Síða 1 af 2

Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 16:45
af guttalingur
Málið er að ég er með hugmynd að heimasíðu/forriti. Svoldið stórt verkefni.

Hvernig fengi maður fjárfesta ssé ég er búinn að plana allt.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 16:46
af GuðjónR
Vaktin.is er besti fjárfestirinn.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 16:51
af Haxdal
Myndi halda að það væri best fyrir þig að hafa samband við einhverja af þessum nýsköpunarstöðum. Þeir ættu að geta leiðbeint þér um næstu skref, m.a. hvernig þú nálgast fjárfesta sem eru til í að vinna með þér að þessu og aðstoða með aðstöðu og þvíumlíkt.

Hérna eru þau helstu sem ég man eftir.
http://www.nmi.is/- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
http://www.klak.is/ - Nýsköpunarmiðstöð Atvinnulífsins
http://www.innovit.is/ - Nýsköpunar og Frumkvöðlasetur.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 16:59
af coldcut
Hvernig heimasíðu/forriti ertu að spá í?

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:02
af rapport
Innovit, Impra, Klak, Nýsköpunarsjóður, leitar samstarfs við fyrirtæki með manpower (muna að gera samning um trúnað = template hjá Impru).

Það færi líklega eftir eðli hugbúnaðar en ef ég væri með hugmynd núna tengd heimasíðu/forriti, þá mundi ég reyna fá AP-media til samstarfs, þeir þar eru vaxandi og öflugir en einnig athuga aðra möguleika sbr. Unimaze eða minni hugbúnaðarstofur.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:06
af guttalingur
coldcut skrifaði:Hvernig heimasíðu/forriti ertu að spá í?


Manangement organizer etc.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:12
af coldcut
guttalingur skrifaði:
coldcut skrifaði:Hvernig heimasíðu/forriti ertu að spá í?


Manangement organizer etc.


þetta var grín sko...átt aldrei að gefa upp hugmyndina þína [-X

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:21
af guttalingur
coldcut skrifaði:
guttalingur skrifaði:
coldcut skrifaði:Hvernig heimasíðu/forriti ertu að spá í?


Manangement organizer etc.


þetta var grín sko...átt aldrei að gefa upp hugmyndina þína [-X


Var að hugsa það sama enda sagði bara týpuna.

Alveg eins og að segja að google calendar sé organizer eða amazon sé verslun

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:28
af guttalingur
GuðjónR skrifaði:Vaktin.is er besti fjárfestirinn.


Hvað áttu við?

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:38
af guttalingur
Og af því ég er í ógeðslega góðu skapi.
Ég hef talað við nokkra námsmenn og lýst hugmyndinni og er henni lýst sem "Tær snilld"
^^ hvað er einhver svo sem að fara gera við þessar upplýsingar?

Og btw ég er ekki að leita að einhverjum til að forrita verkefnið fyrir mig
ég er forritari. enn ekki ríkur.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 17:55
af gardar
guttalingur skrifaði:Held að hluti af actuall fjárfestinguni færi í nýja/gamla nýja tölvu.
Er að keyra 512mb,Athlon 64 3200+ Hehe.



Þarft ekkert meira til þess að forrita :)

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 18:11
af blitz
Aldrei aldrei aldrei aldrei segja NEINUM frá hugmyndinni þinni!

Talaðu við þessa nýsköpunarstaði sem búið er að nefna

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 18:16
af guttalingur
gardar skrifaði:
guttalingur skrifaði:Held að hluti af actuall fjárfestinguni færi í nýja/gamla nýja tölvu.
Er að keyra 512mb,Athlon 64 3200+ Hehe.



Þarft ekkert meira til þess að forrita :)


Drullu slow

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 18:38
af coldcut
guttalingur skrifaði:
gardar skrifaði:
guttalingur skrifaði:Held að hluti af actuall fjárfestinguni færi í nýja/gamla nýja tölvu.
Er að keyra 512mb,Athlon 64 3200+ Hehe.



Þarft ekkert meira til þess að forrita :)


Drullu slow


Slow við hvað?
Ef hún er hæg í að taka inn keyboard-input að þá mundi ég hreinsa hana. Sé samt ekki alveg muninn hvort að t.d. compile er hálfa eða eina mínútu, ef að það er það sem þú ert að meina þegar þú segir að hún sé slow.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 18:48
af Bioeight
Það er líka hægt að sækja um styrki og fleira hjá nýsköpunarsjóðum. Mæli samt eindregið með því að tala við Andra í Innovit og Eyþór í Klak, þeir ættu að vera með tengiliði og fjárfesta til að fleyta svona verkefni áfram. Hugmyndahús Háskólanna var síðan fínn staður til að láta aðeins krauma í svona verkefni, finna fólk og bounca hugmyndum, það átti að loka því en ég held að það sé búið að leysa það mál. Það er hinsvegar rangt að maður eigi ekki að tala um hugmyndina sína en hinsvegar á maður auðvitað ekki að gefa neinum hana á silfurfati. Til að móta og þróa svona hugmynd þá þarftu að vera tilbúinn að ræða hana við fólk. Ef við skoðum bara hugbúnaðarþróunarferlið þá krefst það inntaks frá notendum til að skilja betur þarfir þeirra og mögulega get komist til móts við þá. Ef notendur eru ekki hafðir með í ráðum við þróun hugbúnaðar þá er það bara happaglappa hvort forritið nær fótfestu, nema auðvitað forritarinn sé hinn nýi Messías hugbúnaðarhönnunar.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 19:22
af jonrh

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 19:49
af guttalingur
coldcut skrifaði:
guttalingur skrifaði:
gardar skrifaði:
guttalingur skrifaði:Held að hluti af actuall fjárfestinguni færi í nýja/gamla nýja tölvu.
Er að keyra 512mb,Athlon 64 3200+ Hehe.



Þarft ekkert meira til þess að forrita :)


Drullu slow


Slow við hvað?
Ef hún er hæg í að taka inn keyboard-input að þá mundi ég hreinsa hana. Sé samt ekki alveg muninn hvort að t.d. compile er hálfa eða eina mínútu, ef að það er það sem þú ert að meina þegar þú segir að hún sé slow.


Ég fer létt í að ná 20-30 opnum flipun í chrome ásamt því að hafa VS 2010 og kanski photoshop.
512mb er ekki alveg að cutta það ;)

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Lau 02. Apr 2011 22:09
af dori
Ég las um eitthvað um daginn... Það var svona "fáðu pening til að vinna með hugmyndina í 3 mánuði og búa til prótótýpu sem þú sýnir fullt af fjárfestum á einhverri sýningu". Það var eitthvað bandarískt en er opið öllum ef þú getur fengið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum í 3 mánuði. Það er snilld ef þú ert með hugmynd sem þú gætir gert sjálfur (þar sem þú sagðist vera forritari) en þarft að koma henni á framfæri og fjármagn til að ná að gera hana að raunveruleika.

Ég skal finna linkinn og henda inn. IMHO betri hugmynd en að vinna í þessu á eigin forsemdum í sjúklega langan tíma og veðsetja allt sem maður á.

Geta aðrir en Bandaríkjamenn sótt um hjá ycombinator?

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 08:50
af DabbiGj

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 11:20
af kubbur
coldcut skrifaði:
guttalingur skrifaði:
coldcut skrifaði:Hvernig heimasíðu/forriti ertu að spá í?


Manangement organizer etc.


þetta var grín sko...átt aldrei að gefa upp hugmyndina þína [-X



þetta er ekki rétt hjá þér, því fyrr sem fólk stígur fram og kynnir hugmynd fyrir almenningi, því minni líkur á að fégráðug fyrirtæki taki hugmyndina og noti hana

dæmi um verkefni sem eru stolin: inspired by iceland...

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 15:09
af everdark
Hvað vantar þig mikið?

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 17:10
af guttalingur
Honestly veit ekki hversu mikið ég þarf. Kostnaður við server kemur ofarlega í huga.

Er núna að vinna að þessu mestmegnis í frítíma mínum.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 17:28
af gardar
Ef þig vantar server/hýsingu þá ætti að vera hægt hjálpa þér með það.... Ef hugmyndin er góð.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 17:49
af guttalingur
Ég get útskýrt hugmyndina frekar.

Re: Hvert færi maður til að ná í fjárfesta.

Sent: Sun 03. Apr 2011 17:57
af DJOli
Ég er alveg Handviss um að góðhjartaðir vaktarar séu til í að hjálpa þér með hugmyndina þína, ef við eigum eitthvað, eða búum yfir reynslu eða þekkingu varðandi eitthvað sem þú þarft hjálp við fyrir lítið eða ekkert þá er bara að vinda sér í það, og spyrja :)


Svo fremi sem ómar daði fer ekki að snuðra þá held ég að þetta sé safe.