Síða 1 af 1

Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:19
af vesley
Jæja þar sem Vaktin er kominn langa leið í að verða "Barnaland" :-" Ætla ég að henda inn hérna nýja videoinu af Unreal Engine 3.

Mynd



http://www.youtube.com/watch?v=4cvNJPvX ... r_embedded


Hvernig lýst ykkur svo á?
Leikirnir eiga eftir að verða rosalegir fyrir þá sem hafa tölvurnar til að ráða við þetta :8)

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:27
af Frost
Var einmitt að horfa á þetta video um daginn og ég varð alveg dolfallinn! Gefur mér löngun til að eiga eitthvað annað en mína litlu fartölvu...

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:42
af GuðjónR
Þetta er bara....Unreal.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Mán 11. Apr 2011 18:01
af Klaufi
Jæja, þá er það ákveðið, ég endist ekki á laptop út árið.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Mán 11. Apr 2011 18:35
af Frost
klaufi skrifaði:Jæja, þá er það ákveðið, ég endist ekki á laptop út árið.


Erfið barátta við nördann inní sér :dissed

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Fös 15. Apr 2011 21:06
af vidirz
Nice, lýst vel á þetta. En jafnast þetta eitthvað á við crysis 2 í fullri upplausn og hæstu stillingum?

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Fös 15. Apr 2011 21:29
af braudrist
Crysis 2 er bara sorp miðað við þetta; ekkert spes grafík í Crysis 2, enda bara lélegt port úr Xbox 360 sem notar svipað grafík kort og gamla ATi x1900.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Fös 15. Apr 2011 21:37
af Tiger
Þetta á bara eftir að henta ofsalega vel fyrir nýju vélina mína, hún étur þetta í morgunmat held ég bara :)

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Fös 15. Apr 2011 22:23
af Saber
http://www.youtube.com/watch?v=501tSvxnSEo

Þetta video er frá 2004. Pælið í því hvað það hefur verið lítil þróun síðastliðin ár.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Fös 15. Apr 2011 23:38
af Klaufi
Snuddi skrifaði:Þetta á bara eftir að henta ofsalega vel fyrir nýju vélina mína, hún étur þetta í morgunmat held ég bara :)


Svo spýtir hún út afgöngum í hárri upplausn..

janus skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=501tSvxnSEo

Þetta video er frá 2004. Pælið í því hvað það hefur verið lítil þróun síðastliðin ár.


Þrjú orð:
Guð minn góður.

OG ekki er ég hátrúaður..

Það er svo erfitt að ímynda sér hvenær þetta er orðið nógu gott, hvenær fer tæknin það langt fram úr manns augum/heilum að það tekur því ekki að þróa betri vélar og vélbúnað?

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Lau 16. Apr 2011 02:36
af Saber
klaufi skrifaði:Það er svo erfitt að ímynda sér hvenær þetta er orðið nógu gott, hvenær fer tæknin það langt fram úr manns augum/heilum að það tekur því ekki að þróa betri vélar og vélbúnað?


Ég býð spenntur eftir þeim tíma. Þá loxins fara kannski einhverjir peningar og R&D í þróun á hljóðvélum, "gameplay", "interactivity", karaktera og sögufléttur m.a.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Lau 16. Apr 2011 04:24
af dragonis
janus skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=501tSvxnSEo

Þetta video er frá 2004. Pælið í því hvað það hefur verið lítil þróun síðastliðin ár.


Er þetta bara ég eða er engin að sjá hvað consoles eru búin að hafa áhrif á gaming og graphic industry.,seinustu 6-7 ár.Þetta er staðnaðari en andskotinn.

Ekki bara það heldur er allt gameplay farið í vaskinn.allt linear og boring .Click X button quest on map etc.Holy moly.

Er kominn í glas en þetta er bara boring. Og ÖMURLEG ÞRÓUN ! .

Svo heyrir maður í noobs PS3 rocks man lol ,PC gaming is dead lol ehh ?

Er þetta málið?

Var nú einu sinni ungur en þetta er gjörsamlega reverse þróun á við það sem maður aldist upp við.

En til að vera on topic þá er ég að fýla þetta video :) http://www.youtube.com/watch?v=RSXyztq_0uM sá þetta ekki þræðinum.

Re: Unreal Engine 3. Direct x11 uppfærslur.

Sent: Lau 16. Apr 2011 10:46
af Hvati
@Dragonis, Jú, þetta virðist vera þróun tölvuleikja síðusta ára, skítléttir og allir með eins gameplay og grafík. Þetta gildir auðvitað ekki við alla leiki, það eru fullt af independant leikjum sem eru að gera góða hluti.
En það er klárt mál að Xbox og PS3 séu að halda aftur fyrir PC hvað varðar grafík, þetta eru jú nánast 6 ára gamlar tölvur.