl
Ripparinn skrifaði:Sælir,

til hamingju með kaupin en ein spurning samt, til hvers þarftu tölvu í bílinn?... fáðu þér bara ipad og málið leyst;)

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:33
af vesley
Myndi nú spara mér peninginn og annaðhvort safna uppí betri bíl eða þá í að breyta þessum (er ekki að tala um drepljótt hrísgrjóna boddíkitt) ef þú hefur eitthvern áhuga á því, sem væri nú kannski sóun á svona bíl.

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:36
af Ripparinn
vesley skrifaði:Myndi nú spara mér peninginn og annaðhvort safna uppí betri bíl eða þá í að breyta þessum (er ekki að tala um drepljótt hrísgrjóna boddíkitt) ef þú hefur eitthvern áhuga á því, sem væri nú kannski sóun á svona bíl.

Já veistu, þessi bíll er nú í toppstandi, buið að skipta um allveg heilan helling á þessu kvikyndi, enda kostar það sitt :)
En jújú ég var ekki að tal um eitthvað rosalega dýrt project og tölvan þarf ekki að vera nein supertölva, baara geta verið með nokkra fítusa.

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:40
af Árni95
Ef ég væri að fara að gera eithvað svona mymdi ég oruglega taka eithvað svona(http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=27625)
með pínu af þessu (http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=23376)
og ögn af svona(http://tl.is/vara/19849)

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:40
af djvietice

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 20:56
af Klaufi
Ef ég man rétt þá var AntiTrust með góða linka á græjur fyrir 1-2 árum..
Þær kostuðu sitt en athugum hvort hann geti staðfest það, eða hvort ég sé að rugla.

Annars var ég með í jeppanum hjá mér mini-atx borð fest á álplötu fyrir innan klæðninguna á afturbrettunum, og keypti aflgjafa fyrir 24v inn.
Svo var ég með ódýran 10-11" skjá með henni, notaði hana undir tónlist, sem kortatölvu og fl.

Annars það sem ég er með í fave er þetta:
http://www.mini-box.com/Car-PC-Automoti ... -Solutions (keypti aflgjafann þarna minnir mig, flottar vélar þarna líka.)
http://www.carpc.nl/index.shtml
http://www.cartft.com/

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 21:45
af AntiTrust
Hérna er linkur á projectið mitt sem ég gerði við LR3 sem ég átti. Ekki lagt aftur í þetta, ekki beint auðvelt né ódýrt að ráðast í svona í A6.

viewtopic.php?f=58&t=28766

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 21:46
af roadwarrior
Er með tölvu í bílnum hjá mér og er búinn að vera með í nokkur ár. Besti staðurin fyrir þig að byrja er að skoða mp3car.com . ALLT það sem þú þarft að vita. But beware. ef þú ferð útí þetta að einhverrji alvöru þá kostar þetta slatta.

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 21:58
af Danni V8
E36 318i. Vel valið :happy Mig langar einmitt í einn þannig til að eiga með hinum bimmanum mínum og nota sem snattara þar sem 21 árs 3.5 línu sexa eyðir alveg skuggalega miklu!

En varðandi tölvuna í bílnum, gerðu bara eins og þessi:
http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... ?t=1510211

:sleezyjoe

Annars þegar ég hugsa út í það þá dettur mér ekki margir staðir í hug fyrir tölvu í E36. Annað hvort í staðinn fyrir varadekkið eða þá í rafgeymaplássinu að aftan ef að rafgeymirinn er í húddinu. Ef þú vilt hafa hana frammí þá bara dettur mér enginn staður í hug. Get reyndar ekki heldur ímyndað mér hvar það væri hægt að koma fyrir skjá án þess að það kæmi illa út en það er kannski því að ég er meðlimur í Stock Police :megasmile

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 22:17
af Ripparinn
Danni V8 skrifaði:E36 318i. Vel valið :happy Mig langar einmitt í einn þannig til að eiga með hinum bimmanum mínum og nota sem snattara þar sem 21 árs 3.5 línu sexa eyðir alveg skuggalega miklu!

En varðandi tölvuna í bílnum, gerðu bara eins og þessi:
http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... ?t=1510211

:sleezyjoe

Annars þegar ég hugsa út í það þá dettur mér ekki margir staðir í hug fyrir tölvu í E36. Annað hvort í staðinn fyrir varadekkið eða þá í rafgeymaplássinu að aftan ef að rafgeymirinn er í húddinu. Ef þú vilt hafa hana frammí þá bara dettur mér enginn staður í hug. Get reyndar ekki heldur ímyndað mér hvar það væri hægt að koma fyrir skjá án þess að það kæmi illa út en það er kannski því að ég er meðlimur í Stock Police :megasmile

Já þetta er sniðugt, í ipadinum eru lika margir skemtilegir fítusar og svona skemtilegt :)
En eins og þú segir þá var ég líka einmitt að spá hvar ég gæti komið henni fyrir þá var ég lika að pæla þar sem varadekkið á að vera en ekki allveg viss með það. Ætla skoða þetta með Ipadinn, gæti verið helvíti smart :D

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 22:31
af Sh4dE
Ég myndi setja eitt beagleboard og svo 7" snertiskjá þar sem að útvarpið á að vera gott forritunar project og tölvufikt í bíl :P
http://beagleboard.org/

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Sun 17. Apr 2011 22:49
af biturk
thegirl skrifaði:
Ripparinn skrifaði:Sælir,

Ég er að fara versla mér bíl núna eftir páska(BMW E36 318) og mig langar að gera eitthvað skemtilegt við hann, ég hef séð á netinu að fólk sé að setja tölvur í bílana sína og svona fleira og ég varð yfir mig hrifinn af því.
Hefur einhver gert þetta áður?

Mig vantar svona að vita hvað ég þarf til þess að gera þetta, hvað sé best að nota og hvar ég get staðsett tölvuna í bílnum. Var að spá með einhverja litla Shuttle vél og kanski lítinn 7" skjá en ég veit ekki allveg.
Ég fer í það að setja hljóðkerfi í bílinn, semsagt keilur, magnara, hátalara og sem því fylgir en það eru svo margir með þannig og langar mig að gera eitthvað sem fáir hafa gert.
Endilega ef einhver hefur gert þetta áður eða hefur hugmynd um hvernig sé best að gera þetta að endilega láta ljós sitt skína :)

til hamingju með kaupin en ein spurning samt, til hvers þarftu tölvu í bílinn?... fáðu þér bara ipad og málið leyst;)

kannski langar honum í eitthvað sem virkar \:D/

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Mán 18. Apr 2011 21:14
af Ripparinn
Glæislegt allt þetta :)

En já í stuttu máli þá vantar mér bara titla vél sem ég get haft media player í, like itunes eða winamp og spilað tónlist og kanski video en það er ekki nauðsyn :)
Gott væri að geta tengt það semsagt við græjurnar og svona skemtilegt :)

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Mán 18. Apr 2011 22:05
af AntiTrust
Snertiskjár + Centrafuse. Vægast sagt killer combo.

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Mán 18. Apr 2011 22:45
af tdog
Ripparinn skrifaði:Glæislegt allt þetta :)

En já í stuttu máli þá vantar mér bara titla vél sem ég get haft media player í, like itunes eða winamp og spilað tónlist og kanski video en það er ekki nauðsyn :)
Gott væri að geta tengt það semsagt við græjurnar og svona skemtilegt :)

iPad!

Re: Tölva í bílinn ? :)

Sent: Mán 18. Apr 2011 23:10
af capteinninn
Ég var að spá í þessu líka um daginn. Held að það sé mjög sniðugt að kaupa einhverja tablet.
Athuga hvort þú getur eitthvað fiffað þannig að þú getur haft harðan disk með tónlist, bíómyndum og þáttum og slíku og tengt beint í tabletið.

Held að það sé ekki hægt á iPad en líklega á einhverjum af android töflunum.
Ef ég fer í þetta þá ætla ég að reyna að gera þetta þannig. Mjög nice að geta haft hana í bílnum og svo tekið hana bara með sér, ég er með android símann minn sem iPod í bílnum og tengi með aux tengi og það virkar mjög fínt en ég var að spá ef ég ætlaði að hafa eitthvað meira en bara um það bil 14 gb að nota þá svona töflu.

Held að snertiskjáir séu mjög dýrir og þarna færðu snertiskjá, fullt af forritum og dóti, getur horft á bíómyndir og þætti líka, netið í þessu og allskonar dóterí.
Ef þetta harða diska/flakkara dæmi sem ég talaði um er hægt þá er það þvílík epík

Bætt við.
Sýnist að maður geti rootað Xoom töfluna sem er með android 3.0 og spilað bíómyndir af flakkara. Go for it og segðu svo frá