Síða 1 af 8
Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:11
af GuðjónR
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:20
af ZiRiuS
Guð minn góður hvað ég er orðinn þreyttur á þessu áróðurskjaftæði, hvernig væri bara ef þið drullist til að kynna ykkur þetta almennilega og myndið síðan ykkar eigin skoðun í staðin fyrir að hlusta á einhverja snarklikkaða Moggabloggara sem hafa ekkert orðið gáfaðari en fyrir hrun (sem btw tóku fullan þátt í þessu góðæri).
Tjékkið á heimasíðu HÍ um icesave málið og myndið ykkar eigin skoðun, plís.
Takk.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:26
af Glazier
ZiRiuS skrifaði:Guð minn góður hvað ég er orðinn þreyttur á þessu áróðurskjaftæði, hvernig væri bara ef þið drullist til að kynna ykkur þetta almennilega og myndið síðan ykkar eigin skoðun í staðin fyrir að hlusta á einhverja snarklikkaða Moggabloggara sem hafa ekkert orðið gáfaðari en fyrir hrun (sem btw tóku fullan þátt í þessu góðæri).
Tjékkið á heimasíðu HÍ um icesave málið og myndið ykkar eigin skoðun, plís.
Takk.
Við erum búnir að mynda okkar eigin skoðun.. núna ert þú að reyna að breyta henni
Eins og GuðjónR sagði einhverstaðar hér á spjallinu "Einkavæða gróðann og ríkisvæða tapið"
Ég græddi ekkert á þessu icesave dóti og kom ekki nálægt því og þá ætla ég ekki að tapa á því heldur, það er bara ekki réttlátt.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:29
af biturk
ZiRiuS skrifaði:Guð minn góður hvað ég er orðinn þreyttur á þessu áróðurskjaftæði, hvernig væri bara ef þið drullist til að kynna ykkur þetta almennilega og myndið síðan ykkar eigin skoðun í staðin fyrir að hlusta á einhverja snarklikkaða Moggabloggara sem hafa ekkert orðið gáfaðari en fyrir hrun (sem btw tóku fullan þátt í þessu góðæri).
Tjékkið á heimasíðu HÍ um icesave málið og myndið ykkar eigin skoðun, plís.
Takk.
þetta er ekki áróður, þetta er sannleikur!
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:31
af chaplin
Ég var alltaf harður á því að segja "nei", en eftir að skoða stöðuna betur að þá virðist það vera, sama hversu ósanngjarnt, glatað og leiðinlegt það er, að þá neyðumst við sennilega til að borga.
Ef Bretar og Hollendingar væru ekki búnir að vera svona miklir djöfusins skíthælar við okkur myndi ég ekki hika við að segja já við samningnum, borga og halda áfram að lifa, en að þeir séu að koma með hótanir, skítkast og td. hryðjuverkalögin fær mig til að hika.
Einnig mv. allt sem ég hef lesið um Icesave að þá endar það oftast þannig að skuldum ekki neitt í þessu blessaða Icesave máli, en við töpum meira á því að neita að borga.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:33
af beggi90
Talsetningin pirrar mig allveg svakalega í þessu.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:41
af intenz
ZiRiuS skrifaði:Guð minn góður hvað ég er orðinn þreyttur á þessu áróðurskjaftæði, hvernig væri bara ef þið drullist til að kynna ykkur þetta almennilega og myndið síðan ykkar eigin skoðun í staðin fyrir að hlusta á einhverja snarklikkaða Moggabloggara sem hafa ekkert orðið gáfaðari en fyrir hrun (sem btw tóku fullan þátt í þessu góðæri).
Tjékkið á heimasíðu HÍ um icesave málið og myndið ykkar eigin skoðun, plís.
Takk.
Mér heyrist á þér að þú ætlir að segja Já?
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:49
af GuðjónR
ZiRiuS skrifaði:Tjékkið á heimasíðu HÍ um icesave málið og myndið ykkar eigin skoðun, plís.
Af því að HI er svo áræðanleg og ópólitísk stofnun? hehehehe....einmitt.
daanielin skrifaði:Ég var alltaf harður á því að segja "nei", en eftir að skoða stöðuna betur að þá virðist það vera, sama hversu ósanngjarnt, glatað og leiðinlegt það er, að þá neyðumst við sennilega til að borga.
Af hverju? Af því að Breta segja svo? Og hver á að dæma okkur til þess? Og af hverju ættum við að viðurkenna þann dóm og fara eftir honum?
Helstu rökin sem stjórnin notar fyrir JÁ eru þau að þetta sé svo "leiðinlegt mál" og það sé tími til kominn að ljúka því...
Með því að segja JÁ þá líkur því ekki fyrir en 2046.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:53
af biturk
ég skil ekki af hverju fólk virðist ekki ná því að það verður að sækja málið fyrir íslenskum dómstólum
efta og esa geta bara gefið leiðbeinandi álit sem við getum hunsað eins og okkur langar....
heldur fólk virkilega að ef við værum ekki með lögin okkar megin að bretar og hollendingar væru eitthvað að vesenast í samningum? það er pottþétt að þeir hefðu kært það strax ef þeir hefðu haldið að það myndi þýða eitthvað
icesave málið er ekkert annað en kúgun þessara þjóða
og eina ástæðan fyrir að samspillingin vill greiða þetta er svo það velti enginn steinn í esb götuna, því það er jú þangað sem er verið að reina að nauðga okkur inn.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 16:55
af dori
GuðjónR skrifaði:Með því að segja JÁ þá líkur því ekki fyrir en 2046.
Mér finnst einmitt það að segja að já "klári málið" og að aukin skuldsetnings ríkissjóðs um 600 ma. (þó svo að það séu allar líkur á að mest af því komi úr eignasafni gamla Landsbankans) auki lánshæfi og verði til þess að lækka vexti á lánum sem við getum fengið svo skrýtin hugmynd.
Málið fer ekkert ef við viðurkennum það og tökum allt á okkur.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:00
af GuðjónR
biturk skrifaði:ég skil ekki af hverju fólk virðist ekki ná því að það verður að sækja málið fyrir íslenskum dómstólum
Það eru skiptar skoðanir um það.
biturk skrifaði:efta og esa geta bara gefið leiðbeinandi álit sem við getum hunsað eins og okkur langar....
True...en þá kemst Jóhanna ekki í ESB. (snýst þetta annars ekki um ESB?).
biturk skrifaði:heldur fólk virkilega að ef við værum ekki með lögin okkar megin að bretar og hollendingar væru eitthvað að vesenast í samningum? það er pottþétt að þeir hefðu kært það strax ef þeir hefðu haldið að það myndi þýða eitthvað
Nákvæmlega.
biturk skrifaði:icesave málið er ekkert annað en kúgun þessara þjóða
Ekkert annað, og Jóhanna er eins og eiginkona alkóholista, bullandi afneitun og því meira sem barið er á henni því meira langar henni í klúbbinn.
biturk skrifaði:og eina ástæðan fyrir að samspillingin vill greiða þetta er svo það velti enginn steinn í esb götuna, því það er jú þangað sem er verið að reina að nauðga okkur inn.
Það er nákvæmlega málið.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:01
af Halli13
Að segja já: við borgum 0-50 milljarða.
Að segja nei: það er miklar líkur að við vinnum dómsmálið og þurfum ekki að borga neitt, en ef að við töpum dómsmálinu verðru ríkið líklegast gjaldþrota.
Þannig að þetta er spurning um hvort við viljum taka sénsinn á að þurfa ekki að borga eða borga upphæð sem við ráðum alveg við (0-150.000 á hvern íslending).
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:02
af axyne
Eins og ég sé þetta fyrir mér þá verður kosið um:
[ ] Láta Ríða Íslandi í rassgatið.
[ ] Láta Ríða Íslandi í rassgatið.
Hvernig sem horft er á þetta leiðinlega mál þá verður íslandi alltaf riðið í rassgatið
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:03
af tdog
Hlusta á HÍ, Zirius-ly?
Ekki finnst þér það góð hugmynd að halda að stofnun sem fær peninga á silfurfati frá Ríkinu geti útskýrt málið og fengið fólk til að mynda sér skoðun? Frekar hlusta ég á almúgamann.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:05
af Halli13
tdog skrifaði:Hlusta á HÍ, Zirius-ly?
Ekki finnst þér það góð hugmynd að halda að stofnun sem fær peninga á silfurfati frá Ríkinu geti útskýrt málið og fengið fólk til að mynda sér skoðun? Frekar hlusta ég á almúgamann.
Og af hverju ættu háskólar ekki að fá peninga frá ríkinu??
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:07
af GuðjónR
Halli13 skrifaði:Að segja já: við borgum 0-50 milljarða.
Hvað hefurðu fyrir þér í því? Stjórnvöld tala um 50-600 milljarða...það veit engin hvað kemur út úr Landsbankanum
Halli13 skrifaði:Að segja nei: það er miklar líkur að við vinnum dómsmálið og þurfum ekki að borga neitt, en ef að við töpum dómsmálinu verðru ríkið líklegast gjaldþrota.
Ríkið er gjaldþrota fyrir, ef það hefur farið fram hjá einhverjum.
Við höfum engu að tapa.
Halli13 skrifaði:Þannig að þetta er spurning um hvort við viljum taka sénsinn á að þurfa ekki að borga eða borga upphæð sem við ráðum alveg við (0-150.000 á hvern íslending).
Við erum sex hérna í heimili... 6x150.000 eins og þú talar um eru 900.000.- sem ég er ekki til í að borga.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:08
af Nördaklessa
ég vitna bara í Halldór Laxness í þessu máli og hann sagði eitt sinn "Svo lengi sem ég sækist ekki í annara manna gróða , sækist ég ekki í bera annara manna skuld"
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:11
af Matti21
Mér finnst svakalega stór hluti íslendinga þurfa að gera sér grein fyrir því að þessar kosningar
snúast ekki um hvort við séum að fara að borga eða ekki. Þær snúast um það hvort við samþykkjum núverandi samning eða förum dómstóla leiðina sem engin veit með vissu hvað kemur út úr. Ég ætla að kjósa Já en ætla ekki að fara að ræða yfir einum og neinum hér af hverju. Það er einfaldlega mín skoðun eftir að hafa kynnt mér þetta mál.
En hugsið þetta samt svona:
Ef dæmið væri öfugt. Ef hollendingar og Bretar skulduðu okkur. Mundum við ekki krefjast þess að þeir greiddu þessa skuld til baka? Værum við ekki búin að rústa sendiráðum þeirra hér á landi og krefjast peningsins okkar?
Hinsvegar finnst mér í heildina fáranlegt hvað þetta Icesave mál fær mikla athygli þegar fall Seðlabankans er að fara að kosta okkur svo margfallt meira. Samt pælir enginn í því og fjölmiðlar fjalla ekki um það. Allavega ekki morgunblaðið (guess why)...
Skoðið kökuritið hérna
http://www.dv.is/frettir/2011/4/1/ags-a ... ve-fellur/og farið svo á
thjodaratkvaedi.is og myndið ykkar eigin skoðun á þessu máli.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:16
af biturk
mitt heimili hefur ekki efni á 450þús í viðbót.........
ég kann líka ekki við þessa setningu
"líklegast fæst nóg úr landsbankanum" sér í lagi ekki frá ríkisstjórn með lygasýki því ég hef enn ekki fengið svar hvað menn ætla að gera ef að það kemur síðann ekkert úr landsbankanum........sem eru jú helmings líkur
og já.......það má líkja þessu við handrukkun.....og lögreglan segir alltaf að það eigi að kæra handrukkun og ekki borga þegar manni er hótað........af hverju er þetta öðruvísi?
jú auðvitað það eru víst eitthvað samband sem ég man ekki hvað heitir sem mun ekki hleipa okkur í hóp inna glötuðu þjóða ef við borgum ekki "verndartollinn"
mattzi.......
ef við samþykjum þá borgum við.........ef samþykjum ekki þá borgum við ekki......
auðvitað snýst þetta um hvort það er borgað eða ekki
og já. þjóðaratkvæði síðann er haldið uppi af ríkisstjórninni...........sem vill að við kjósum já svo það er ekki vettvangur til að mynda sér skoðun á
EDIT!
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/04/04/bretar_og_hollendingar_sagdir_ottast_domstolaleidin/
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:26
af chaplin
Ef við segjum nei verður vonlaust að fá lán í framtíðinni, efnahagur fer versnandi, fáar þjóðir munu líklegast vilja eiga viðsk. við okkur osfv. Ef við hinsvegar vinnum dómstólinn verður þetta líklegast ekki alveg svo slæmt.
Ef við segjum já erum við bókstaflega að láta taka okkur í rassgatið, við borgum skuld sem kemur nánast engum við. Ég td. vissi ekki einusinni hvað Icesave var fyrr en Bretar sögðu að ég ætti að borga skuldina.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:31
af Matti21
biturk skrifaði:ef við samþykjum þá borgum við.........ef samþykjum ekki þá borgum við ekki......
auðvitað snýst þetta um hvort það er borgað eða ekki
og já. þjóðaratkvæði síðann er haldið uppi af ríkisstjórninni...........sem vill að við kjósum já svo það er ekki vettvangur til að mynda sér skoðun á
Nei. Ef við samþykkjum ekki þá förum við fyrir dómstóla. Á sama hátt og þú segir að engin viti hvað kemur úr þrotabúi landsbankans veit heldur enginn hvernig dómstólaleiðin fer.
Það er f Lagastofnun Háskóla Íslands sem að gerir síðuna thjodaratkvaedi.is fyrir alþingi íslands. Þú getur ákveðið fyrir þig að treysta henni ekki.
Mér finnst hún vel uppsett og útskýrir málið vel á báða bóga. Frekar treysti ég henni en fjölmiðlum undir stjórn Davíðs Oddsonar eða í eigu útrásavíkinga.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:33
af biturk
Matti21 skrifaði:biturk skrifaði:ef við samþykjum þá borgum við.........ef samþykjum ekki þá borgum við ekki......
auðvitað snýst þetta um hvort það er borgað eða ekki
og já. þjóðaratkvæði síðann er haldið uppi af ríkisstjórninni...........sem vill að við kjósum já svo það er ekki vettvangur til að mynda sér skoðun á
Nei. Ef við samþykkjum ekki þá förum við fyrir dómstóla. Á sama hátt og þú segir að engin viti hvað kemur úr þrotabúi landsbankans veit heldur enginn hvernig dómstólaleiðin fer.
Það er f Lagastofnun Háskóla Íslands sem að gerir síðuna thjodaratkvaedi.is fyrir alþingi íslands. Þú getur ákveðið fyrir þig að treysta henni ekki.
Mér finnst hún vel uppsett og útskýrir málið vel á báða bóga. Frekar treysti ég henni en fjölmiðlum undir stjórn Davíðs Oddsonar eða í eigu útrásavíkinga.
helduru að það sé að ástæðulausu að bretar og hollendingar óttast dómstóla leiðina.......helduru að þeir séu skíthræddir við að vinna
háskóli íslands er fjármagnaður af ríkinu........do the math
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:36
af Pandemic
biturk skrifaði:helduru að það sé að ástæðulausu að bretar og hollendingar óttast dómstóla leiðina.......helduru að þeir séu skíthræddir við að vinna
háskóli íslands er fjármagnaður af ríkinu........do the math
Ég segi nú bara do your research, það hefur hvergi komið fram að þeir óttist dómstólaleiðina.
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:37
af vesley
Pandemic skrifaði:biturk skrifaði:helduru að það sé að ástæðulausu að bretar og hollendingar óttast dómstóla leiðina.......helduru að þeir séu skíthræddir við að vinna
háskóli íslands er fjármagnaður af ríkinu........do the math
Ég segi nú bara do your research, það hefur hvergi komið fram að þeir óttist dómstólaleiðina.
Fjölmiðlar segja það
Re: Hver á að borga? (teiknimynd)
Sent: Mán 04. Apr 2011 17:38
af GuðjónR
daanielin skrifaði:Ef við segjum nei verður vonlaust að fá lán í framtíðinni, efnahagur fer versnandi, fáar þjóðir munu líklegast vilja eiga viðsk. við okkur osfv. Ef við hinsvegar vinnum dómstólinn verður þetta líklegast ekki alveg svo slæmt.
Well...við getum ekki vitað það fyrirfram.
Ég held nú að fólk vilji fjárfesta hér áfram, mig grunar að þetta IceSave sé stærra í okkar augum en annara.
Það var einhverntíman gerð könnun í bretlandi og hollandi meðal gangandi vegfaranda...og flestir sögðu "icesave? hvað er það?"
Menn fjárfesta í Írak eins og það sé engin morgundagurinn, menn fjárfesta í Líbýu þó þar hafi verið einræðisherra í 40 ár sem sprengdi breska farþegaþotu yfir Lockerbie.
Allaveganna...að vandlega íhuguðu máli þá ætla ég að segja Nei.